Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.06.2018, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.06.2018, Page 22
MATUR Þumalputtareglan fyrir kokkteilboð er að meðalmanneskjan borðar 5-7forréttabita á fyrstu klukkustund boðs og svo 2-4 bita á klukkustundinniþar á eftir. Það er ágæt regla að bjóða uppá blöndu af léttum réttum og þyngri annars vegar og heitum og köldum bitum hins vegar. Hve marga bita þarf á mann? 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.6. 2018 GettyImages/iStockphoto Matur á miðju sumri Íslendingar hafa ekki haft fyrir sið að halda upp á Jónsmess- una eins og nágrannar okkar á hinum norrænu löndunum þar sem hefðir tengdar þessari há- tíð eru fastmótaðar. Hér á landi er um að gera að nota tækifær- ið, búa til sína eigin hefð og fagna sumri með því að elda mat og blanda drykki sem koma með sumar í hjarta, óháð því hvort sólin skín eða ekki. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Þessi drykkur er kjörinn drykkur fyrir sumarveisl- una og HM-leikina sem framundan eru. Svava Gunnarsdóttir var að birta þessa frísklegu uppskrift á matarblogginu sínu Ljúf- meti og lekkerheit, ljuf- meti.com. 2-3 cl gin (hún notar Tan- queray) 2 cl sykursíróp (sjóðið vatn og sykur í jöfnum hlutföllum saman þar til sykurinn hefur bráðnað – tekur enga stund!) 3 cl sítrónusafi freyðivín (það fór 1 flaska í 4 glös) klaki sítróna Hellið gini, sykursírópi og sí- trónusafa í stórt vínglas. Fyllið glasið með klaka og hellið síðan freyðivíni í það. Hrærið varlega í glasinu. Setjið sítrónusneið í glasið og berið strax fram. Ferskur drykkur með freyðivíni, gini og sítrónu Hér er best að nota ferskan maís beint af stönglinum. Safinn frá tómötunum gefur súran blæ svo það þarf ekki að nota neitt edik í þetta sal- at. Það er hægt að borða þetta eins og er eða bæta við elduðum hrísgrjónum eða baunum til að gera sal- atið matarmeira. Þá er komin mjög sumarleg og fersk máltíð. Uppskriftin er fyrir fjóra. 2-3 bollar maís, hrár eða eld- aður (af fjórum til sex stöngl- um) 1 stór eða 2 meðalstórir þroskaðir tómatar 1 bolli mulinn fetaostur 3 msk. jómfrúarólífuolía ½ bolli skorin fersk myntulauf salt og pipar eftir smekk Blandið maísnum, tómöt- unum og ostinum saman í skál. Hellið ólífuolíunni sam- an við og blandið. Bætið við myntulaufunum og hrærið aftur saman. Smakkið til með salti og pipar. Maíssalat með tómötum, fetaosti og myntu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.