Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.06.2018, Page 28
FERÐALÖG Að ferðast á staði þar sem Hollywood-stjörnur láta sjá sig kallará að vera með stór sólgleraugu, hatt eða slæðu og þykjast veraein slík. Gerir ferðalagið extra skemmtilegt þegar aðrir ferða-
menn gruna þig um að vera Clooney eða afturgengin Monroe.
Klæddu þig eins
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.6. 2018
Með sjálfbærni að leiðarljósi
Finnsk innanhússhönnun
02.03–02.09.2018 www.norraenahusid.is
Innblásið af Aalto
Getty Images/iStockphoto
Á norðausturströnd Jamaíka er
borgin Port Antonio sem Holly-
wood kvikmyndir 5. og 6. áratugarins
gerðu fræga. Staðurinn öðlaðist svo
aftur frægð í síðari tíma kvikmyndum
eins og Coctail og Blue Lagoon.
Bette Davis hélt mikið upp á stað-
inn sem státar enn af sömu nátt-
úrufegurð og þá og býður upp á sýn-
ishorn af öllu því besta sem Jamaíka
hefur. Mæla má með The Trident
Hotel til að komast í smá kvikmynda-
stjörnuskap.
Áfangastaðir
klassísku Hollywood
Þeir áfangastaðir sem stórstjörnurnar á gullaldarskeiði Hollywood
heimsóttu eru enn fagrir og gaman að heimsækja þá í dag. Það er
ekkert slor að feta þær strandir sem Marilyn Monroe og Greta
Garbo gengu eftir í fríinu.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
St. Tropez var lítill fiskimannabær þegar heims-
byggðin uppgötvaði hann en það var Brigitte Bar-
dot sem kom honum á kortið en hún, sem var mikill
aðdáandi St. Tropez, keypti hús þar árið 1958. Í kjöl-
farið varð þessi litli strandbær á frönsku riveríunni
að eins konar skemmtistað fræga fólksins á sumrin
og enn er hann heimsóttur af stórstjörnum.