Morgunblaðið - 06.04.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 06.04.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Síðustu vikur var birtur fjöldi„frétta“ um hvar kínverska geimstöðin gæti komið niður og hverjir gætu fundið fyrir því. Jafnan fylgdi að sérfræðingar segðu að líkurnar á því að geimstöðin lenti „á þér“ væru þær sömu og að þú yrðir fyrir eldingu tvo daga í röð. Ólíklegt er þó að „þú“ yrðir tiltækur fyrir seinni eldinguna. Páll Vilhjálmsson skrifar:    Fréttir um framtíðina eru spá-sagnir um óorðna hluti. Eng- inn veit með nokkurri vissu hvað framtíðin ber í skauti sér.    Eftirspurnin er þó fyrir hendiog gæti-fréttir reyna að anna henni. Fjölmiðlar vilja vera hluti af daglegu lífi fólks.    Til skamms tíma þótti nóg aðþeir flyttu nýlegar fréttir, svo fóru þeir að flytja raun- tímafréttir í beinni útsendingu. En núna er það ekki nóg. Gæti- fréttir segja okkur hvað gerist í framtíðinni. Við gætum dregist inn í tollastríð Kína og Banda- ríkjanna; Grænlandsjökull gæti bráðnað; plast gæti ógnað lífríki sjávar; Norður-Kórea gæti hrund- ið af stað kjarnorkustyrjöld og svo framvegis.    Flestar gæti-fréttir boða hörm-ungar í einni eða annarri mynd. Löngu fyrir daga fjölmiðla sáu prestar um fréttir af framtíð- inni.    Trúarmiðstöðvar eins og Delfí íForn-Grikklandi voru upp- spretta gætu-frétta. Opin spurn- ing er hvort það sé framför að heimildarmenn gætu-frétta sam- tímans séu af holdi og blóði.“ Páll Vilhjálmsson Gæti verið rétt STAKSTEINAR Veður víða um heim 5.4., kl. 18.00 Reykjavík 4 heiðskírt Bolungarvík 0 léttskýjað Akureyri 0 skúrir Nuuk 1 skýjað Þórshöfn 4 skúrir Ósló 4 þoka Kaupmannahöfn 8 skýjað Stokkhólmur 4 þoka Helsinki 7 skýjað Lúxemborg 7 léttskýjað Brussel 8 léttskýjað Dublin 7 skýjað Glasgow 9 skýjað London 11 léttskýjað París 10 alskýjað Amsterdam 7 léttskýjað Hamborg 5 rigning Berlín 10 skýjað Vín 14 skúrir Moskva 6 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt Madríd 17 heiðskírt Barcelona 16 heiðskírt Mallorca 20 léttskýjað Róm 16 þrumuveður Aþena 20 heiðskírt Winnipeg -6 léttskýjað Montreal -7 léttskýjað New York 4 léttskýjað Chicago 0 skýjað Orlando 21 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 6. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:28 20:34 ÍSAFJÖRÐUR 6:27 20:45 SIGLUFJÖRÐUR 6:09 20:28 DJÚPIVOGUR 5:56 20:05 Rannsókn á Þingeyraklaustri undir stjórn Steinunnar J. Kristjáns- dóttur fékk hæsta styrkinn úr forn- minjasjóði í ár, fimm milljónir króna. Úthlutað var úr sjóðnum nú um páskana. Alls bárust 77 um- sóknir en veittir voru styrkir til 20 verkefna. Heildarupphæð þessara 77 umsókna nam 213.000.000 kr., en heildarupphæð úhlutunar er 45.670.000 kr. Næsthæsta styrkinn fékk Forn- leifastofnunin til rannsókna á forn- um rústum í Ólafsdal, fjórar millj- ónir króna. Tíu umsækjendur fengu þriggja milljóna króna styrk; Forn- leifafræðistofan til rannsókna á Stöð í Stöðvarfirði og mið- aldabænum Arfabót á Mýrdals- sandi, Náttúrustofa Vestfjarða til að rannsaka miðaldabýli á Auðkúlu og Fornleifastofnunin til rannsókna á hernáminu frá sjónarhóli forn- leifafræði og til rannsókna á byggð í Skaftártungu. gudmundur@mbl.is. Fimm milljónir í Þingeyrar Afgreiðslutími sundlauganna í Árbæ og Grafarvogi í Reykjavík verður lengdur frá og með komandi helgi, þannig að þar verður opið alla daga vikunnar fram til klukkan 22. Er það til samræmis við það sem gerist í öðrum sundlaugum í Reykjavík. Á fyrri stigum höfðu komið fram und- irskriftalistar þar sem óskað var eft- ir þessari þjónustubót og tillaga um þetta kom fram í borgarstjórn, sem var samþykkt fyrir nokkru. Með breytingu þessari verða allar sundlaugarnar í Reykjavík, utan Klébergslaugar á Kjalarnesi, opn- aðar kl. 6:30 á morgnana virka daga og kl. 9 um helgar, en Laugardals- laug og Sundhöllin við Barónsstíg þá klukkustund fyrr. Í hinn endann verður afgreiðslutími samræmdur, þ.e. allir fara upp úr kl. 22. Kostn- aður við lengri afgreiðslutíma í Ár- bæjar- og Grafarvogslaug, sem til þessa hafa verið lokaðar á kvöldin frá föstudegi til og með sunnudegi, er áætlaður 12 milljónir króna sam- tals, skv. upplýsingum frá Steinþóri Einarssyni, skrifstofustjóra hjá ÍTR. Hann segir lengri afgreiðslu- tíma í laugunum fram á kvöld um helgar hafa mælst vel fyrir, til dæm- is í laugum næst miðborginni sem ferðamenn sæki mikið. Vestur- bæjarlaug og Sundhöllin sem nýlega var opnuð eftir endurbætur komi þar sterkar inn. sbs@mbl.is Lengur opið í sundlaugum úthverfa  Til kl. 22 um helgar í Árbæ og Grafarvogi  Kostar borgina 12 milljónir kr. Morgunblaðið/Golli Sund Undir bununni í Árbæjarlaug. Í texta undir mynd frá útför Ingi- mundar Sigfússonar í blaðinu í gær féll niður nafn einsöngvara. Hann heitir Ágúst Ólafsson og söng Ständchen eftir Franz Schubert. Nafn féll niður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.