Morgunblaðið - 06.04.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Borgarráð Reykjavíkur hefur sam-
þykkt að auglýsa tillögu að breyttu
deiliskipulagi Mógilsár við Kollafjörð.
Breytingin felur meðal annars í sér
aukið byggingarmagn. Samhliða
þessu eru kynntar hugmyndir um
nýjan veitingastað og hótel við Esju-
stofu. Með því hækkar þjónustustigið
við fjallið sem laðar að sér stöðugt
fleiri gesti ár hvert.
Pjetur Árnason, einn eigenda
Esjustofu, segir fyrirtækið að baki
þessum áformum. Verkefnið hafi ver-
ið í vinnslu í nokkur ár og sé í sam-
starfi við fjárfesta. Hann tekur fram
að verkefnið sé á hugmyndastigi og
að framkvæmdir hafi ekki verið tíma-
settar. Hins vegar sé ætlunin að hefja
þær á næstu árum.
„Hverjar eru óskir viðskiptavina?
Það er að hafa opið allt árið. Það er að
hafa salerni og möguleika á gistingu.
Það er að hafa sturtu og heita potta.
Þess vegna fórum við í þessa vegferð
og deiliskipulagsvinnu alla. Þetta er
búið að taka fjögur ár,“ segir hann.
Þurfa varanlegt húsnæði
Pjetur segir rekstur Esjustofu
hafa staðið yfir í um tíu ár. Nú sé ætl-
unin að reksturinn og fyrirhuguð
þjónustumiðstöð verði opin allt árið.
„Til þess þarf að reisa varanlega
byggingu. Núverandi húsnæði var
flutt á staðinn,“ segir Pjetur en veit-
ingaleyfið var gefið út 2008.
Hann segir verkefnið nú verða
unnið frekar. Það eigi eftir að fara í
gegnum lengra skipulagsferli.
Pjetur segir aðspurður enga
ákvörðun hafa verið tekna um bíla-
stæði sunnan við A-reitinn. Það sama
gildi um hugsanlega uppbyggingu á
B-reitnum.
Vesturlandsvegur færður til
Skipulagssvæðið heitir Þ1 – Þjón-
ustumiðstöð við Mógilsá. Vegna nýs
deiliskipulags Vesturlandsvegar fær-
ast mörk þeirrar lóðar norðar á 150
metra kafla. Framkvæmdir við veg-
inn eru áformaðar.
„Heimilt byggingarmagn á bygg-
ingarreit A er aukið og skilmálum um
leyfilega þjónustu breytt. Leyfilegt
byggingarmagn á reit A verður við
breytingu þessa 2.400 fermetrar, auk
kjallara undir hluta,“ segir í grein-
argerð um verkefnið. Við það bætast
svonefnd B-rými með svalagöngum
og inngörðum. Með B-rýmum fer
byggingarmagnið í um 3.000 fer-
metra. Þau eru sögð „hafa lítil sýnileg
áhrif á ásýnd eða umfang mannvirkis
en auka mjög á gæði hótelhlutans“.
Heimilt í jaðri græna trefilsins
Bætt er við ákvæði um að leyfa
gististarfsemi á svæðinu. Vísað er til
græna trefilsins, skógræktar- og úti-
vistarsvæðis við ytri mörk sveitar-
félaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu.
„Í jaðri græna trefilsins er heimilt
að byggja upp þjónustu við ferðafólk,
s.s. veitinga- og gistiþjónustu, enda
verði staðið að hönnun og frágangi
mannvirkja þannig að þau falli vel að
umhverfinu og valdi ekki neikvæðum
umhverfisáhrifum.“
Sé opin almenningi
Þá segir í greinargerðinni að þjón-
ustan skuli vera opin og aðgengileg
almenningi og þjóna öllum gestum á
svæðinu, ekki eingöngu hótelgestum.
Byggingar skuli rúma þjónustu fyrir
göngufólk sem fer á Esjuna. Jafn-
framt skuli reiknað með upplýsinga-
miðstöð um skógrækt í samvinnu við
Rannsóknarstöð skógræktar á Mó-
gilsá. Jafnframt segir í greinargerð-
inni að húshlutar skuli markvisst
brotnir upp til að tryggja að bygg-
ingin falli sem best að landinu. Bygg-
ingar skulu vera 1-2 hæðir og heimilt
er að hafa kjallara undir hluta þeirra.
Esjan er eitt vinsælasta útivistar-
svæði höfuðborgarsvæðisins. Þangað
leggur töluverður hóp leið sína flesta
daga ársins. Umferðin hefur aukist
mikið um veturinn. Til dæmis var
sagt frá því í Morgunblaðinu í janúar
að illa búnir erlendir ferðamenn
hefðu lent í vandræðum í hlíðum Esj-
unnar. Meðal annars voru japanskir
ferðamenn á leið upp fjallið á striga-
skóm. Mikill ís var á stígum.
Áforma hótel við Esjurætur
Borgarráð Reykjavíkur samþykkir breytt deiliskipulag Mógilsár við Kollafjörð
Heimilt verður að reisa um 3.000 fermetra byggingu fyrir hótel og veitingasölu
Teikning/Teiknistofa arkitekta - Gylfi Guðjónsson og félagar ehf.
Grænar áherslur Fram kemur í greinargerð að að lágmarki 60% útveggja skuli klædd viðarborðum.
Teikning/Teiknistofa arkitekta - Gylfi Guðjónsson og félagar ehf.
Undir fjallshlíðum Hótelbyggingin mun setja svip á umhverfið.
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
og
og
Samningatækni Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta er meðal þess
sem verður í sviðsljósinu í fyrir-
lestramaraþoni
Háskólans í
Reykjavík í há-
deginu í dag. Þar
gefst almenningi
kostur á að
kynna sér fjöl-
breyttar rann-
sóknir fræði-
manna skólans í
örstuttum fyrir-
lestrum sem
verða þrjátíu
talsins. Meðal annars efnis á boð-
stólum er kynjamunur í kennslu-
könnunum, nýting varma frá álver-
um, duldar auglýsingar, gervi-
greind, launamunur íþróttamanna.
Þá verður fjallað um muninn á full-
veldi og sjálfstæði Íslands.
Kristján Vigfússon aðjunkt, sem
kennir stefnumótun og samninga-
tækni við HR, segir að Trump hafi
gefið út fjórar víðlesnar bækur um
samningatækni í viðskiptum áður
en hann settist á forsetastól og telji
sig því á heimavelli þegar hann
beitir henni í stjórnmálum. Fleyg
eru ummæli hans á Twitter fyrir
nokkrum árum: „Samningar eru
mín listgrein.“
En Kristján gefur Trump ekki
háa einkunn. Hann segir að margt
af því sem hann ástundi þyki ekki
góð latína í hefðbundnum samn-
ingafræðum. Trump beitir m.a. hót-
unum og blekkingum, lofar ýmsu
sem hann getur ekki staðið við,
reynir að ráðskast með fólk, höfðar
til hégóma og fer rangt með stað-
reyndir. Hann er að auki óþolin-
móður og hvatvís. Dæmi um þetta
allt eru tekin í fyrirlestrinum.
Fyrirlestarnir í hádeginu í dag
eru á fimm meginsviðum. lögfræði,
tæknifræði og verkfræði, tölvunar-
fræði, íþróttafræði og sálfræði, við-
skiptafræði og hagfræði. Endur-
spegla þeir þá breidd sem er í
kennslu og rannsóknum í HR.
Í dag verða ennfremur HR-verð-
launin afhent en þar fá þeir starfs-
menn sem þykja hafa skarað fram
úr á sviði þjónustu, rannsókna og
kennslu afhenta viðurkenningu.
Nemendur og starfsmenn HR sjá
um að tilnefna kandidata og síðan
er það í höndum dómnefnda skip-
uðum nemendum og starfsfólki að
velja hver eru fremst meðal jafn-
ingja.
Er Trump snjall
samningamaður?
Opið fyrirlestramaraþon í HR í dag
Kristján
Vigfússon
Félag stjórnenda leikskóla lýsir
áhyggjum af viðvarandi skorti á
leikskólakennurum og ekki síst í
ljósi hugmynda um að fjölga leik-
skólarýmum um mörg hundruð
með stofnun ungbarnadeilda í
Reykjavík.
„Félagið lýsir um leið yfir
áhyggjum sínum og bendir á við-
varandi starfsmannavanda og skort
á leikskólakennurum sem er nú
þegar fyrir hendi. Allt bendir til
þess að ekki muni draga úr þessum
vanda á komandi hausti miðað við
óbreytt ástand. Á sama tíma stend-
ur til að opna ungbarnadeildir og
fjölga leikskólarýmum um 700-800 í
Reykjavík en það kallar á fleira
starfsfólk og mun auka enn á þann
vanda sem fyrir er,“ segir í tilkynn-
ingu frá félaginu.
Morgunblaðið/Ómar
Framtíðin Mikill vandi hefur verið í leik-
skólamálum í Reykjavík undanfarin ár.
Fleiri leikskólarými
munu skapa meiri
vanda í Reykjavík
Erlendur ferða-
maður lét lífið í
umferðarslysi
skammt austan
við Vík í Mýrdal í
fyrrakvöld. Þrír
voru í bifreiðinni
sem, samkvæmt
upplýsingum frá
lögreglu, fór
nokkrar veltur.
Hinir tveir sem í
bílnum voru slösuðust lítillega, en
voru fluttir á sjúkrahús til skoð-
unar og aðhlynningar.
Hinn látni, sem fæddur var árið
1994, var ökumaður bílsins og var
hann fluttur á Landspítalann með
þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Ferðamaður lét lífið
í bílslysi við Vík
Slys Maðurinn var
fluttur með þyrlu.