Morgunblaðið - 06.04.2018, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
Verð 10.490 kr.
Verð 7.990 kr.
Verð 9.990 kr.
Verð 10.990 kr.
Verð 10.990 kr.
Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt
Glæsileg ný sending
Undirskriftasöfn-
un er hafin á net-
inu í Lundúnum
þar sem þess er
krafist að rann-
sókn á því þegar
innbrotsþjófur
var stunginn til
bana verði hætt.
Lögregla hand-
tók á miðvikudag
78 ára gamlan
ellilífeyrisþega, Richard Osborn-
Brooks, og ákærði hann fyrir mann-
dráp. Tveir menn brutust inn í hús
hans fyrr um daginn og ógnuðu hon-
um með skrúfjárni. Osborn-Brooks
lenti í átökum við annan þjófinn, sem
fékk stungusár og lést á sjúkrahúsi.
Osborn-Brooks hefur nú verið lát-
inn laus gegn tryggingu en þarf að
mæta fyrir dóm í maí. Málið hefur
vakið mikla athygli í Bretlandi og
hefur m.a. verið stofnaður þráður
undir yfirskriftinni #FreeRich-
ardOsbornBrooks.
Mótmæla
ákæru
Richard Osborn-
Brooks
Armando Obdola, yfirmaður mann-
réttindasamtakanna Kape Kape,
sagði í gær að um það bil 70 börn
hefðu látist frá því í janúar vegna
mislingafaraldurs í austurhluta
Venesúela. Sagði Obdola að mik-
ilvægt væri að boða til neyðar-
ástands vegna faraldursins.
Börnin tilheyrðu öll Warao-
ættbálknum, sem lifir í afskekktum
frumskógarhluta Venesúela. „Það
eru engin lyf og læknarnir og hjúkr-
unarfræðingarnir geta ekkert gert,“
sagði Obdola.
Suður-Ameríka var sögð vera laus
við mislinga árið 2016, en heilbrigð-
issamtök Ameríkuríkja, PAHO,
sögðu í síðasta mánuði að sjúkdóm-
urinn hefði komið aftur upp í Vene-
súela. Um 159 tilfelli hafa verið
skráð þar frá áramótum, og er það
hið mesta í Suður-Ameríku. Það
land sem hafði næstflest tilfelli var
Brasilía með 14 tilfelli, og reyndist í
öllum tilfellum um venesúelska rík-
isborgara að ræða, sem ekki höfðu
verið bólusettir.
Skortur á mat og lyfjum
Efnahagsástandið í Venesúela
hefur farið hríðversnandi á síðustu
misserum og leitt til þess að matvæli
og lyf skortir reglulega. Þá bætir
ekki úr skák að erfitt er að komast
að sumum svæðum landsins með
slíkar nauðsynjar og því erfitt að
bregðast við þegar faraldrar koma
upp. Eldsneytisskortur hefur einnig
sett stórt strik í reikninginn.
Luis Loez, heilbrigðisráðherra
Venesúela, sagði á samskiptamiðl-
inum Twitter á þriðjudaginn að í bí-
gerð væri bólusetningarátak, þar
sem bólusett yrði gegn mislingum,
gulu og barnaveiki.
70 börn dáin úr
mislingafaraldri
AFP
Bólusetningar Mislingafaraldur
geisar nú í Venesúela.
Ástandið í Venesúela sagt skelfilegt
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Júlía Skrípal, dóttir rússneska
njósnarans Sergei Skrípal, sem varð
fyrir taugaeitursárás í upphafi mars
síðastliðins, sendi í gær frá sér til-
kynningu til fjölmiðla þar sem fram
kom að hún væri á batavegi. „Ég
vaknaði fyrir viku og er fegin að
máttur minn vex með degi hverjum,“
sagði í tilkynningunni.
Árásin á Skrípal-feðginin hefur
vakið harða milliríkjadeilu milli
Bretlands og Rússlands, en Efna-
vopnastofnunin hafnaði í fyrrakvöld
beiðni Rússa um að þeir fengju að
taka þátt í rannsókn stofnunarinnar
á árásinni og því eiturefni sem beitt
var. Var niðurstaða stofnunarinnar
ekki fyrr komin en Rússar kröfðust
þess að öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna myndi funda um málið þegar í
stað. Sagði Sergei Lavrov, utanríkis-
ráðherra Rússlands, að Bretar
þyrftu að svara þeim mörgu alvar-
legu spurningum sem komið hefðu
upp um málið á vettvangi öryggis-
ráðsins.
Símtal Júlíu spilað í fjölmiðlum
Rússneska ríkissjónvarpið spilaði
í gær upptöku sem sögð var vera af
símtali á milli Júlíu Skrípal og
frænku hennar sem býr í Moskvu.
Sagði Júlía þar meðal annars að faðir
sinn væri í lagi. Ekki var vitað hvort
upptakan væri raunveruleg eða föls-
un, en sjúkrahúsið þar sem Sergei
Skrípal er nú staddur sagði nýlega
að hann væri enn í lífshættu.
Breska stórblaðið The Times
greindi síðan frá því í gær að breska
leyniþjónustan teldi sig hafa komist
að því hvar í Rússlandi taugaeitrið,
sem notað var í árásinni, var fram-
leitt, en nokkur vafi hefur leikið á því
hvaðan það var upprunnið.
Júlía Skrípal sögð á batavegi
Öryggisráðið fundaði að beiðni Rússa Rússneskir fjölmiðlar spila upptöku af meintu símtali Júlíu
við frænku sína Bretar telja sig loks vita hvar Novichok-eitrið var framleitt í Rússlandi
AFP
Deilt um Skrípal Vasilí Nebenzia, sendiherra Rússlands, sagði á fundi ör-
yggisráðs SÞ í gær að Bretar væru að „leika sér að eldinum“ í máli Skrípals.
Salisbury-árásin
» 4. mars síðastliðinn urðu
feðginin Sergei og Júlía fyrir
taugaeitursárás í bænum Sal-
isbury í suðurhluta Englands.
» Bretar segja það fullvíst
að Rússar hafi staðið fyrir
árásinni, en Rússar neita allri
sök.