Morgunblaðið - 06.04.2018, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
✝ Guðjón Þor-björnsson
fæddist á Siglufirði
3. mars 1932. Hann
lést á Hrafnistu í
Kópavogi 16. mars
2018.
Foreldrar Guð-
jóns voru Þorbjörn
Jósefsson, f. 27.6.
1894, d. 19.3. 1958,
og Oddný Baldvins-
dóttir, f. 18.4. 1901,
d. 4.5. 1938. Bræður Guðjóns
voru Friðvin, f. 15.11. 1923, d.
22.6. 1991, Sigurður, f. 23.6.
1926, d. 5.4. 2015, og Hallgrímur
Þór, f. 17.2 . 1929, d. 11.11. 1949.
Við andlát móður sinnar fóru
bræðurnir í fóstur og ólst Guð-
jón upp hjá móðursystur sinni
1981, k.h. Fanny, f. 1984, sonur
þeirra Levi Johann, f. 2015 b)
Helgi Gunnar, f. 1986. b.m. Birte
f. 1988, dóttir hans: Lotta Ilvy, f.
2017. 2) Þorbjörn, f. 1956, k.h.
Sóley Björg Færseth, f. 1957.
Börn þeirra: a) Hulda f. 1984,
m.h. Fredrik, f. 1982. Dætur
þeirra Íris Sigbritt, f. 2007, og
Iðunn Sóley, f. 2014. b) Rakel, f.
1993, c) Guðjón, f. 1995. Samb.k.
Elísabet f. 1998.
Guðjón lauk námi í bifvéla-
virkjun 1953 og starfaði lengst
af hjá Hafna- og vitamálastofn-
um og var mikið að heiman þar
sem hann ferðaðist um landið
við dýpkunarframkvæmdir. Síð-
ar starfaði hann hjá Íslenska ál-
félaginu í mörg ár og endaði
starfsferil sinn hjá Brimborg.
Þau hjónin bjuggu alla tíð í
Reykjavík, lengst af í Gljúfraseli
þar sem þau byggðu sér hús, en
fluttu í þjónustuíbúð 2014.
Útför Guðjóns fer fram frá
Garðakirkju í dag, 6. apríl 2018,
klukkan 15.
Aðalbjörgu Bald-
vinsdóttur, f. 21.8.
1908, d. 6.11. 1970,
og eiginmanni
hennar Franklín
Hólmbergssyni, f.
30.11. 1904, d. 21.9.
1981. Fósturbróðir
Guðjóns var Georg
Franklínsson, f.
8.10. 1932, d. 15.10.
2009.
Guðjón kvæntist
28.8. 1954 Huldu Árnadóttur, f.
13.9. 1932. Foreldrar hennar
voru Árni Magnússon, f. 1897, d.
1942, og Valdís Þorvaldsdóttir,
f. 1902, d. 1952. Börn Guðjóns
og Huldu eru tvö. 1) Valdís, f.
1953, maki Günter Ossa, f. 1953,
synir þeirra: a) Björn Guðjón, f.
Minn kæri eiginmaður.
Ég kveð þig með þessu fal-
lega ljóði.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þín
Hulda.
Nú á kveðjustund horfi ég yf-
ir farinn veg og þann langa
tíma sem við höfum notið sam-
an, allt frá barnsárum mínum
fram til dagsins í dag. Þetta
hafa verið tímar mikilla breyt-
inga. Kalda stríðið, mannaðar
ferðir til tunglsins, tölvur,
snjallsímar og svo margt fleira.
Þú hafðir alltaf óbilandi trú á
framtíðina og tækninýjungar og
varst fljótur til að ná þér í nýj-
ustu tæki sem komu á markað-
inn.
Eldhúsið var vel búið öllum
rafmagnstækjum. Mér er
minnisstætt hvað 2000-kerfið
átti að vera langbesta vídeóið.
Einnig þegar járngrind var sett
undir hátalarana svo þeir höll-
uðu rétt til að gefa besta hljóð-
Guðjón
Þorbjörnsson
ið. Einnig var plötuspilari ekki
bara plötuspilari, það þurfti að
hugsa um nálar og ýmislegt
annað. Svona mætti lengi telja
þó að við vitum í dag að allt átti
þetta sinn tíma.
Mér er minnisstætt hversu
auðvelt allt var varðandi bílana
mína. Ég gat auðveldlega átt
hvern skrjóðinn á fætur öðrum.
Viðhald og viðgerðir voru leikur
einn. Ég bara hringdi eða
mætti í heimsókn og fékk leið-
sögn um hvernig ég ætti að
standa að málum. Verkfæri
voru ekki vandamál. Nú, ef mál-
in urðu of flókin þá gerðum við
þetta saman í skúrnum hjá þér.
Það sama var uppi á teningnum
þegar við hjónin keyptum gam-
alt hús sem við höfum eytt tíma
okkar í að endurbyggja. Leið-
beiningar og aðstoð bókstaflega
flæddu frá þér hvort sem við-
fangsefnið var garðurinn,
heimasmíðaðar gardínustangir
eða múrviðgerðir.
Þegar árin færðust yfir og
veikindi fóru að gera vart við
sig var viljinn oft meiri en get-
an og fallegt bros kom í stað
ráða. Nú þegar kemur að
leiðarlokum er þakklæti mér
efst í huga.
Þorbjörn.
Það er morgunn og ég vakna
við að útidyrahurðinni er skellt
í lás. Ég er smástund að átta
mig á því, en man svo að við er-
um flutt heim til Íslands og bú-
um nú í Gljúfraselinu hjá afa og
ömmu. Því hlýtur hljóðið sem
vakti mig að vera afi, að leggja
af stað í vinnuna. Ég hleyp nið-
ur í eldhús og opna ísskápinn
þar sem afi skildi eftir minn
helming af banananum sem við
skiptum á milli okkar á hverj-
um morgni. Morgunrútínan
okkar, áður en við systkinin
urðum fleiri.
Hann afi virtist kunna allt
um vörubíla. Stundum, þegar
við systkinin vorum lítil og afi
ennþá að vinna, fengum við að
fara með pabba í heimsókn að
skoða stóru trukkana, setjast
inn í þá og þykjast keyra. Þetta
var eitt það skemmtilegasta
sem við gerðum.
Þrátt fyrir að vinna með
stóra trukka og vera klár bíla-
kall, keyrði afi alltaf löturhægt
þegar við vorum í bílnum. Hans
skýring var að við værum dýr-
mætasti farangurinn hans sem
nauðsynlegt væri að skila í
heilu lagi heim til mömmu og
pabba.
Afi átti líka hjólhýsi sem við
fengum stundum að gista í.
Þetta hjólhýsi var ekki stórt en
alveg nógu stórt fyrir okkur og
ömmu líka. Amma sá um allt
skipulagið og sá til þess að allt
væri á sínum stað, á meðan afi
passaði upp á Andrésblöðin og
spilin ásamt því að grilla pyls-
urnar okkar. Þetta sem á sínum
tíma virtist það mikilvægasta
meðal okkar systkinanna.
Seinna fjölgaði í barnahópn-
um hans, en afi var þó alltaf sá
sami. Algjörlega óháð því hvað
við vorum mörg. Hann faðmaði
okkur að sér þéttingsfast, glað-
ur og kátur í bragði. Með hjálp
frá ömmu lögðu þau svo saman
fram hið ótrúlegasta magn af
ýmsu góðgæti.
Hann afi okkar var klár karl
og lét bækur eftir Halldór Lax-
ness, Gunnar Gunnarsson og
allar Íslendingasögurnar eiga
heiðurssess í bókahillunni. Á
meðan heilsan leyfði fylgdist
hann vel með þjóðmálum og
ræddi þau gjarnan, enda oft
með sterkar skoðanir á mál-
efnum líðandi stundar.
Afi var góður skákmaður og
þótti gaman að tafli, því syrgj-
um við það öll að hafa aldrei al-
mennilega lært að tefla og ekki
getað tekið betur þátt í þeim
leik með honum.
Afi hugsaði alltaf vel um sitt
og sína. Við kveðjum hann nú
og geymum okkar allra dýr-
mætustu minningar um hann
Gauja afa innra með okkur.
Blessuð sé minning hans.
Hulda, Rakel og Guðjón.
Guðjón Þorbjörnsson lést 16.
mars sl. eftir langvarandi og
erfið veikindi. Guðjón var upp-
eldisbróðir föður míns og hefur
samband mitt við hann og
Huldu verið mjög náið allt frá
barnsaldri. Sérstaklega eru
minnisstæðar þær ánægjulegu
samverustundir sem við hjónin
og börn okkar höfum átt með
þeim hjónum og börnum þeirra
á jólum og öðrum hátíðarstund-
um í gegnum árin. Gestrisni
þeirra hjóna hefur alltaf verið
einstök og það var sérstaklega
á heimili sínu sem Guðjón naut
sín best við að gleðja og
skemmta vinum og ættingjum.
Það er með miklum söknuði
sem við kveðjum Guðjón. Við
þökkum honum fyrir öll árin
sem við höfum fengið að njóta
vináttu hans og sendum þér
elsku Hulda, börnum og fjöl-
skyldum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Franklín og Elínborg.
✝ Örn Stefánssonfæddist á Akur-
eyri 2. júlí 1931.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu
Mörk 26. mars
2018.
Foreldrar hans
voru Stefán Árna-
son, f. 19.9. 1897, d.
23.5. 1977, og Ragn-
heiður Jónsdóttir, f.
24.2. 1899, d. 19.7.
1980. Börn þeirra voru 11 talsins
og var Örn fimmti í röðinni.
Systkin Arnar eru í aldursröð:
Ólafur f. 28.10. 1925, d. 14.8.
2010, Sigríður, f. 3.12. 1926, d.
3.10. 2003, Gunnar, f. 15.6. 1929,
d. 10.12. 1929, drengur, f. 21.7.
1930, d. 21.7. 1930, Stefán, f.
27.7. 1932, Anna Fríða, f. 6.10.
1934, d. 25.5. 2005, Jón, f. 7.6.
1937, d. 30.1. 2009, Brynjar Karl,
María, f. 1.9. 1962. Börn hennar
eru Gunnar Örn, f. 22.5. 1982, og
Sigríður Tinna, f. 9.7. 1988.
Guðný Rósa, f. 27.12. 1963, maki
Guðlaugur, f. 14.6. 1957. Börn
þeirra eru Edda Eir, f. 12.9.
1994, og Jón Gunnar, f. 8.12.
1995. Fyrir átti Guðný Rósa tvær
dætur; Jónu Björgu, f. 9.5. 1983,
og Örnu Rut, f. 12.9. 1987. Helga
Sigríður, f. 16.5. 1967, maki Ró-
bert, f. 3.6. 1963. Börn þeirre eru
Thelma Dögg, f. 4.1. 1986, Íris
Björk, f. 22.6. 1988, og Bertha
Marín, f. 4.12. 2003. Langafa-
börn Arnar eru tíu talsins.
Örn hóf snemma sjómennsku
og stundaði hana til ársins 1970
þegar hann hóf störf sem verk-
stjóri hjá Hraðfrystistöðinni í
Reykjavík. Árið 1978 hóf hann
störf hjá Íslenskum sjávaraf-
urðum sem fiskmatsmaður og
starfaði við það út sinn starfs-
feril.
Útför Arnar fer fram frá Guð-
ríðarkirkju í dag, 6. apríl 2018,
klukkan 15.
f. 2.8. 1937, Sig-
urður Árni, f. 16.9.
1941, og Auður, f.
9.12. 1945.
Örn kvæntist
Jónu Björgu Jóns-
dóttur, f. 10.12.
1938, d. 17.2. 1994.
Eignuðust þau einn
son, Gunnar Örn, f.
21.7. 1969, maki
hans er Ásta
Gunnardóttir, f.
14.12. 1969, og eiga þau fjögur
börn: Ruth, f. 22.11. 1990, Jón
Örn, f. 5.8. 1996, Sigurð Róbert,
f. 14.5. 2001, og Kolfinnu f. 8.8.
2003. Fyrir átti Jóna Björg fjög-
ur börn sem Örn gekk í föð-
urstað en þau eru Guðjón, f. 21.6.
1959, maki Kolbrún, f. 5.11.
1957, og eiga þau þrjú börn,
Rósa, f. 13.3. 1981, Kópur, f. 10.8.
1987, og Birna, f. 26.11. 1990.
Ó pabbi minn, hve undursamleg ást þín
var.
Ó pabbi minn, þú ávallt tókst mitt svar.
Aldrei var neinn, svo ástúðlegur eins og
þú.
Ó pabbi minn, þú ætíð skildir allt.
Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið barn.
Brosandi blítt, þú breyttir sorg í gleði.
Ó pabbi minn, ég dáði þína léttu lund.
Leikandi kátt, þú lékst þér á þinn hátt.
Ó pabbi minn, hve undursamleg ást þín
var.
Æskunnar ómar ylja mér í dag.
(Þorsteinn Sveinsson)
Takk fyrir allt, elsku pabbi
minn. Eitt er það sem aldrei
gleymist, aldrei það er minning
þín.
Þín dóttir
María Magnúsdóttir.
Nú hefur elsku pabbi minn
kvatt í hinsta sinn. Missirinn er
sár en eftir lifa góðar minningar
um góðan pabba og skemmtilegar
stundir sem við áttum saman. Þú
varst alltaf til staðar þegar á
reyndi. Þér vil ég þakka fyrir að
taka mig að þér frá fæðingu minni
eins og ég væri af þínu blóði. Takk
fyrir allt, besti pabbi í heimi.
Þín elskandi dóttir
Helga Sigríður.
Elsku pabbi. Ég veit ekki hvar
ég væri ef ég hefði ekki fengið þig
inn í líf mitt og ég er svo ótrúlega
þakklát fyrir það. Þú varst mér
alltaf svo góður og traustur og ég
væri ekki á þessum stað í lífinu ef
ég hefði ekki fengið þig til að leiða
mig í gegnum það. Allar minning-
arnar mun ég geyma í hjarta mínu
og þín verður sárt saknað en nú
veit ég að þú ert kominn á betri
stað. Í dag er komið að kveðju-
stund, elsku pabbi, ég veit að
mamma og allir hinir hafa tekið
vel á móti þér. Ég mun ávallt
hugsa til þín og góður guð er með
þér.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þín dóttir,
Guðný Rósa.
Elsku afi Össi. Nú ertu kominn
til ömmu Jónu þar sem þið lítið yf-
ir okkur hin, brosið út í annað og
passið upp á okkur saman. Þín
verður svo sárt saknað. Það var
alltaf dásamlegt að hitta þig, hvort
sem það var í Stigahlíðinni, Skúla-
götunni eða Mörkinni. Skemmti-
legast fannst þér þó þegar Valdi
Nonni kom með mér í heimsókn,
þá hafðirðu ekki lengur áhuga á að
spjalla við mig og vildir bara fá að
tala við litla langafastrákinn þinn.
Hann lærði að segja afi Össi í síð-
ustu heimsókninni okkar til þín
aðeins nokkrum dögum áður en
þú fórst, ég er svo þakklát fyrir
það. Ég hlakka til að segja honum
sögur af þér og ömmu þegar hann
stækkar. Elsku afi minn, drauma-
nóttin er komin með fangið fullt af
frið og ró. Góða nótt.
Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys,
hnígur að Ægi gullið röðulblys.
Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd,
og báran kveður vögguljóð við fjarðar
strönd.
Ég er þreyttur, ég er þreyttur,
og ég þrái svefnsins fró.
Kom, draumanótt, með fangið fullt af
friði og ró.
Syngdu mig í svefninn, ljúfi blær.
Sorgmæddu hjarta er hvíldin jafnan vær.
Draumgyðjan ljúfa, ljá mér vinarhönd,
og leið mig um þín töfraglæstu friðar-
lönd.
Ég er þreyttur, ég er þreyttur,
og ég þrái svefnsins fró.
Kom draumanótt, með fangið fullt af
friði og ró.
(Jón frá Ljárskógum)
Tinna, Þorvaldur og
Þorvaldur Jón.
Elsku Örn.
Þá er komið að kveðjustund.
Eins og alltaf þegar við þurfum að
kveðja einhvern okkur nákominn
fallast okkur hendur. Það er
margs að minnast í gegnum árin
en þær minningar geymum við í
hjarta okkar. Örn var þriðji í röð-
inni af okkur níu systkinunum
sem komust upp en alls vorum við
ellefu. Nú hefur verið höggvið
stórt skarð í okkar hóp og eftir
sitjum við fjögur systkinin og
kveðjum. Örn var traustur og góð-
ur bróðir og ekki síður góður
pabbi, afi og vinur vina sinna og
viljum við systkinin þakka honum
samfylgdina í gegnum árin.
Elsku Gunnar Örn, Ásta,
Helga, Róbert, Guðný, Guðlaug-
ur, María, Guðjón og Kolbrún.
Hafið öll þökk fyrir alla þá ást og
umhyggju sem þið sýnduð honum
bróður okkar. Elsku afa- og lang-
afabörnin, þökk fyrir alla ykkar
ást.
Elsku Örn, hafðu þökk fyrir
allt, minning þín lifir með okkur
um ókomin ár.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því.
Þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðn að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um huga minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir,
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Fyrir hönd okkar systkina og
maka,
þín systir
Auður.
Mánudaginn 27. mars lést
móðurbróðir minn Örn Stefáns-
son á Mörkinni í Reykjavík. Örn
var fæddur 2. júlí 1931. Örn var
einn af ellefu systkinum móður
minnar sem komust á legg. Starfs-
ævi Arnar var að mestu tengd sjó-
mennsku og starfaði hann lengi
sem vélstjóri á síðutogaranum
Narfa sem Guðmundur Jörunds-
son gerði út. Örn vann einnig hjá
Hraðfrystistöðinni í Reykjavík.
Það háttaði þannig til að mestöll
fjölskylda frænda fluttist frá
Akureyri til Vestmannaeyja. Örn
og Ólafur bróðir hans fluttust ekki
búferlum til Eyja en heimili Arnar
var lengst af í Reykjavík. Örn átti
það sameiginlegt með öllum
systkinum sínum að vera dugleg-
ur og þar af leiðandi eftirsóttur til
starfa. Það var líka annað sem ein-
kenndi systkinin og það var
snyrtimennska og heiðarleiki.
Þegar ég fór að umgangast Örn á
barnsaldri hafði hann kynnst konu
sinni Jónu Jónsdóttur. Milli okkar
Jónu myndaðist mikill vinskapur
og hélst hann allan þann tíma
meðan Jóna lifði en hún lést árið
1994, var það öllum sem hana
þekktu harmdauði. Örn og Jóna
byggðu sér heimili að Stigahlíð 2 í
Reykjavík og þar bjó stórfjöl-
skyldan. Jóna átti fjögur börn
þegar þau Örn kynntust en saman
eignuðust Örn og Jóna einn son.
Örn reyndist börnum Jónu alltaf
vel og þau hjón lögðu allan sinn
metnað í að búa þeim gott heimili.
Ég og fleiri skyldmenni mín úr
Eyjum vorum oft gestrisni þeirra
aðnjótandi, en foreldrar Arnar
áttu þar gott skjól þegar þau
þurftu að fara frá Eyjum til
Reykjavíkur og leita sér lækn-
inga. Örn og Jóna voru eins og áð-
ur sagði alltaf í góðu sambandi við
fjölskyldu sína í Eyjum, það átti
sérstaklega við þegar eldgosið
hófst í Heimaey 1973. Eftir eld-
gosið tvístraðist fjölskylda Arnar
og nokkur þeirra komu ekki aftur
og leituðu þá aftur á sínar gömlu
heimaslóðir Akureyri, þar á meðal
foreldrar hans. Samheldni syst-
kina Arnar var til fyrirmyndar og
hittust þau oft ásamt stórfjöl-
skyldu sinni víðs vegar um land,
þó aðallega á heimaslóðum norðan
heiða. Nú þegar frændi minn og
nafni er genginn vil ég þakka þeim
hjónum og börnum þeirra alla
væntumþykjuna í minn garð og
fjölskyldu minnar. Ég mun aftur
sem áður hugsa hlýlega til ykkar
þegar ég keyri framhjá Stigahlíð
2.
Farðu í friði, kæri frændi.
Stefán Örn Jónsson.
Örn Stefánsson
Ástkær sambýlismaður minn, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
SIGURBJÖRN H. ÓLAFSSON,
fv. stýrimaður,
Ásbraut 13,
Kópavogi,
lést í faðmi ástvina á Landakoti 4. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
Sigurlaug Sigurðardóttir
Ómar Sigurbjörnsson Kenný Aðalheiður
Heiðar Sigurbjörnsson Rósa Björk Högnadóttir
Oddur F. Sigurbjörnsson Unnur Runólfsdóttir
Sigurður Þorsteinsson Sigurborg Sigurðardóttir
Guðlaug Unnur Þorsteinsd.
Ragnheiður Elfa Þorsteinsd. Pétur Már Ólafsson
Ólafur Þór Þorsteinsson
barnabörn, langafabörn og langalangafabarn