Morgunblaðið - 06.04.2018, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
ICQC 2018-20
» Það var líf og fjörfyrir fullu húsi í Bíó
Paradís í gær þegar Al-
þjóðleg barnakvikmynda-
hátíð í Reykjavík var
sett og er hún sú fimmta
í röðinni. Vísinda-Villi
tók á móti gestum og
bauð upp á ævintýralega
vísindauppákomu og
Hrönn Sveinsdóttir,
framkvæmdastjóri hátíð-
arinnar, setti hátíðina
svo formlega áður en
sýning hófst á opnunar-
myndinni Doktor Prokt-
or og tímabaðkarinu sem
byggð er á samnefndri
bók norska rithöfund-
arins Jo Nesbø.
Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í Reykjavík var sett í Bíó Paradís í gær
Kvikmyndaunnendur Jón Sölvi og Viktor Elí voru spenntir fyrir myndunum.
Með bíópopp Erna Óðný og
Guðrún Árný Eyþórsdætur.
Barnabíó Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, naut skemmtiatriðanna með öðrum gestum hátíðarinnar.
Hátíð sett Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradís, setti barnakvikmyndahátíðina og ávarpaði gesti.
Morgunblaðið/Hari
Lúðrasveit verkalýðsins (LV) held-
ur sína árlegu vortónleika í kvöld í
Kaldalóni Hörpu kl. 20. „Við þetta
tækifæri kynnir LV til sögunnar
nýjan stjórnanda sveitarinnar. Kar-
en Sturlaugsson tók við stjórnar-
taumunum um áramót og eru tón-
leikarnir núna þeir fyrstu undir
hennar stjórn. Karen á að baki
langt og farsælt starf við tónlist og
tónlistarkennslu á Suðurnesjum og
spreytir sig nú á stjórn fullorðins-
lúðrasveitar. Tónlist stórsveitanna
er í miklu uppáhaldi hjá Karen og
því er við hæfi að fyrstu tónleikar
hennar með LV séu með miklu
stórsveitaívafi,“ segir í tilkynningu.
Þar kemur fram að öll músíkin
sem leikin verður var umrituð fyrir
lúðrasveitir. Tónlistin á efnis-
skránni kemur úr ýmsum áttum,
þótt flest laganna eigi að rætur að
rekja til Bandaríkjanna. „Andi
heimsþekktra listamanna á borð
við Quincy Jones, Duke Ellington,
Michael Bublé, Josef Zawinul og
Glenn Miller mun svífa yfir vötn-
um, en auk þess flytur sveitin verk
fjölmargra annarra snillinga. Ein-
söngvari með sveitinni í tveimur
verkum verður Jón Marinó Sig-
urðsson.“ Aðgangur er ókeypis.
Kraftur Lúðrasveit verkalýðsins var stofnuð 1953 og er skipuð ríflega 40
hljóðfæraleikurum. Árlegir vortónleikar hennar fara fram í Kaldalóni.
Lúðrasveit verkalýðs-
ins í Hörpu í kvöld