Morgunblaðið - 13.07.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Nánar á www.BILO.is
Ford Transit D/C 350 Trend
- L3 FWD 3.999.000+vsk
- L3 4WD 5.150.000+vsk
Eigumeinnig 6mannameð sendirými!
LARTILBOÐSVERÐ
Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50
tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans
ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is
.
Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum.
Arctic Star Sæbjúgnahylki
Sæbjúgu
eru þekkt fyrir:
• Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu
líkamans gegn ýmsum sjúkdómum
• Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla
að myndun húðpróteins
og insúlíns
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Grein, þar sem ítalski skurðlækn-
irinn Paolo Macchiarini, var einn
höfunda, birtist í virtu vísinda-
tímariti þótt sænsk siðanefnd hafi
sex mánuðum
fyrr talið hann
ábyrgan fyrir
vísindalegu mis-
ferli vegna
greinaskrifa
hans og fleiri um
plastbarkarann-
sóknir í blaðinu
The Lancet árið
2011.
Vísindatíma-
ritið Science
birti í apríl á vefsíðu sinni
www.sciencemag.org umfjöllun þar
sem fram kemur að Macchiarini
hafi í mars ritað grein í vísinda-
tímaritið Journal of Biomedical
Matrerials Research. Í greininni
var meðal annars fjallað um gervi-
vélinda og stofnfrumur. Macchi-
arini gerði rannsóknina meðan
hann starfaði hjá Kazan Federal-
háskólanum (KFU) í Rússlandi
með styrk frá rússnesku vísinda-
stofnuninni (RFS). Í mars 2017
hætti RFS stuðningi við rann-
sóknina og mánuði síðar var
Macchiarini rekinn frá skólanum.
Þrátt fyrir brottreksturinn notaði
Macchiarini merki háskólans og
netfang sem vísað er til í greininni
og er titlaður sem aðalábyrgðar-
maður greinarinnar.
Science hefur eftir Jeremy Gil-
bert, ritsjóra Journal of Biomedi-
cal Materials Research að ekki
hafi verið vitað um sögu Macchi-
arini þegar ákvörðun var tekin um
að birta greinina.
Macchiarini enn
í vísindaskrifum
Birti í mars grein um gervivélinda
Háskóli Machhiarini starfaði áður
við Kazan Federal University.
Paolo
Macchiarini
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Elías Pétursson, sveitarstjóri
Langanesbyggðar, segir unnið að
gerð samninga vegna mögulegrar
gerðar umskipunarhafnar í Finna-
firði í samvinnu við Bremenport.
„Sveitarstjórnin fól mér í fyrra,
að vinna að gerð samninga og hef-
ur sú vinna staðið að undanförnu,“
sagði Elías í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann segir að lögfræðingar sam-
starfsaðila hafi verið að vinna að
útfærslu einstakra þátta samninga
og sú vinna hafi gengið ágætlega.
Vinna við undirbúninginn hefur
staðið með hléum frá því haustið
2013, en í október það ár var frum-
athugun þýskra sérfræðinga frá
Bremenport, um að Finnafjörður
gæti verið ákjósanlegur staður fyr-
ir umskipunarhöfn í Norður-Atl-
antshafi, kynnt íbúum Langanes-
byggðar og Vopnafjarðar.
Elías segir að sér hafi verið falið
að formgera verkefnið af hálfu
sveitarfélagsins og gera samninga
sem snúa að stofnun þeirra fyr-
irtækja sem til þarf.
Stór og flókin verkefni
„Þetta hefur kannski tekið heldur
lengri tíma en menn vonuðust eftir,
en hér er um stór og flókin verkefni
að ræða. Við gerum okkur vonir um
að sjái fyrir endann á þeirri vinnu
með haustinu,“ sagði Elías.
Hann segir að í kjölfar undirbún-
ingsvinnunnar muni taka við samn-
ingar á milli Bremenport og sveitar-
félagsins. Það verði ekki fyrr en þá
sem hægt verður að fara með verk-
efnið út í heim og leita að meðfjár-
festum með Bremenport. Sveitarfé-
lagið fari sér hægt og sé afar
varkárt og muni alls ekki ganga í
neinar ábyrgðir vegna verkefnisins.
Fram kom árið 2013, að frum-
athugun gaf það góð fyrirheit að
Bremenport vildi skoða til hlítar
hvort það sé hagkvæmt og raun-
hæft að byggja umskipunarhöfn á
svæðinu sem gæti vaxið og stækkað
í umsvifum í áföngum á næstu ára-
tugum samhliða breytingum í norð-
urhöfum.
Áfram unnið að höfn í Finnafirði
Unnið að gerð samninga um höfn í samvinnu við Bremenport Vona að myndin skýrist í haust
Morgunblaðið/Líney
Finnafjörður Þýsku sérfræðingarnir sögðu að Finnafjörður gæti verið ákjósanlegur staður fyrir umskipunarhöfn.