Morgunblaðið - 13.07.2018, Side 16

Morgunblaðið - 13.07.2018, Side 16
BAKSVIÐ Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Ég gæti vel trúað því að fram undan sé húsnæðisskortur og sölutregða samtímis, að nýju,“ segir Ari Skúla- son, hagfræðingur hjá Landsbanka Íslands, í samtali við Morgunblaðið, sem ræddi við hann um nýjustu út- gáfu Hagsjár Landsbanka Íslands, unninni upp úr tölum Hagstofu Ís- lands. Dauf viðskipti með nýjar íbúðir Hann segir að komið hafi á óvart hvað það séu lítil viðskipti með nýjar eignir á höfuðborgarsvæðinu. „Það er sagt að það sé húsnæð- isskortur, en á sama tíma er verið að byggja svakalega mikið og ég hef á tilfinningunni að það sé verið að byggja húsnæði sem fólk vill ekki endilega kaupa. Það hefur ekki kom- ið framboð af þessum minni, ódýrari íbúðum, enda er það lögmál að eftir því sem íbúðir minnka, eftir því verð- ur fermetraverðið hærra.“ Í Hagsjánni kemur m.a. fram að fasteignamarkaðurinn sé mun líf- legri og hafi tekið miklu betur við sér í smærri bæjum úti á landi og smærri bæjunum Mosfells- og Garðabæ á höfuðborgarsvæðinu en í stóru bæjunum þremur á höfuðborg- arsvæðinu, Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, frá fyrsta ársfjórðungi ársins 2013. Fasteignaviðskiptin á öðrum árs- fjórðungi í ár séu alls staðar a.m.k. tvöfalt fleiri en var í upphafi ársins 2013. Mesta fjölgunin hafi orðið í Ár- borg þar sem fjöldi viðskipta hafi meira en fjórfaldast og á Akranesi hafi þau næstum fjórfaldast og svo í Reykjanesbæ. Af sveitarfélögunum sex á höfuðborgarsvæðinu hafi fjöldi viðskiptanna aukist mest í Mos- fellsbæ og Garðabæ á þessu tímabili og minnst í Reykjavík og á Seltjarn- arnesi. Líflegur fasteignamarkaður sé yf- irleitt talinn merki um að hagkerfið gangi vel, en samspil fjöldamargra þátta stjórni því hver eðlilegur fjöldi fasteignaviðskipta sé. „Bæir eins og t.d. Árborg og Reykjanesbær fóru niður eftir hrun- ið, og kannski meira en aðrir. Þeir hafa e.t.v. verið seinni en aðrir að taka við sér. Það er líklegt að aukn- ingin hafi farið fyrr af stað í stærstu bæjunum á höfuðborgarsvæðinu, en þó er athyglisvert að sjá hvað eru miklu líflegri fasteignaviðskipti í smærri bæjunum,“ segir Ari. Ódýrari og þægilegri lóðir Aðspurður hvort draga megi ein- hverjar fleiri ályktanir af þessum niðurstöðum segir Ari, með fyrir- vara um tímabilið (eldri tölur vantaði sums staðar), og að hann hyggist rýna tölurnar enn betur: „Það sem gildir t.d. um Árborg er að þar er hægt að fá lóðir á lægra verði og heyrst hefur frá bygging- arfélögum að það sé ódýrara, þægi- legra og einfaldara, það sé ekki verið að þétta byggð, það er hægt að fá eins og eitthvert tún til að byggja á án þess að það sé eitthvað fyrir o.s.frv. þannig að það eru margir svona þættir sem koma saman sem ákvarða þetta. Líka þessi tilfinning að það sé orðið mjög dýrt á höfuð- borgarsvæðinu, sérstaklega í mið- borg Reykjavíkur, þess vegna íhugi margir að fara annað og jafnvel langt út fyrir höfuðborgina.“ Skortur samhliða framboði Morgunblaðið/Hari Stækkun Selfoss er nú vinsæll til að byggja og kaupa eignir. Kaupendur færa sig » Árborg, Akranes og Reykja- nesbær ásamt Mosfells- og Garðabæ slá í gegn hjá kaup- endum og byggjendum. » Mögulega eru þessir bæir að taka við sér eftir lægðina eftir hrun á eftir stóru bæj- unum á höfuðborgarsvæðinu. » Fleiri þættir spila inn í eins og lóðaverð, lóðaframboð og hvort verið sé að þétta byggð. » Hátt verð í miðborginni á höfuðborgarsvæðinu og fram- boð passar ekki við eft- irspurn.  Líflegur fasteignamarkaður í smærri bæjum á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi  Ódýrara og ein- faldara að byggja þar sem ekki er verið að þétta byggð  Minni, ódýrari íbúðir hafa ekki komið fram 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018 – fyrir dýrin þín Ást og umhyggja fyrir dýrin þín Veldu bosch hundafóður fyrir hundinn þinn Þýskt hágæða fóður – fersk innihaldsefni án aukaefna. Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranes | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is 15 kg 8.990 kr. Renew Nánari upplýsingar á www.geosilica.is Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is Heilbrigð húð Unnið úr 100% náttúrulegum jarðhitakísil og kopar og sink í hreinu íslensku vatni. Getur meðal annars stuðlað að: • Örvun kollagen myndunar • heilbrigði húðar og hárs • lagfæringu skemmda húðar af völdum sólarljóss 13. júlí 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 107.13 107.65 107.39 Sterlingspund 141.6 142.28 141.94 Kanadadalur 81.17 81.65 81.41 Dönsk króna 16.773 16.871 16.822 Norsk króna 13.212 13.29 13.251 Sænsk króna 12.095 12.165 12.13 Svissn. franki 107.31 107.91 107.61 Japanskt jen 0.9512 0.9568 0.954 SDR 150.54 151.44 150.99 Evra 125.05 125.75 125.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 152.0557 Hrávöruverð Gull 1250.0 ($/únsa) Ál 2140.0 ($/tonn) LME Hráolía 78.78 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Alþjóðlega fjár- málatímaritið Eu- romoney hefur val- ið Íslandsbanka besta bankann á Íslandi árið 2018. Þetta er í fimmta sinn sem bankinn hlýtur viðurkenn- inguna. Í tilkynningu frá bankanum segir að við útnefninguna hafi m.a. verið horft til fjárfestinga bankans í grunnstoðum sínum, s.s. innleiðingu á nýju skipulagi, flutningi í nýjar höfuðstöðvar og vinnu við uppfærslu á grunnkerfum sem sé stærsta upplýsingatækniverkefni sem bankinn hafi ráðist í. Jafnframt hafi átt sér stað miklar breytingar í stafrænni þróun. Þá sé efnahagur bankans traust- ur og rekstur stöðugur, bankinn hafi á árinu verið með tímamótaútgáfur á er- lendum skuldabréfum auk þess að vera leiðandi í útgáfu á sértryggðum bréfum á innlendum markaði. Viðskiptavinir hafi á sama tíma verið þeir ánægðustu og starfsánægja starfsmanna mikil. Íslandsbanki valinn bestur af Euromoney Banki Valinn best- ur fimm sinnum. STUTT Hlutabréf Tryggingamiðstöðvarinn- ar lækkuðu um 3,77% í 80 milljóna króna viðskiptum í Kauphöll Íslands í gær. Fall á gengi bréfanna má rekja til afkomuviðvörunar sem fé- lagið sendi frá sér í gær, en þar kem- ur fram að við vinnslu árshlutaupp- gjörs annars ársfjórðungs hafi komið í ljós að afkoma á fjórðungn- um yrði umtalsvert verri en spá fé- lagsins gerði ráð fyrir. Þróun á verð- bréfamörkuðum hafi verið óhagstæð undanfarið, ásamt því að meiri tjóna- kostnaður hafi einnig spilað inn í. Félagið gerir nú ráð fyrir að tap fyrir skatta verði um 200 milljónir króna, en í rekstrarspá félagsins var gert ráð fyrir 500 milljóna króna hagnaði. Fjárfestingatekjur félagsins lækka um rétt rúmlega 300 milljónir króna og verða um 315 milljónir. Samsett hlutfall félagsins verður um 109% í stað 100%, eins og spá gerði ráð fyrir. steingrimur@mbl.is Morgunblaðið/Arnþór Tryggingamiðstöðin Afkoma TM var 700 milljónum króna undir spá. Lækkaði um 4%  Tryggingamiðstöðin gerir ráð fyrir 200 milljóna króna tapi á fjórðungnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.