Morgunblaðið - 13.07.2018, Side 37

Morgunblaðið - 13.07.2018, Side 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018 FÆREYJAR 2 fullorðnir með fólksbíl. verð á mann frá ISK14.700 DANMÖRK 2 fullorðnir með fólksbíl. verð á mann frá ISK27.400 Vikulegar siglingar allt árið til Færeyja og Danmerkur. Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600 Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 | info@smyril-line.is | www.smyrilline.is Taktu bílinn með til Færeyja eða Danmerkur Bæklingurinn okkar fyrir 2018 er kominn út. Í honum finnur þú fullt af tilboðum og verðdæmum. Hægt er að nálgast hann á www.smyrilline.is Bókaðu núna og tryggðu þér pláss Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Mikill tilfinningahiti getur orðið þess valdandi að samræður fari úr böndunum í dag. Reyndu að finna lausn sem sættir öll sjónarmið. 20. apríl - 20. maí  Naut Áður en þú setur afrek einhvers ann- ars á stall, skaltu hugleiða þín eigin. Mundu að ekki er allt sem sýnist og málsbætur liggja ekki alltaf í augum uppi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Heimsmálin eru þér ofarlega í huga og þú finnur til vanmáttar gegn órétt- lætinu. Ef þú vinnur í þínum efasemdum munu þær að lokum hverfa. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú eins og aðrir verður að beygja þig fyrir staðreyndum hvort sem þér er það nú ljúft eða leitt. Mundu að allir hafa eitt- hvað til síns ágætis. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Spennan sem þú finnur fyrir vegna nýrra kynna við einhvern er gagnkvæm. Sinntu þínum áhugamálum og njóttu þess að vera einn með sjálfum þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Óvænt tækifæri berst þér upp í hendurnar og þér er fyrir bestu að nýta þér það til hins ýtrasta. Einhverra hluta vegna eru aðrir einkar vinveittir þér í dag. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú heldur að peningar eigi eftir að leysa vandamál þitt skaltu hugsa þig um tvisvar. Mundu að engin manneskja er ann- ars eign. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er engin ástæða til þess að hætta við verkefni, þótt þú sjáir ekki sjálfur hvernig framhaldið verður. Sýndu staðfestu og tíminn mun leiða málstað þinn í ljós. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að gefa öllum skila- boðum gaum og gefa þér tíma til þess að svara þeim sem til þín leita. Vertu þol- inmóður og hlustaðu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ekki efast um gáfur þínar eða hæfni þína til að taka eigin ákvarðanir. Um- hverfið klappar þér lof í lófa og þú mátt njóta vinsældanna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú vilt tala hreint út við ákveðna aðila og þá skiptir öllu máli hvernig þú berð þig að því. Vertu vakandi yfir hverju því smáatriði sem betur má fara. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þótt þér gangi eitthvað í móti er ástæðulaust að þú takir út vonbrigði þín á þeim sem næst þér standa. Vertu umfram allt þolinmóður. Ólafur Stefánsson skrifar í Leir-inn: „Það hefur orðið einskonar hefð á vorin undanfarið að færa Hjördísi Geirsdóttur söngkonu lítinn brag á afmæli hennar í apríl, þegar við höfum verið í hópnum hennar glaða á suðurslóðum. Bragirnir hafa verið ýmist lesnir eða sungnir yfir og með afmælisbarninu, en nú þótti ekki annað hæfa en að nota lagið hans Weyse við „Hvað er svo glatt“, sem allir kunna. Svo er þekkt að annað lag er til sem smellpassar við Vísur Íslendinga, og má leiða líkur að því að Jónas hafi ort ljóðið við það lag, en það er upprunalega úr frönskum söngleik, en fór svo eftir krókaleið- um gegnum Berlín til Kaup- mannahafnar í öðrum söngleik sem fjallaði um frelsisstríð Pólverja og allir könnuðust við í Köben á þessum árum, ekki síst frelsisþyrstir íslenskir námsmenn sem höfðu alla samúð með þeim sem voru að brjótast úr þjóðaránauð. Þess vegna stóð á söng- blaðinu í Hjartakershúsunum, þegar Vísur Íslendinga voru frumfluttar 1835, ,að lagið væri eins og „Finis Po- lonie“ (það er úti um Pólland). Þetta lag þekktu allir viðstaddir og gátu sungið fullum hálsi um kvöldið. Þetta franska lag heyrist orðið sjaldan, nema ég veit að Hreppamenn nota það, enda smekkmenn og svo er ljóð HKL „Í Hallormsstaðaskógi“ (Blá- fjólu má í birkiskógnum líta) alltaf sungið undir þessu franska lagi. En hér er Hjördísarminni: Það er svo hlýtt með Hjördísi á Tene, sem heldur upp á burðardaginn sinn. Með gullna veig í glasi – nota bene, þá gleði’ og birtu í huga mínum finn. Og gamla hópinn sé ég hér í salnum, að syngja Dísu-lögin snjallt og hátt. Úr Hafnarfirði, Flóa’ og Mosfellsdalnum, er fjöldi mættur enn í góðri sátt. Við látum tímann líða sem í draumi, þótt ljósin dofni’ og halla taki’ í nótt. Og berjumst ekki báru mót né straumi, á barinn sækjum kraft og nýjan þrótt. Og þegar hinstu hjáraddirnar deyja, við höfum gert á veisluföngum skil. Að skilnaði við skulum aftur segja, skál, - og biðja Dísu’ um eitt lag til. Aftur kominn heim yrkir Ólafur: Í sumar naumast sólar naut, en suddi, þoka og regn, og hagmælskan ’ún hvarf á braut, – henni var þetta’ um megn. Jón á Þingeyrum orti: Mesta gull í myrkri og ám mjúkt á lullar grundum, einatt sullast eg á Glám en hálffullur stundum. Ármann Þorgrímsson yrkir um „Ríkissjónvarpið“: Menningu er mikla að fá misjafnt hennar njótum, skortur virðist enginn á andans fæðubótum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hjördísarminni Í klípu „HANN MUN HITTA ÞIG BRÁÐUM. KEYRÐU BARA AFTUR FYRIR BANKANN OG BÍDDU MEÐ VÉLINA Í GANGI.” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „AFI, ÉG MAN EKKI HVORN ÞEIRRA ÞÚ ÁTT.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... einhver sem hugsar um þig dag og nótt. KETTIR ERU FLJÓTIR FLJÓTARI EN ÞAÐ SEM AUGAÐ NEMUR HRÓLFUR! HVERS VEGNA LOSARÐU OKKUR EKKI VIÐ ÞESSA ROTTU? ERTU HRÆDDUR VIÐ HANA? AUÐVITAÐ EKKI! EN ÞAÐ ER KÓNGULÓ VIÐ HLIÐINA Á HENNI! Það eru gömul sannindi og ný aðýmsum gæðum sem hafa veruleg áhrif á líf fólks er gróflega misskipt. Skiptir þá engu hvort um er að ræða peninga og önnur verðmæti, góð störf eða ýmsar vegtyllur sem fólki geta hlotnast – öllu þessu og mörgu öðru virðist, frá sjónarhóli Víkverja, á köflum vera útdeilt handahófs- kennt til fólks og án allrar sanngirni. Þeir sem eiga það besta og mesta skilið fá stundum minnst, alveg sama hvað þeir bera sig eftir því. x x x Lítið stoðar víst að velta sér upp úrþví hvernig á þessu stendur. Lík- lega er besta leiðin til að eiga farsælt líf að gleðjast yfir því sem manni er gefið og reyna að spila sem allra best úr því. x x x En stundum fallast fólki þó henduryfir þessari misskiptingu. Eitt slíkt „handafall“ er akkúrat að eiga sér stað í þessum skrifuðum orðum meðal íbúa á suðvesturhorni landsins sem hafa fengið þær fregnir að á yf- irstandandi sumri hafi 104 ára gam- alt sólarleysismet verið slegið. Mbl.is skrifaði frétt um þetta í gær og vitnaði þar í veðurfræðinginn gamalreynda, Trausta Jónsson, sem þeir sem komnir eru á fullorðnisár muna ugglaust vel eftir úr veður- fréttum sjónvarps fyrir 30 árum eða svo. x x x Fáir eru fróðari um veður og söguveðurfars en Trausti og á blogg- síðu sinni segir hann að það sem sé óvenjulegast við þær 12 vikur sem liðnar séu af sumarmisseri sé sólar- leysið á Suðvesturlandi. Þar skrifar Trausti líka að austur á Dalatanga sé þetta hlýjasta sumar- byrjun í a.m.k. 70 ár. Á Dalatanga! Nú hefur Víkverji ekkert persónu- lega á móti Dalatanga, en eftir því sem næst verður komist eru þeir sem þar búa og njóta allrar þessarar ein- muna veðurblíðu í mesta lagi teljandi á fingrum annarrar handar. Á meðan íbúar höfuðborgarsvæðisins, sem eru um 225 þúsund, vaða vatnselginn í sólarleysinu hvern einasta dag. Betra dæmi um misskiptingu fyr- irfinnst ekki. vikverji@mbl.is Víkverji Því að laun syndarinnar er dauði en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum. (Rómverjabréfið 6.23)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.