Morgunblaðið - 13.07.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018
Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
afsláttur af öllum
útsöluvörum50%
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
Útgerðarfyrirtækið Samherji á
Akureyri hefur keypt markaðs- og
dreifingarfyrirtækið Collins Seafood
og tekið við rekstrinum frá 1. júlí síð-
astliðnum. Collins Seafood er með
höfuðstöðvar í Newton Aycliffe, Du-
ram, suður af Newcastle í Englandi
og er einnig með dreifingarstöð í
Leeds. Í tilkynningu frá Samherja
segir að fyrirtækið selji og dreifi sjó-
frystum flökum í Mið- og Norður-
Englandi til fjölda viðskiptavina sem
séu aðallega „fish and chips“-
veitingastaðir.
Collins Seafood var stofnað fyrir 35
árum af Richard Collins sem mun eft-
ir söluna áfram gegna hlutverki fram-
kvæmdastjóra hjá fyrirtækinu og sjá
um rekstur þess.
Í tilkynningunni segir jafnframt að
velta fyrirtækisins á síðasta rekstrar-
ári hafi verið rúmlega 60 milljónir
punda, eða jafnvirði rúmra 8,5 millj-
arða íslenskra króna, en fyrirtækið
seldi á árinu yfir 10.000 tonn af sjó-
frystum afurðum frá Noregi, Rúss-
landi, Íslandi, Færeyjum og víðar.
Collins Seafood hefur til fjölda ára
verið stór viðskiptavinur Samherja í
Englandi. Hjá fyrirtækinu vinna
rúmlega 30 manns á skrifstofu og við
dreifingu.
Vinna áfram náið með Collins
Seagold, sölufyrirtæki Samherja í
Englandi, hefur í 21 ár séð um sölu og
markaðssetningu afurða Samherja á
breska markaðnum og mun áfram
vinna náið með Collins Seafood að
þeim verkefnum. „Með kaupunum
hefur Samherji styrkt stöðu sína enn
fremur á þessum mikilvæga markaði
fyrir þorsk og ýsu,“ segir í frétta-
tilkynningu Samherja.
Fiskur Samherji hefur lengi átt í viðskiptum við Collins Seafood.
Kaupa enskan
viðskiptavin
Tekjur Collins Seafood námu
60 milljónum punda á síðasta ári
Hlutdeild fjármála- og vátrygginga-
starfsemi í heildarlaunum hefur
lækkað um tæplega 40%, eða 3,8 pró-
sentustig frá árinu 2008. Árið 2008
var hlutdeild fjármála- og vátrygg-
ingarstarfseminnar 9,8% í heildar-
launum á Íslandi, en 6% í fyrra, en
þetta kemur fram í gögnum Hagstof-
unnar.
„Það er mjög einföld ástæða fyrir
þessum samdrætti í hlutdeild fjár-
málastarfseminnar af heildarlaun-
um“, segir Anna Sigríður Halldórs-
dóttir, sérfræðingur hjá
Hagstofunni. „Árið 2008 voru margir
kaupréttasamningar borgaðir, en
einnig hefur fólki fækkað umtalsvert
í þessum geira“.
Heildarlaun hækkuðu um 4,9%
Á fyrsta ársfjórðungi var árs-
hækkun heildarlauna á greidda
stund 4,9%. Hækkunin á almennum
vinnumarkaði nam 4,4% á meðan
5,1% hækkun var í opinbera geiran-
um. Mesta árshækkunin var í at-
vinnugrein vatns- og fráveita eða
7,6% og gisti- og veitingarekstri
6,5%.
Minnst var hækkunin í fjármála-
starfsemi, eða 0,2%, en það skýrist
að mestu af háum kaupauka-
greiðslum á fyrsta fjórðungi 2017. Í
öðrum atvinnugreinum var árs-
hækkunin á bilinu 4,1% til 6,2%.
Ný vísitala hjá Hagstofunni
Vísitala heildarlauna er ný vísitala
sem Hagstofan gaf út í gær, en hún
varpar ljósi á þróun launa þar sem
breytingar á samsetningu vinnuafls
og vinnutíma hafa áhrif.
Vísitala heildarlauna og launavísi-
talan segja ólíka sögu, eins og fram
kemur á vef Hagstofunnar, en sú
fyrrnefnda byggir á öllum greiddum
launum deilt með heildarfjölda
greiddra stunda eftir atvinnugrein-
um. Hún tekur þar með tillit til yf-
irvinnu, kaupauka, árlegra ein-
greiðslna og annarra óreglulegra
þátta sem eru ekki hluti af launa-
vísitölu, enda á sú vísitala að sýna
verðbreytingar á vinnustund fyrir
fasta samsetningu vinnutíma.
Launavísitalan byggir á breytingum
reglulegra launa þar sem hvorki er
tekið tillit til tilfallandi yfirvinnu né
óreglulegra greiðslna.
steingrimur@mbl.is
Samdráttur
fjármálageira
í heildarlaunum
Hlutur fjármálageirans í heildarlaun-
um tæpum 40% lægri nú en árið 2008
Morgunblaðið/Kristinn
Fjármálageirinn Hlutdeild fjármála- og vátryggingastarfsemi var 9,8% í
heildarlaunum á Íslandi 2008, en 6% í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofu.
Veiði