Morgunblaðið - 13.07.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 13.07.2018, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018 ✝ Unnur Þórð-ardóttir fædd- ist á Urðarstíg 15 í Reykjavík 14. júní 1924. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni 29. júní 2018. Foreldrar henn- ar voru Þórður Ei- ríksson, sjómaður og netagerðar- meistari frá Útey í Laugardal, f. 13.10. 1896, d. 5. ágúst 1985, og Jónína Guðrún Steinsdóttir, húsmóðir frá Skúfs- læk í Flóa, f. 17. apríl 1902, d. 16. júní 1974. Yngri systir Unnar er Eiríka Kristín Þórðardóttir, f. 28. mars 1928. Unnur giftist 9. nóvember 1946 Jóni Guðbjartssyni, f. 23.10. 1913, síðar forstjóra í Reykjavík, d. 16. apríl 1979. Börn þeirra eru: 1) Steinn Jónsson læknir, f. 22. júlí 1951, kvæntur Jónínu Björgu Jónasdóttur lögfræðingi, f. 10. október 1950. Börn þeirra eru: a) Jón, f. 19. desember 1976, hagfræðingur í Bandaríkjunum, kvæntur Emi Nakamura hag- fræðingi og eiga þau börnin Od- meðan verið var að byggja hús þeirra á Vesturvallagötu 3. Unn- ur vann þrjú sumur í sveit á ung- lingsárum hjá föðurbróður sín- um Eyvindi Eiríkssyni og Katrínu Bjarnadóttur konu hans í Útey í Laugardal og átti hlýjar minningar um það. Unnur gekk í Miðbæjarskólann og lauk gagn- fræðaprófi frá Ingimarsskól- anum í Reykjavík. Eftir það vann hún við verslunarstörf, lengst af hjá verslun Halla Þórarins á Vesturgötu í Reykjavík. Unnur og Jón hófu búskap sinn og bjuggu lengst af á Vesturvalla- götu 3 en þau byggðu yfir hús Þórðar og Jónínu. Árið 1977 fluttu þau í hús sem þau létu byggja að Sæbraut 18 á Seltjarn- arnesi. Unnur helgaði fjölskyldu sinni, barnabörnum og vinum mest af sínum tíma, hafði yndi af garðrækt og hélt við húsi sínu sjálf. Unnur var manni sínum stoð og stytta í störfum hans, sérstaklega í fjölda viðskipta- ferða til útlanda. Eftir að hann lést sat hún um árabil í stjórn Steinavarar hf. og varastjórn Hampiðjunnar hf. Árið 1996 flutti hún að Þorragötu 9 í Reykjavík þar sem hún bjó þar til 2015, er heilsu hennar fór að hraka. Útför Unnar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag, föstudaginn 13. júlí 2018, og hefst athöfnin kl. 13. in og Völu. b) Hall- grímur, f. 21. ágúst 1978, vélfræðingur og framkvæmda- stjóri í Vest- mannaeyjum, kvæntur Auðbjörgu Höllu Jóhannsdóttir kennara og eiga þau dæturnar Unni Birnu, Hrafnhildi og Önnu Steinunni. c) Þórunn Oddný, f. 27. apríl 1984, lögfræðingur, gift Hjalta Gylfasyni verkfræðingi og eiga þau dæturnar Þóru Mar- íu og Hrafntinnu Líf. 2) Jónína Guðrún Jónsdóttir, f. 15. júní 1956, viðskiptafræðingur, gift Guðmundi Ragnarssyni raf- eindavirkjameistara, f. 14. júní 1956. Sonur þeirra er Kári raf- eindavirki, f. 10. janúar 1982. Sambýliskona hans er Lísa Björk Hjaltested, klæðskera- og kjóla- meistari, og börn þeirra eru Maríanna, Theodór Emil og Jón Stirnir. Unnur ólst upp hjá foreldrum sínum fyrst að Holtsgötu 12 í Reykjavík, en fjölskyldan bjó einnig um tíma í Hafnarfirði Fallin er frá kær tengdamóðir mín. Ég kynntist henni fyrst þeg- ar ég kom inn á heimili þeirra Jóns fyrir hartnær 45 árum. Þá bjuggu þau á Vesturvallagötunni í húsinu þar sem Unnur hafði al- ist upp, í sambýli við foreldra Unnar og seinna með föður henn- ar. Heimili verðandi tengda- foreldra minna var afar fallegt og mikið af fallegum munum. Unnur var mikil húsmóðir sem hafði un- un af því að hugsa um sitt fallega heimili og bera fram góðar veit- ingar. Unnur bjó í sambýli við for- eldra sína og skammt frá bjó Eríka Kristín, systir hennar, sem alltaf var kölluð Stína systir, með eiginmanni og fjórum dætrum. Náið samband var milli þeirra systra og komu fjölskyldurnar mikið saman. Í garðinum á Vest- urvallagötunni var oft marg- menni á sólardögum og mikið gaman. Við Steinn eignuðumst eldri son okkar meðan við vorum enn við nám í háskólanum. Þá opn- aðist faðmur tengdaforeldra minna sem aldrei fyrr. Þau um- vöfðu drenginn ást og umhyggj- an var óendanleg. Unnur var allt- af boðin og búin að hjálpa okkur hvenær sem var. Einhverju sinni hringdi ég og spurði hvort hún gæti komið og passað Jón meðan ég skryppi frá. „Já, alveg sjálf- sagt, ég var að setja köku í ofninn og kem meðan hún er að bakast.“ Eftir að við komum heim frá bú- setu erlendis bjó Unnur skammt frá okkur. Þar áttu börnin okkar þrjú alltaf athvarf og skjól eftir skóla og á frídögum. Hún tók á móti þeim og vinum þeirra og gaf að borða eða drekka. Og veiting- arnar eru í minnum hafðar, eink- um döðlutertan sem aldrei hefur tekist að baka jafngóða og hjá ömmu, þrátt fyrir margar til- raunir. Unnur reyndist mér afar vel, studdi þegar á þurfti að halda og sýndi mér mikla umhyggju. Unnur var há og grönn og mjög myndarleg kona. Hún hafði gott auga fyrir fötum og var alltaf vel tilhöfð. Hún hafði skemmti- lega frásagnargáfu og auga fyrir því spaugilega í fari fólks. Að sitja og spjalla við hana var mjög skemmtilegt, hlusta á frásögur frá liðinni tíð, af gömlum ná- grönnum og ættingjum. Hún kvartaði aldrei, var ánægð með líf sitt og sitt fólk. Á síðustu mánuðum ævinnar talaði Unnur mikið um liðna tíð, foreldra sína og uppvöxtinn. Einnig varð henni tíðrætt um æskuvinkonu sína Guðrúnu Á. Símonar söngkonu. Ég veit að orðið hafa fagnaðarfundir þegar Unnur hitti aftur Jón sinn og aðra ættingja og að nú líður henni vel með þeim. Við sem eftir sitjum yljum okkur við minning- ar um yndislega konu. Hvíl í friði, kæra tengdamóðir. Jónína B. Jónasdóttir. Þegar ég var sjö ára gamall fluttum við fjölskyldan heim frá Bandaríkjunum. Eftir að búa eitt ár í Vesturbænum fluttum við út á Seltjarnarnes steinsnar frá heimili Unnar ömmu. Ég var fljótur að átta mig á því að ég var alltaf velkominn í heimsókn til ömmu og fékk alltaf eitthvað gott í hverri heimsókn. Döðlukökurn- ar voru lengi í miklu uppáhaldi. En vöfflur og smákökur voru líka oft á boðstólum og ef maður kom í hádeginu gat verið svartfugl, lambalundir eða eitthvað af álíka gæðum í matinn. Með matnum fylgdi svo alltaf gott spjall. Marg- ar af þeim sögum sem hún sagði tengdust uppvaxtarárum hennar, ferðum hennar og afa Jóns til út- landa. Madeira og London komu oft við sögu eða vinir hennar eins og Gunna Sím. Vegna þess hvað það var gott að koma í heimsókn urðu heimsóknirnar mjög marg- ar hjá mér og héldu áfram þegar ég var kominn í menntaskóla og amma var flutt á Þorragötuna. Þá gat maður rölt við á Þorragöt- unni á leiðinni út á Nes. Annað skemmtilegt viðfangsefni sem hefur eflaust mótað mitt viðhorf voru sögur af langafa Þórði frá síldarvertíðum og siglingum á stríðsárunum. Það var mikið stolt og ljómi yfir þeim tíma, m.a. þeg- ar hann kom eitt sinn heim af sjónum með hangilæri og flösku og lýsti því yfir að hann væri bú- inn að borga fyrir húsið á Vest- urvallagötunni. Við sem vorum svo lánsöm að hafa varið miklum tíma með Unni ömmu erum örugglega flest und- ir áhrifum frá henni að mörgu leyti. Maturinn sem hún bjó til var hollur og góður. Stíllinn á heimilinu óaðfinnanlegur – Architectural Digest alltaf uppi á borðum. Ég held meira að segja að allir krakkarnir hafi skoðað þessi blöð óspart. Ég minnist þess aldrei að hafa heyrt hana Unni ömmu segja neitt illt um nokkurn mann. Það er mikil huggun þegar maður kveður mannaskju sem er manni jafn kær að vera viss um að hún hafi verið ánægð með sitt líf og stolt af sínu fólki. Vertu sæl, amma Unnur. Ég er þakklátur fyrir allar góðu stundirnar og við munum alltaf sakna þín. Hallgrímur Steinsson. Unnur amma mín var alveg einstök manneskja. Hún var hlý, jákvæð og full af skilyrðislausum kærleik. Þvílík gæfa að fá að alast upp með hana nánast í næsta húsi. Þegar ég var að alast upp var ég í leikskóla og síðar grunn- skóla fyrir hádegi og síðan hjá ömmu Unni eftir hádegi. Hún tók á hverjum degi á móti manni fagnandi með heitan veislumat og í kaffitímanum voru oft bakaðar vöfflur sem vinir mínir fengu að njóta með mér í ófá skipti milli þess sem við lékum okkur í verð- launagarðinum hennar og höfð- um það huggulegt úti í sófa- rólunni. Eftir að amma flutti af Nesinu var rútínan sú sama: hjóla eða taka strætó til ömmu, fá eitthvað gott að borða og hafa það huggu- legt. Það var einhvern veginn alltaf alveg einstök ró og yfirveg- un í kringum ömmu. Hún tók öll- um nákvæmlega eins og þeir voru sem gerði það að verkum að manni leið alltaf vel með henni. Amma Unnur var klár og skynsöm. Hún hugsaði vel bæði um sína eigin heilsu og einnig heilsu okkar barnabarnanna. Hún byrjaði hvern dag á að borða grape og ab-mjólk með hörfræj- um. Hún eldaði hollan mat fyrir okkur barnabörnin og lagði mikla áherslu á að við borðuðum hollan mat. Þegar maður varð svo veik- ur og gat ekki verið hjá henni kom hún með fulla poka af appel- sínum og kíví til að flýta batan- um. Amma hafði mjög gaman af innanhússhönnun og hefði orðið góður arkitekt. Hún hafði auga fyrir fallegum hlutum og þótti gaman að eiga fallegt heimili. Hún var óhrædd við að velja djarfa liti og þótti seinna meir mjög gaman að sjá sína liti vera orðna móðins í blöðum eins og Architectural Digest, sem var mikið skoðað hjá ömmu á Sæ- brautinni. Amma er mín fyrirmynd í flestöllu. Ég fékk aldrei að kynn- ast afa Jóni en það ríkir alltaf ákveðinn ljómi í mínum huga yfir þeirra hjónabandi. Ég minnist þess hve oft við amma sátum saman og skoðuðum gamlar myndir. Þau ferðuðust mikið og það var gaman að heyra sögurnar frá ferðalögunum til London og svo seinna til heitari landa eins og Madeira. Hún var alltaf jafn ánægð með þeirra líf, hve mikið þau nutu lífsins saman. Það gleð- ur mig að hugsa til þess að nú séu þau aftur komin á sama stað. Þórunn Steinsdóttir. Þegar fólk deyr og leiðir skilja fer hugurinn í ferðalag og minn- ingar koma upp. Við andlát Unnar, móðursyst- ur okkar, kemur húsið á Vestur- vallagötu fyrst upp í hugann. Á efri hæðinni bjó Unnur ásamt fjölskyldu sinni en amma og afi á þeirri neðri. Þetta hús og fólkið sem þar bjó var alveg einstakt. Öll okkar bernska er samofin þessu húsi og fólkinu sem þar bjó. Hátíðir, af- mæli, ferðalög og síðast en ekki síst sólríki, skjólgóði og gróður- sæli garðurinn, sem skoskur vin- ur þeirra kallaði porto fino. Stundum fannst okkur eins og við værum ein fjölskylda. Það kom ekki síst í ljós á erfiðum stundum, þá stóðu þau eins og klettur með okkur. Þá var gott að eiga góða að. Unnur var glæsileg og aðsóps- mikil kona. Hún var veraldarvön og þau hjónin ferðuðust mikið á þeim tímum þegar ferðalög voru ekki algeng. Nutum við systurn- ar góðs af því, þar sem hún keypti nýjustu tískuföt þess tíma á okk- ur ekki síður en á sín eigin börn. Hún var söngelsk og á ferðalög- um sínum sá hún ýmsa söngleiki, sem hún flutti heim á Vestur- vallagötu. Oklahoma, South Paci- fic, My Fair Lady. Hún hreif okk- ur með sér og við ferðuðumst með henni í huganum um heims- ins höf. Ógrynni góðra minninga munu lifa með okkur. Hafðu þökk fyrir allt, elsku Unnur. Jóna Maja, Hildur og Þórunn. Nú hefur móðursystir mín, Unnur Þórðardóttir, kvatt þenn- an heim eftir langa og gæfuríka ævi. Eftir situr tómarúm, sem þó fyllist skjótt af dýrmætum ljóslif- andi minningum um elsku Unni. Allt fas Unnar sameinaði full- komlega glaðværð, glettni, al- vöru og myndugleika. Jákvæðni, bjartsýni, velvilji og hlýhugur eru okkur efst í huga þegar við minnumst Unnar. Hún gerði sér ekki rellu út af hlutunum að óþörfu, en var hörkutól þegar því var að skipta og með afar skýra siðferðisvitund og sterkar skoð- anir. Ef einhver var með stæla sem gengu nærri hennar prin- sippum var hún snögg upp á lag- ið, beitti röddinni þannig að ekk- ert fór á milli mála og átti nóg af vel völdum orðum til að vinda hratt og örugglega ofan af vit- leysunni. Hún valdi hins vegar sínar orrustur af kostgæfni, var alltaf yfirveguð og vel tengd við það besta í sjálfri sér og lét ekki stjórnast af öðru en því sem var innra með henni sjálfri. Samfundir við Unni voru eft- irsóknarverðir og bætandi bæði fyrir börnin okkar og okkur sjálf. Hún var frænkan sem var í næsta húsi frá barnæsku og unglings- árum, nálæg alla tíð þótt vega- lengdir á milli yrðu lengri þegar fram liðu stundir. Það var ekki svo sjaldan að öll fjölskyldan kom veltandi inn úr dyrunum óforvar- andis. En það skipti aldrei neinu hvenær bankað var upp á. Alltaf tekið fagnandi með orðum eins og „Mikið er gaman að sjá ykkur“ og dregnar fram dýrindis veitingar sem allir kunnu að meta. Og ekki skorti umræðuefnin. Hún var alltaf áhugasöm um velferð okkar og barnanna og þegar þeim um- ræðum sleppti tóku við góðar sögur úr fortíðinni eða umræður um landsins gagn og nauðsynjar. Þar hafði hún ákveðnar skoðanir og alltaf af nógu að taka. Í ára- raðir var það föst rútína að enda Þorláksmessurúntinn hjá Unni. Hlýjar móttökur hennar og nota- leg kvöldstundin var ómissandi þáttur í jólaundirbúningnum. Unnur var glæsileg kona með mikla útgeislun og það sópaði að henni hvar sem hún kom. Veg- tyllur og metorð var hins vegar ekki eitthvað sem hún gekk fyrir því hennar vettvangur var lífið sjálft. Hún var leiðtoginn í eigin lífi. Í því hlutverki vildi hún vera og augljóst að í því naut hún sín til fulls. Forgangurinn var á hreinu. Velferð og hamingja fjöl- skyldunnar og annarra þeirra sem voru henni kærir skipti öllu og hún naut þess að veita og miðla af öllu sínu án nokkurra skilyrða. Hún missti eiginmann sinn, Jón Guðbjartsson, þegar hún var einungis 55 ára. Þau höfðu alla tíð verið mjög náin og samhent í öllu, en hún hélt ótrauð áfram á sínum eigin forsendum í þau tæpu 40 ár sem hún átti eftir ólifuð. Minningin um Unni verður okkur alltaf dýrmæt og mun ætíð vekja góðar og hlýjar tilfinning- ar. Þannig lifir hún að eilífu í huga okkar og hjarta. Við und- irrituð og börnin okkar, Þórður, Kristján og Fríða, erum þakklát fyrir að hafa fengið að vera henni samferða í allan þennan tíma og fengið að njóta alls þess sem hún hefur af örlæti sínu og rausnar- skap veitt okkur. Björg og Bjarni Snæbjörn. Elsku Unnur frænka mín er látin, 94 ára gömul. Unnur og móðir mín, Hulda Júlíusdóttir, voru systkinabörn en móðir mín dó langt fyrir aldur fram, aðeins 34 ára gömul. Fjögurra ára aldursmunur var á milli þeirra en þrátt fyrir það voru þær góðar vinkonur enda mikill samgangur á milli heimila þeirra. Unnur átti heima á Vesturvallagötu 3 ásamt foreldrum sínum og systur, Stínu (Eiríku Kristínu), en mamma átti heima á Holtsgötu 13 með for- eldrum sínum og systkinum. Af myndum af dæma voru þær oft þrjár saman, svo fallegar og skemmtilegar að sjá. Þegar þær svo stofnuðu heimili bjuggu Unn- ur og Jón heitinn, hennar góði maður, á efri hæð Vesturvalla- götu 3 en foreldrar mínir fluttu í „nýju“ blokkina sem byggð var á lóð ömmu minnar að Holtsgötu 13. Áfram var því mikið nábýli milli þeirra frænkna og okkar af- komenda þeirra. Það var einhvern veginn alltaf svo mikið líf og fjör á Vesturvalla- götunni. Bak við húsið var stór og flottur garður og þar var einstak- lega gott skjól fyrir norðanátt- inni. Þegar sólin skein, sem var mjög oft í minningunni, sóluðu ungu mömmurnar sig og krakk- arnir léku sér. Ég man líka að Unnur átti stórt og flott segul- bandstæki og var búin að taka upp alla skemmtilegustu söng- leikina sem voru svo vinsælir á sjöunda áratugnum, t.d. Okla- homa og South Pacific. Ég held að hún hafi heldur viljað hafa þá á bandi því þá þurfti hún ekki að snúa plötunni við þegar hún var upptekin við að sinna sínu fal- lega, smekklega heimili. Í minn- ingunni söng Unnur hástöfum með. Enn þann dag í dag minna lögin úr þessum söngleikjum mig á Unni frænku. Veturinn 1962-3 dvaldi ég meira og minna hjá þeim Unni, Jóni og börnum. Segja má að Unnur hafi tekið mig að sér þennan vetur en þá var mamma mín orðin mjög veik. Unnur var mér sérstaklega góð og ég minn- ist þess hvað það var oft gaman hjá þeim. Þau fóru með okkur krakkana á skíði í Skíðaskálann í Hveradölum og nestið var heitt kakó og hvítt franskbrauð. Stundum var sunnudagshádegis- matur borðaður á Grillinu á Sögu sem var ævintýralegt. Eftir að mamma féll frá í janúar 1963 var ég áfram hjá þeim um tíma. Ég fékk sérherbergi hjá fjölskyld- unni á Vesturvallagötunni og þau voru mér alveg einstaklega góð, sérstaklega auðvitað Unnur sem var óþreytandi að hugga mig þegar ég var döpur. Í mínum augum voru þau Unnur og Jón sérlega glæsileg og hamingjusöm hjón, svo lífsglöð og skemmtileg og gerðu svo margt skemmtilegt með börnum sínum Steina og Jónu Guðrúnu. Eftir að ég varð fullorðin heimsótti ég Unni frænku nokk- uð reglulega og alltaf fannst mér gott og gaman að hitta hana. Ég kom nokkrum sinnum til hennar eftir að hún fluttist á Sóltún en þar leið henni afskaplega vel. Augljóst var að Unnur var mjög vinsæl meðal starfsfólksins á Sól- túni enda var hún alltaf svo skap- góð, jákvæð og skemmtileg. Ég vil þakka Unni frænku minni þá umhyggju og góðvild sem hún ávallt sýndi mér. Inni- legustu samúðarkveðjur til ykk- ar, elsku Jóna Guðrún og Steini og fjölskyldur. Lára Helga Sveinsdóttir. Unnur Þórðardóttir HINSTA KVEÐJA Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Guðmundur Gunnarsson. „Hver einasti maður hefur sinn tilgang. Hver maður hefur fram að færa einstæða gjöf eða sérstakar gáfur til að gefa öðrum.“ (Deepak Chopra) Lárus var góður vinur og sam- starfsmaður, léttur í lund og vildi leysa hvers manns vanda. Hann var giftur frænku minni sem ég hef alltaf litið upp til í starfi mínu sem hjúkrunarfræðingur. Í samstarfi sem stóð í tæpa þrjá áratugi var oft tekist á um menn og málefni og stefnur í geðheilbrigðismálum. Hann starfaði ötullega að því að koma langveikum vistmönnum sem dvalið höfðu á Kleppsspítala í Lárus Jakob Helgason ✝ Lárus JakobHelgason var fæddur 10. sept- ember 1930. Hann lést 23. júní 2018. Útför Lárusar fór fram 5. júlí 2018. einn til tvo áratugi í sjálfstæða búsetu á vegum Félagsmála- stofnunar og Geð- verndarfélags Ís- lands, ásamt Mar- gréti Sæmunds- dóttur hjúkrunar- fræðingi. Þetta var langtímaverkefni sem tók nokkur ár. Skilningur utanað- komandi og innan Landspítalans var ekki sem skyldi og mættu þau mörgum hindrunum þar að lútandi. Það er einkennilegt að flestir haldi að það sé það sama að starfa með vistmönnum geðdeilda og að skera burt mein á skurðstofu en svo er ekki. Viðhorfsbreyting og skilningur sjúklings á eigin ástandi tekur langan tíma. Að- alsmerki Lárusar var að gefast aldrei upp. Hann hafði trú á að allir gætu óháð aldri breytt um lífsstíl, náð betri tökum á sinni tilveru og aukið sín lífsgæði. Þórunn S. Pálsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.