Morgunblaðið - 13.07.2018, Page 28

Morgunblaðið - 13.07.2018, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018 ✝ ValurTryggvason fæddist 22. mars 1939 í Reykjavík. Hann lést á Vífils- staðaspítala 3. júlí 2018. Foreldrar hans voru Tryggvi Hjálmarsson, f. 17.8. 1906, d. 4.4. 1988, og Auðbjörg Davíðsdóttir, f. 20.6. 1905, d. 28.5. 1959. Systk- ini Vals eru Hilmar Örn Tryggvason, f. 1932, Kristinn Tryggvason, f. 1932, Gústaf Þór Tryggvason, f. 1934, og Auður Tryggvadóttir, f. 1943. Eiginkona Vals er Sigríður Einarsdóttir, f. 26.9. 1943. Börn þeirra eru: 1) Valur E. Valsson, f. 24.12. 1961, maki hans er Kristín Ólafsdóttir, f. 10.7. 1962. Börn þeirra eru Kjartan Ágúst og Sigrún María. 2) Hildur Valsdóttir, f. 26.9. 1964, maki Kristbjörn Óli Guð- mundsson, f. 15.2. 1961. Börn þeirra eru Arna Björk, Kristinn Óli og Eva Kristín. 3) Gunnar Þór Valsson, f. 4.11. 1969, maki hans er Ólöf Magnúsdóttir, f. 20.11. 1973. Börn þeirra eru Þórdís Melsted, Hildur Ýr, Daníel Aron og Arnar Elí. 4) Tryggvi Örn Valsson, f. 14.12. 1974. Sonur hans er Ísar Valur. Barna- barnabörnin eru 8 Útför Vals fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 13. júlí 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku pabbi okkar lést á Vífils- stöðum 3. júlí 2018. Pabbi var ein- staklega ljúfur maður og hafði ró- legt yfirbragð þannig að manni leið alltaf vel í kringum hann. Ef pabbi var á staðnum voru barna- börnin strax komin í fangið á hon- um – hann hafði þessa ósýnilegu áru sem börnin fundu greinilega fyrir. Pabbi var mikill vinnuþjarkur. Hann sinnti ýmsum ábyrgðar- stöðum í gegnum tíðina, t.d. sem deildarstjóri hjá Almennum tryggingum og sem fjármála- stjóri hjá Rafveitu Hafnarfjarðar. Þó blundaði samt alltaf í honum að vinna sjálfstætt og stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Bók- haldsstofu Vals. Við systkinin (Valur og Hildur) urðum þess að- njótandi að vinna við hans hlið til margra ára og var gott að starfa með honum. Pabbi tók sér yfirleitt gott frí á haustin þar sem hann fór með mömmu til útlanda til að hlaða batteríin. Hann hafði gaman af verslunarferðum og minnisstæð er ein ferð þar sem pabbi ætlaði að dressa dótturina upp. Þegar við komum heim og sýndum mömmu varninginn þá fékk hún hálfgert sjokk yfir grænu úlpunni með karrígula fóðrinu sem við höfðum keypt og vorum hæst- ánægð með. Pabbi var mikill náttúruunn- andi á sínum yngri árum og voru ófáar útilegurnar farnar á Þing- velli. Þar var tjaldað og veitt, sem hann hafði sérlega gaman af. Minnisstæðar eru líka veiðiferðir með honum í Sogið en hann var lunkinn veiðimaður og kom aldrei heim öðruvísi en með góðan afla í farteskinu. Hann fékk síðar mik- inn áhuga á hundarækt, fékk sér hund og sökkti sér niður í uppeld- ið á honum og fékk mörg verðlaun á hundasýningum. Pabbi hafði mikla íþróttahæfi- leika sem ungur maður og spilaði m.a handbolta með ÍR og ófáar sögurnar frá honum að lýsa kapp- leikjum í Hálogalandi. Við bræð- urnir stunduðum allir íþróttir líkt og nokkur af hans barnabörnum og barnabarnabörnum og ef ein- hver sýndi hæfileika lét hann það strax í ljós hvaðan þeir hæfileikar kæmu – það væri alveg morgun- ljóst. Pabbi hafði einnig mikinn áhuga á knattspyrnu og mættu hann og mamma á flesta leiki hjá mér (Valur) þar sem ég spilaði með Val. Eftir leiki var farið yfir leikinn, hvernig ég hefði staðið mig og lá hann ekki á skoðunum sínum hvað betur mátti fara hjá mér en hann var líka óspar á hrós- ið ef ég stóð mig vel. Liverpool var í miklu uppáhaldi hjá honum og missti hann sjaldan af leik með þeim. Pabbi var mjög veikur síðast- liðið ár og stóð mamma alla tíð eins og klettur við hans hlið. Hann fékk tíðar lungnabólgur en alltaf reis hann upp úr þeim. Í öllum sínum veikindum sýndi hann ótrúlegan styrk og æðruleysi og alltaf þegar hann var spurður hvernig líðanin væri – var svarið, ég hef það bara fínt. Elsku pabbi, það er mikill söknuður að þér, þú varst fyrir- mynd okkar í lífinu, þú kenndir okkur margt og eitt af því var að gera alltaf sitt besta í öllum verk- efnum lífsins og gefast aldrei upp. Þetta voru ekki bara orð frá þér því þú svo sannarlega sýndir það sjálfur í verki. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur, hvíl í friði, elsku pabbi okkar. Þín börn, Valur, Hildur, Gunnar og Tryggvi. Elsku afi okkar er látinn. Við vorum einstaklega heppin að hafa átt svona margar ánægju- legar stundir með afa. Margar góðar minningar rifjast upp frá Hörgatúninu þegar við fengum að gista hjá afa og ömmu. Okkur þótti svo gaman að fá að leika í sólhúsinu og úti í garði hjá þeim. Það var alltaf gott að koma í heim- sókn til afa því hann tók alltaf svo hlýlega á móti manni og vissi allt- af hvað þurfti til svo við værum ánægð. Afi sýndi barnabörnunum sínum mikla athygli og hafði mik- inn áhuga á því að vita hvað við værum að brasa hverju sinni. Afi var alltaf svo glaður og já- kvæður sama hvað bjátaði á. Mér (Hildi) þykir ótrúlega vænt um að hafa fengið að eyða svona miklum tíma með afa síðustu árin. Við vorum miklir vinir og því mun ég aldrei gleyma. Ég er svo þakklát fyrir að afi varð svo glaður þegar hann vissi að ég ætti von á barni og að dóttir mín hafi fengið tæki- færi til að kynnast elsku afa. Við munum aldrei gleyma þessum minningum og munum sakna þín alla daga. Þórdís, Hildur Ýr, Daníel Aron og Arnar Elí. Elsku afi Valur. Einhvern veginn í minni barns- legu trú hélt ég alltaf að þú yrðir 100 ára. Þannig var bara baráttu- viljinn hjá þér, gamla íþrótta- manninum sem ætlaði ekkert að tapa. Þú kvartaðir ekki einu sinni og varst þakklátur fyrir alla sem hjálpuðu þér. Það er ekki auðvelt að kveðja þig, elsku afi, því þú varst svo mikið gæðablóð. Ég var alltaf mikil afastelpa og á margar góðar minningar frá okkar tíma saman. Aðallega úr Hörgatúninu, enda var ég hálfgerður heimalningur þar öll mín uppvaxtarár. Ég man eftir því að bíða í forstofunni eða úti á tröppunum eftir því að þú kæmir heim úr vinnunni svo við gætum fagnað hvort öðru, ég man eftir að dunda með þér úti í skúr eða í garðinum, labba í sund, fara í pottinn í sólhúsinu, spila á hljóm- borðið, liggja á teppinu á meðan þú horfðir á fótboltaleik, spila tölvuleiki á skrifstofunni þinni, klifra upp í nammiskáp og stelast í nammið þitt. Ísbíltúrar í Vest- urbæinn þar sem þið amma sýnd- uð mér gömul húsakynni. Það var alltaf svo notalegt að vera hjá ykkur. Ferðalögin okkar saman eru líka eftirminnileg, aðallega 3ja vikna ferðin til Spánar þegar við fórum með Óttar nýfæddan, Þú varst svo hress og keyrðir langömmubarnið um allar trissur í vagninum, að starfsfólkið á hót- elinu hélt að þú ættir barnið. Guð minn góður hvað ég sakna þín. Þú sýndir öllu sem ég hef lagt fyrir mig ómældan áhuga, varst alltaf svo stoltur af mér og studdir allar mínar ákvarðanir og allt sem ég hef tekið mér fyrir hendur í gegn- um tíðina. Takk fyrir alla hjálpina í gegn- um allt. Takk fyrir að vera afi minn og fyrir að vera afi strák- anna minna. Takk fyrir samveruna, elsku afi. P.s. Ég kaupi vespuna fljót- lega. Þín Arna. Í dag kveðjum við Val hennar Sirrýjar frænku. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til þeirra Sirrýjar og Vals í Garðabæinn og Hafnarfjörð. Valur hafði mikinn áhuga á íþróttum og fylgdist hann með öllum íþróttum. Á árum áður fórum við sérstak- lega í heimsókn til Vals og Sirrýj- ar til að fylgjast með beinum út- sendingum þar sem þau voru með gervihnattadisk og þar var hægt að fylgjast með viðburðum sem annars voru ekki sýndir hér á landi. Ekki skemmdi fyrir að börn þeirra voru framarlega í sínum íþróttum og var Valur ávallt að fylgjast með þeim og leiðbeina. Valur tók allt af miklli festu sem hann tók sér fyrir hendur eins og þegar þau hjónin tóku sig saman og fengu sér hund, þá var markið sett á fyrsta sætið, og voru hundar þeirra vel tamdir og fallegir. Valur var farsæll í störfum sín- um sem endurskoðandi, virðuleg- ur og gegnheill í samskiptum. Valur hefur verið mikið veikur seinustu árin og hefur verið inn og út af LSH en nú var þrótturinn búinn og kveðjum við góðan dreng. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Elsku Sirrý, börn, tengdabörn og barnabörn, við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Sigurður, Einar Gunnar og Margrét Björg. Valur Tryggvason HINSTA KVEÐJA Elsku tengdapabbi. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (ÞS) Þín Kristín. Elsku Valur minn. Nú hefur þú fengið hvíldina eftir erfið veikindi. Ég mun sakna þín, ástin mín, að eilífu. Gef mér, faðir, ævi alla æðrulaust að dvelja hér, uns þú lætur á mig kalla, í öllu mun ég treysta þér. Þín Sigríður (Sirrý). ✝ Sigríður Guð-jónsdóttir var fædd í Villingadal á Ingjaldssandi í Norður-Ísafjarð- arsýslu 3. apríl 1932. Hún lést á Landspítala við Hringbraut 3. júlí 2018. Foreldrar henn- ar voru Rakel Katr- ín Jóna Jörunds- dóttir, f. á Brekku, Mýrahr., V-Ísafjarðarsýslu, 17. ágúst 1900, d. 6. maí 1956, og Guðjón Guðmundsson, f. í Villingadal, Ingjaldssandi, 2. júlí 1898, d. 8. júní 1980. Systkini Sigríðar: Gísli Guðjón, f. 26. september 1924, d. 2004, Svanborg, f. 21. október 1925, d. 1926, Guðmundur Haga- þeirra eru Aron Eðvarð, Björgvin Steinn og Karen Lilja. B) Katrín Jóna, f. 2. febrúar 1954, dóttir hennar er Rakel Hrund Ágústs- dóttir, f. 1974, maki Sigurður Brynjar Pálsson, þeirra synir eru Sindri Páll, Sölvi Steinn, Sólon Ingi og Salvar Máni. C) Hrönn Theódórsdóttir, f. 7. mars 1959, maki Matthías Harðarson, þeirra dætur eru Arna Björk Árnadóttir, fædd 1978, börn hennar eru Marikó Mist og Máni Snær. Eva Lind Matthíasdóttir, f. 1985, dæt- ur hennar eru Natalía Freyja og Silvía Rán. D) Guðjón Theódórs- son, f. 3. janúar 1963, maki Ellen Ólafsdóttir, synir þeirra eru Jök- ull Guðjónsson, f. 1984, börn hans eru Arnór og Jara. Birkir Guð- jónsson, f. 1987, sambýliskona hans er Ína Sigrún Rúnarsdóttir, sonur þeirra er Maron Darri. Mesta hluta starfsævi sinnar starfaði Sigríður hjá Haraldi Böðvarssyni og co. á Akranesi. Útför Sigríðar fer fram frá Akraneskirkju í dag, 13. júlí 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. lín, f. 9. maí 1927, d. 1993, Eiríkur Sig- urður, f. 30. júní 1929, d. 1993, Guð- berta, f. 9. sept- ember 1934, d. 1999, Sjöfn, f. 16. apríl 1939, d. 1993, Bára, f. 23. febrúar 1943, og Rakel Katrín, f. 10. mars 1959. Börn Sigríðar með fyrrverandi eiginmanni sínum, Theódóri Eð- varði Magnússyni, f. 6. júlí 1932, d. 2. desember 2010, eru: A) Magnús Eðvarð, f. 9. nóvember 1952, börn hans eru Elín Magn- úsdóttir, f. 18. apríl 1984, d. 1. maí 1984, og Björn Aron Magn- ússon, f. 1985, sambýliskona hans er Guðrún B. Úlfarsdóttir, börn Ég er gjörsamlega lömuð af sorg að elsku mamma sé dáin og við ekki lengur til staðar hvor fyr- ir aðra. Mamma var ein dugleg- asta manneskja sem ég veit um. Nánast allan sinn starfsaldur vann hún hjá HB og Co á Akra- nesi en þar lauk hún sinni starfs- ævi 70 ára gömul. Þegar við systkinin vorum yngri kom mamma alltaf heim í hádeginu og eldaði heitan mat fyrir okkur. Á þeim klukkutíma sem hádegishlé varði náði hún að elda mat og ganga frá, það var ekki í hennar anda að koma seint til vinnu. Á síldarárunum var unnið frá morgni til kvölds. Ekki skipti máli á hvaða tíma sólarhringsins eða á hvaða degi síldin barst að landi. Það var bara unnið þegar á þurfti að halda og fengum við krakkarnir stundum að fara með og aðstoða við söltun sem var mjög skemmtilegt. Fyrstu árin eftir að ég eign- aðist dóttur mína Rakel Hrund bjó ég inni á heimili foreldra minna. Það voru ófáar stundirnar sem mamma passaði stelpuna mína og um leið aðstoðaði við uppeldið. Mamma var alveg of- boðslega góð við hana og hefur Rakel mín ávallt litið upp til ömmu sinnar og þykir óendan- lega vænt um hana sem hefur verið svo sannarlega í báðar áttir hjá þeim. Ég er endalaust þakk- lát mömmu fyrir þennan tíma. Mér er minnisstætt eitt sumar þegar mamma var í sumarfríi frá HB í kringum 1987 þá réð hún sig til vinnu í ferðir um hálendi Ís- lands. Hún vann í svokölluðum eldhúsbíl og eldaði mat fyrir er- lenda ferðamenn. Eftir að mamma hætti að vinna 70 ára þá réð hún sig í nokkra mánuði sem au-pair til Þýska- lands, hún var ótrúleg kona og al- gjör nagli. Einnig byrjaði mamma í golfi eftir að hún hætti að vinna og stundaði þá íþrótt þegar færi gafst. Fjölskyldan var mömmu hjart- ans mál og fylgdist hún vel með fólkinu sínu. Stórfjölskyldan hitt- ist nánast öll þegar afmælisveisl- ur voru haldnar. Þær eru ófáar dýrmætu stundirnar sem við fjöl- skyldan höfum átt saman. Minn- isstæð er ferð sem við fórum sam- an fjölskyldan til Frakklands í siglingu í tilefni af sjötugsafmæli mömmu sem og Floridaferð með allri fjölskyldunni fyrir tveim ár- um. Yndislegar minningar. Ein af föstum hefðum fjöl- skyldunnar var að koma saman á jóladag hjá mömmu. Mamma eld- aði þvílíkan veislumat ásamt drekkhlöðnu kökuborði. Mamma bakaði bestu flatkökur, kleinur og pönnukökur sem fyrirfinnast. Síðustu jól gaf ég mömmu minni ferð til Tenerife og ætluð- um við tvær saman í þá ferð 12. febrúar en aldrei fórum við í þessa ferð, því elskuleg móðir mín datt svo illa í lok janúar og lærbrotnaði. Hún náði sér ekki eftir það, sem erfitt er að sætta sig við. Ekki veit ég hvernig lífið verð- ur án þín, elsku mamma mín, þakka þér fyrir samfylgdina. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Katrín Theódórsdóttir. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt, hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa) Kveðjustundir eru erfiðar, hjarta mitt og hugur hefur síð- ustu daga fyllst af minningum um fallegu, góðu og duglegu ömmu mína og þar munu þær lifa um ókomna tíð. Minningar um spilaborgirnar sem risu á stofugólfinu í Merki- gerðinu, nýbakaðar kleinur og sögur sem þú sagðir þegar ég var lítil. Umhyggjan þegar þú baðst mig að klæða mig betur í ófá skipti þegar ég var á unglings- aldri og oftar en ekki lánaðir þú mér vettlinga og eyrnaband áður en ég fór frá þér. Dugnaðurinn sem þú kenndir mér ásamt réttu handtökunum í frystihúsinu, ég er þakklát fyrir hvern dag þegar ég var send „upp til ömmu“ því oftast græddi ég á því samverustund og spjall um allt og ekki neitt. Dætur mínar nýkomnar í heiminn þegar þú komst og hittir þær í fyrsta sinn og alltaf varst þú til staðar fyrir okkur. Aldrei leið afmælisdagur sem við ekki hitt- um þig eða fengum símtal og þú passaðir uppá að ekki liði of langt á milli þess sem þú bauðst stór- fjölskyldunni til þín. Amma, þú varst svo mikill töff- ari, það sýndi sig vel þegar þú skelltir þér í þyrluflug með elstu langömmustrákunum þínum í Florida í fjölskylduferðinni okk- ar. Það hefði bara ekki komið mér á óvart ef þú hefðir ákveðið að koma með mér í fallhlífarstökk. Við stelpurnar erum heppnar að eiga svo margar minningar um þig, elsku amma, nú þegar þú ert komin í sumarlandið. Við kveðj- um þig með trega og söknuði og vitum að þú vakir yfir okkur. Elska þig, amma. Þín Eva Lind. Elsku amma. Það er sárt að setjast niður til að skrifa nokkur minningarorð um þær stundir sem við áttum saman og tilhugsunin um að við hittumst ekki aftur. Þær eru ófá- ar stundirnar sem við höfum setið og spjallað um lífið og tilveruna. Þegar ég hitti þig síðast óraði mig ekki fyrir því að það yrði í síðasta skipti sem við myndum hittast og spjalla saman. Við gát- um spjallað tímunum saman og áttum margt eftir ósagt þegar þú fórst. Samt get ég ekki annað en þakkað þér fyrir allar þær ógleymanlegu stundir sem við áttum saman, það var alltaf gott að kíkja í heimsókn til ömmu Siggu þar sem var alltaf á boð- stólum að fá kleinur og flatkökur með laxi. Þú varst ekki feimin við að láta þínar skoðanir í ljós en tal- aðir aldrei illa um nokkurn mann og vildir öllum vel. Allar minn- ingar sem við eigum saman um jólin, þær sumarbústaðaferðir sem við fórum og auðvitað Flor- ida- og Frakklandsferðir sem stórfjölskyldan fór í, eru brot af fjölmörgum ógleymanlegum minningum. Ég er þakklátur fyr- ir hversu góð mamma þú varst börnunum þínum, hversu góð amma þú varst okkur barnabörn- unum og hversu góð langamma þú varst Maroni Darra. Ég mun stoltur segja börnum mínum sög- ur af ömmu Siggu. Elsku amma Sigga, ég vildi óska þess að ég gæti faðmað þig og átt fleiri sam- töl við þig við eldhúsborðið á Merkigerði og sagt þér fréttir af okkur fjölskyldunni. Ég sakna þín meira en orð fá lýst en veit að þú munt áfram vaka yfir okkur öllum. Þú lifir áfram í hjörtum okkar allra. Hvíl í friði. Birkir Guðjónsson. Sigríður Guðjónsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma. Takk fyrir samfylgdina. Hugsa til þín með bæninni sem þú kenndir mér. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þín Rakel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.