Morgunblaðið - 13.07.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.07.2018, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018 ✝ Edda BáraGuðbjarts- dóttir fæddist í Reykjavík 27. september 1961. Hún lést á gjör- gæsludeild Land- spítalans við Hringbraut 2. júlí 2018. Edda Bára var dóttir Bergljótar Ragnheiðar Láru Þorfinnsdóttur matráðs, f. 30. apríl 1930, d. 10. nóvember 2014, og Guðbjarts Þórðar Pálssonar bifreiðarstjóra, f. 2. ágúst 1924, d. 21. mars 1977. Sambýlismaður Bergljótar frá 1984 var Einar Magnússon, f. 25. september 1928. Systir Eddu Báru sammæðra var Björk Líndal, f. 4. júní 1950, d. 9. mars 2013, börn hennar eru Grímur Atlason, f. 6. desember eru Hulda Kristín, f. 18. júlí 1957, Jóhannes Jökull, f. 3. ágúst 1962, og Sigrún, f. 2. ágúst 1970. Edda Bára ólst upp í Reykjavík, Kópavogi og á sumrin á Raufarhöfn þar sem móðir hennar var matráður og bjuggu þær mæðgur þá í Báru, húsi móðurforeldra hennar. Edda Bára gekk í barnaskóla í Reykjavík og Húsmæðraskólann á Varma- landi. Hún fór snemma á vinnumarkaðinn og starfaði við ýmis umönnunar- og verkamannastörf. Hún var sjó- kokkur á sanddæluskipum eins og móðir hennar og starf- aði um árabil á Sjálfsbjargar- heimilinu. Síðustu árin var Edda Bára heimavinnandi hús- móðir og sinnti listsköpun. Heimili Eddu Báru var opið og eru þau ófá börnin úr nærfjöl- skyldu og vina hennar sem nutu ástríkis og hlýju Eddu Báru. Úför Eddu Báru fer fram frá Háteigskirkju í dag, 13. júlí 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. 1970 en hann er uppeldisbróðir Eddu Báru, og Bergljót Nikulás- dóttir, f. 18. apríl 1985. Systkini Eddu Báru sam- feðra eru Guð- fríður, f. 22. maí 1947, Jón Gestur, f. 13. september 1952, d. 4. ágúst 1990, Birgir, f. 4. ágúst 1966, og Elva Hrönn, f. 2. ágúst 1967. Eiginmaður Eddu Báru og sambýlismaður sl. þrjá áratugi er Ingólfur Jóhannesson stýri- maður, f. 7. júlí 1955. For- eldrar Ingólfs voru Gyða Ásdís Sigfúsdóttir veitingamaður, f. 4. janúar 1935, d. 8. janúar 2002, og Jóhannes Ingólfsson skipstjóri, f. 9. nóvember 1933, d. 6. maí 1995. Systkini Ingólfs Við kynntumst henni Eddu Báru fyrir um 30 árum þegar þau Ingólfur fóru að rugla saman reyt- um. Hún var mikill dýra- og mannvinur. Hún var glaðlynd og elskuleg kona sem vildi öllum allt hið besta. Hún var listræn og eig- um við margt fallegt eftir hana sem hún gaf okkur. Ógleymanleg- ar stundir í sumarhúsum áttum við og þegar hún heimsótti okkur heim til Danmerkur. Við þökkum fyrir það. Elsku Ingólfur bróðir, mágur og frændi. Sendum þér og fjöl- skyldunni okkar innilegustu sam- úðarkveðjur, hugur okkar er hjá ykkur. Minningin um Eddu mun lifa. Ást og hlýja yfir hafið stóra. Þinn bróðir, Jóhannes, Steinunn, Jökull og fjölskylda og Björn Pálmi. Það er svo erfitt að meðtaka það að þú sért búin að kveðja, elsku Edda mín. Ég var svo hepp- in að hafa haft þig alla tíð í mínu lífi. Við ólumst upp saman í tíu ár og okkar á milli voru alltaf sterk bönd eins og hjá systrum. Nú ertu farin til mömmu þinnar sem þú saknaðir svo sárt. Edda var einstök kona sem gaf af sér svo mikla væntumþykju og ást. Minningar úr æsku okkar renna í gegnum hugann á þessari stundu. Manstu þegar við áttum skjald- bökuna, hún hafði ekki hreyft sig í marga daga svo að við héldum að hún væri dáin, fundum stóran eld- spýtustokk og jörðuðum hana, héldum alvöru jarðarför. Þegar mamma þín kom heim úr vinnunni bað hún okkur vinsamlegast að ná í skjaldbökuna því að hún væri bara í dvala. Eða þegar þú varst send á spít- ala, þú varst örugglega 12 eða 13 ára, ég hef verið 6 eða 7 ára, en ég hljóp eins og geðsjúklingur hring- inn í kringum spítalann og öskraði: Edda, komdu heim. Þú komst að sjálfsögðu heim nokkr- um dögum seinna og lofaðir að fara aldrei aftur frá mér. Seinna meir þegar ég var að komast á gelgjuna lánaðir þú mér oft herbergið þitt í kjallaranum á Miklubrautinni. Við upplifðum svo margt saman, bæði gott og slæmt, en þú varst svo dugleg að halda sambandi og fylgdist vel með börnunum mínum og barnabörn- um. Það er svo margs að minnast og margs að sakna, engin Edda að syngja fyrir mig afmælissönginn eins og þú gerðir á hverju ári. Eða fá send öll fallegu listaverkin sem þú gerðir handa mér, svona gæti ég haldið áfram endalaust! Þegar þú komst ekki í minn- ingarathöfn hennar ömmu Rósar fékk ég óþægilega tilfinningu þar sem Birna frænka var nýbúin að segja mér frá draumi sem hana dreymdi um þig, mig og ömmu Rós. Bara ef ég hefði vitað að þetta væri síðast sólarhringurinn sem þú hafðir. Þegar ég kom heim úr athöfninni þá frestaði ég að hringja í þig, svo þegar ég hringdi þá svaraðir þú ekki. Það næsta sem ég vissi var að þú hefðir feng- ið tvö hjartaáföll og þér væri hald- ið sofandi. Á meðan þú svafst var hugur minn allan tímann hjá þér, þegar ég keyrði norður á Rauf- arhöfn og var viðstödd jarðarför hennar ömmu Rósar vonaði ég svo að það væri ekki komið að þér. Þegar ég var að laga til leiðið hjá Diddu systur þinni og ömmu og afa varð mér svo hugsað til þín. Við vorum búnar að plana svo oft að fara saman á Raufarhöfn ég, þú og Begga. En ég var nýkomin heim þaðan þegar Grímur okkar hringdi með fréttirnar að þú værir búin að kveðja. Ég kveð þig, elsku Edda, með sorg í hjarta en minnist um leið glaðlegrar og yndislegrar konu sem ég er svo heppin að hafa alla tíð í mínu hjarta. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín systir, Þóra Sumarlín. Háaleitisbraut, Ásbraut, Miklabraut og Holtsgata. Þarna áttum við Edda Bára heima. Begg’amma var mamma hennar og við ólumst upp hjá henni. Stundum vorum við bara þrjú í heimili en oftast miklu fleiri. Það var aldrei fyrirséð hvað margir áttu heima hjá okkur á hverjum tíma. Ég var vissulega einn af þessum aukamönnum en ég ílengdist og flutti ekki út fyrr en 22 ára. Þóra frænka bjó með okk- ur í nokkur ár og ammalín um tíma og pabbi og mamma alveg í upphafi. Síðan voru það frænk- urnar og frændurnir frá Raufinni og Þórshöfn sem þurftu athvarf í borginni um lengri eða skemmri tíma. Vinir Eddu Báru áttu líka margir athvarf hjá henni og Beg- g’ömmu. Edda Bára var meira stóra systir mín en móðursystir. Ég var eini strákurinn í hafsjó þessara kvenna sem ríktu á heimilinu. Það hafði vissulega sína kosti og á stundum vandræðalegt á yngri unglingsárum þegar umhverfið utan heimilis tók að móta mig en það var sem betur fer bara um hríð. Þær dekruðu mig þessar konur í lífi mínu og Edda Bára hélt áfram að dekra mig og börnin mín til síðasta dags. Afmæli, gift- ingar, fæðingar, stórhátíðir við allskonar önnur tækifæri og ekki tækifæri voru henni tækifæri til að gefa okkur eitthvað. Gjafirnar hennar voru aldrei eitthvað eitt – alltaf fjöldi smágjafa úr öllum átt- um. Líf Eddu Báru var ekki alltaf dans á rósum. Hún var lesblind og skólar á 7. og 8. áratugnum á Ís- landi voru ekkert sérstaklega uppbyggilegar stofnanir. Næmni, listhneigð og tært hjarta hennar fékk ekki notið sín innan veggja skólans. Hún var líkamlega ekki hraust eftir nýrnaveiki á barns- aldri. En það sem Eddu Báru skorti í hlýju og skilningi um- hverfisins á þessum árum gaf hún þeim mun ríkulegar til fólksins í kringum sig alla tíð. Alltaf tók hún á móti mér, líka þegar ég fetaði einstigi neyslunnar. Það var því mjög viðeigandi að 26. febrúar 1995 hafi ég vaknað heima hjá henni og Ingólfi eftir síðasta fyll- eríið mitt. Edda Bára hjúkraði litla frænda og kom á lappir. Aldr- ei fullþakkað. Á Miklubraut 60 var oft margt um manninn og á stundum voru partíin hjá henni Eddu Báru nokkuð löng. Litli frændi var stundum vakandi og spjallaði við gestina. Aldrei tóku þeir mér illa og urðu fljótlega vinir mínir líka. Eina nóttina kenndi Þorleifur Guðjóns mér á bassa og í öðru partíi skrifaði Magnús Þeysari texta á eldhúsrúllu. Eitt sinn þeg- ar ég átti afmæli leigðum við Edda Bára og vinir 12 vídeóspólur kenndar við hrylling og horfum í maraþoni á þær allar. Plötuskáp- urinn hennar varð fljótlega minn og þar fann ég án afskipta og mengunar vina: 10cc, Clash, Stranglers, Talking Heads, Can, Bob Marley og King Crimson. Ammalín, mamma, Begg’amma og Edda Bára eru núna allar farn- ar. Ég finn fyrir miklum söknuði og veröldin er tómleg án þeirra. Jólin verða fátæklegri án gjafanna frá Eddu Báru. Að vera staddur einhvers staðar niðursokkinn í hversdagsleg leiðindi og þá kemur falleg kveðja frá Eddu Báru. Grísakótelettur í raspi og smjöri og Hemmi hundur í pössun að ríf- ast við mig. Ég á eftir að sakna systur minnar. Grímur Atlason. Það er nú erfitt að lýsa Eddu minni með örfáum orðum og ætla ég ekki að reyna það. En mig langar að þakka fyrir mig. Takk fyrir ástina, þessa skilyrðislausu ást og umhyggju sem þú sýndir öllum í kringum þig. Takk fyrir góðu stundirnar sem við áttum og takk fyrir að vera þú. Ég vona að þú sért í góðu kompaníi og bið að heilsa. Ást mætir ást og afli safnar meiri en menn viti; margur dropi verður móða fögur og brunar fram að flæði. (Jónas Hallgrímsson) Bergljót Nikulásdóttir. Elsku Edda. Þú kvaddir okkur allt of fljótt og eftir situr mikill söknuður hjá okkur ættingjum og vinum. Lífið verður fölara og tómlegra án þín og hafa það verið forréttindi að fylgja þér seinustu 30 árin. Hjartahreinni, örlátari og hjálp- samari manneskju en þig var vart hægt að finna. Alltaf boðin og búin að hjálpa og aðstoða ef eitthvað stóð til eða þegar einhver stóð höllum fæti. Það verður eflaust tekið vel á móti þér á áfangastað af fólkinu þínu. Góða ferð, elsku Edda. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Sigrún mágkona. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Góða ferð, elsku vinkona. Sigurbjörg Einarsdóttir (Sibba). Edda Bára Guðbjartsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGÞÓR ÁRMANN INGÓLFSSON, bifvélavirki, Móasíðu 2b, Akureyri, lést á heimili sínu miðvikudaginn 27. júní. Hann var jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 6. júlí í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum ættingjum og vinum hlýhug á þessum erfiða tíma. Sérstakar þakkir færum við lyfjadeild SAK og starfsfólki Heimahlynningar á Akureyri fyrir hlýja og góða umönnun. Þeim sem vilja minnast hans er bent á heimahlynningu og Hollvinasamtök SAK. Guðlaug Jóhannsdóttir börn, tengdabörn barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSTÞÓR KRISTBERG ÓSKARSSON, Fannafold 80, Reykjavík, lést á Krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut sunnudaginn 1. júlí. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Sigrún Pétursdóttir Agnes K. Ástþórsdóttir Benedikt J. Guðlaugsson Óskar Á. Ástþórsson Grétar Einarsson Guðrún Ástþórsdóttir Ingólfur Kristjánsson afabörn og langafabarn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, BIRNA SIGURBJÖRNSDÓTTIR, hjúkrunarfræðingur, lést á dvalarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri að kvöldi föstudagsins 6. júlí. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju, þriðjudaginn 17. júlí klukkan 10.30. Berglind Svavarsdóttir Hildigunnur Svavarsdóttir Ögmundur H. Knútsson Anna Margrét Svavarsdóttir Örvar Þór Jónsson Sveinn Svavarsson Sigyn Sigvarðardóttir og barnabörn Elskulegur bróðir okkar, mágur og vinur, JÓN TRAUSTI STEINGRÍMSSON, Forsæti 8A, Sauðárkróki, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 10. júlí. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 20. júlí klukkan 13.30. Sveinbjörn Steingrímsson Lína Gunnarsdóttir María Steingrímsdóttir Björn Jónsson Arndís Brynjólfsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI J. EYLAND, Víðimýri 8, Akureyri, lést sunnudaginn 8. júlí. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 19. júlí klukkan 13.30. Dóróthea J. Eyland Ólöf Jenny Eyland Sigurður B. Jóhannsson Einar Eyland afa- og langafabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, OTTO DAVID TYNES flugstjóri, lést mánudaginn 2. júlí á Landspítalanum í Fossvogi. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 17. júlí kl 15. Bryndís Guðmundsdóttir Sverrir Tynes Ása Kolka Salome Tynes Pálmi Kristinsson Otto Davið Tynes Gunnar Örn Tynes og aðrir aðstandendur Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.