Morgunblaðið - 13.07.2018, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018 33
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir
Vættagil 32, Akureyri, fnr. 222-6608 , þingl. eig. Fanney Sigrún
Ingvadóttir, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og
Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 17. júlí nk. kl. 10:45.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
12. júlí 2018
Tilkynningar
1.-2. Bifreiðar: Skoda Fabia Combi Active 1,0 MPI
Hver að verðmæti 2.370.000,- kr.
35205 56304
Happdrætti
Gigtarfélags Íslands
Útdráttur 11. júlí 2018
Gigtarfélag Íslands
Birt án ábyrgðar
686
7044
17568
26945
33003
35988
43224
45045
51382
56364
1884
8390
18170
27514
33222
37392
43488
45112
53100
58440
5034
9973
24303
32705
35038
39275
44614
47223
55504
59451
5502
14268
26220
23.-55. Fartölvur Dell Latidue 7480 i5 Kaby Lake 512GB
hver að verðmæti kr. 259.990,-
4450
9953
15431
27996
30724
38563
41263
43235
49443
50619
9174
12345
18741
29551
32309
38582
41783
46706
49815
56732
3.-22. Ferðavinningar (pakkaferð) með Vita til Kanarí
eða Tenerife. Hver að verðmæti 450.000,- kr.
593
10368
16536
24174
28442
32774
39765
45025
51248
56922
712
10462
17009
24258
28731
33218
40717
46026
51412
57559
761
10906
17033
25251
28876
34263
40904
47138
51413
58915
2699
12108
18473
25708
29096
34443
41037
47637
52392
59647
5761
13173
19686
26638
29843
35761
41590
48061
53722
59891
5842
13414
21373
26707
30822
36302
41726
49493
54115
7722
13631
22468
27264
31064
38015
42047
49990
54249
8475
13758
22727
27400
31390
38242
42614
50283
54595
8725
14738
23162
27533
31790
39539
42979
50849
56348
9875
15293
24146
28229
32605
39543
43039
51072
56497
56-150 Vinningar gjafakort í Kringlunni hver vinningur
að verðmæti kr. 150.000,-
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl.
16.15-17. Opið fyrir inni- og útipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45.
Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s. 535-2700.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar.
Hádegisverður frá 11:30-12:30 og kaffisala alla virka daga frá 14:30-
15:30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi í júlí og ágúst. Úti boccia
völlur verður á torginu í sumar og við minnum á skemmtilega
viðburði í hverfinu, Qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga
kl. 11 og sunddans í Sundhöllinni alla miðvikudaga í júlí kl. 13. Vita-
torg, sími: 411-9450
Gjábakki Kl. 20.00 Félagsvist.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, bridge í handavinnustofu kl. 13, bingó kl.
13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Nánari upplýsingar á staðnum
eða í síma 535-2720.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið
kl.8.50, boccia kl.10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá 9-16, Hæðar-
garðsbíó kl.13, síðdegiskaffi kl.14.30, allir velkomnir óháð aldri.
Nánari upplýsingar í Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum klukkan 10:30. Leikfimi í salnum
Skólabraut kl. 11:00. Spilað í króknum kl 13:30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir.
Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4 Dansað sunnudagskvöld kl. 20.00-23.00. Hljómsveit
hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Sumarbústaðalóðir til sölu
í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi . Vaxtalaus lán í allt að eitt ár.
Allar nánari upplýsingar gefur Jón í
síma 896-1864 og á facebook síðu
okkar vaðnes-lóðir til sölu.
Til sölu
Lok á heita potta og hitaveitu-
skeljar
Stærðir í cm: 200x200, 210x210,
220x220, 235x235, 235x217,
217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000
kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein-
angruð og koma með 10 cm svuntu.
Sterkustu lokin á markaðnum. Litir:
Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að
auðvelda opnun á loki.
www.heitirpottar.is
Sími 777 2000 Haffi
og 777 2001 Grétar
Olíuskiljur - fituskiljur
- einagrunarplast
CE vottaðar vörur.
Efni til fráveitulagna.
Vatnsgeymar 100-50.000 lítra.
Borgarplast.is,
sími 5612211, Mosfellsbæ.
Ýmislegt
Inntökupróf verður haldið í
læknisfræði í Jessenius Faculty of
Medicine í Martin Slóvakíu í MK í
Kópavogi 24 ágúst nk.
Uppl. kaldasel@islandia.is
og 8201071
Bílar
Toyota Corolla til sölu
Árg. ‘98. Liftback. Skoðaður '18.
Topp eintak. Verð tilboð.
Upplýsingar í síma 863 7656.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Vantar þig
smið?
FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Smáauglýsingar
sími 569 1100
✝ JóhannesEiríksson
fæddist í Reykja-
vík 23. mars 1938.
Hann lést á Land-
spítala 28. júní
2018.
Foreldrar Jó-
hannesar voru Ei-
ríkur Narfason, f.
8. janúar 1894 frá
Borgarfirði, d. 27.
október 1970 og
Sesselja Jóhannesdóttir, f. 19.
mars 1907 á Akranesi, d. 24.
febrúar 1986. Hálfbróðir Jó-
hannesar var Benedikt Eiríks-
son, f. 26. mars 1932, d. 22.
desember 2016.
Árið 1961 kvæntist Jóhann-
es Bergljótu Guðjónsdóttir, f.
5. desember 1941. Foreldrar
hennar voru Guðjón Sigurðs-
son og Margrét Gunnarsdóttir.
Jóhannes og Bergljót eign-
uðust þrjár dætur. Þær eru; 1)
Margrét Björk, f. 14. febrúar
1960, d. 23. janúar 2013. 2)
Sesselja, f. 9. apríl 1965, gift
Birgi Arnari Birgissyni, f. 18.
apríl 1964. Börn þeirra eru a)
Arnar Páll Birgisson, f. 23.
júlí 1987, í sambúð með An-
gelu Mariu Da C. Dos Santos.
Dóttir þeirra er Anna María, f.
18. desember 2017. b) Jóhanna
Karen, f. 21. janúar 1993. c)
Eygló Björk, f. 5. maí 1999. 3)
Eyrún, f. 21. desember 1970,
gift Einari Aðalsteini Jóns-
syni, f. 4. júlí 1972. Börn
þeirra eru a) Jón Hlífar, f. 9.
ágúst 1997, b)
Bergrún Ósk, f.
18. september
2000, c) Eydís
Birta, f. 29. mars
2004, d) Emelía
Ósk, f. 26. sept-
ember 2007 og e)
Eyrún Ísabella, f.
17. febrúar 2011.
Jóhannes lærði
ungur prentiðn hjá
Gutenberg og
starfaði við það lengst af, bæði
hjá Þjóðviljanum og Blaða-
prenti. Um miðjan aldur vann
hann um hríð sjálfstætt við
prentverk ásamt því að hann
hóf leigubílaakstur sem hann
stundaði allt þangað til hann
hætti störfum um sjötugt.
Hann var alla tíð mikill útivist-
armaður og náttúruunnandi.
Hann gekk mikið um landið,
sérstaklega á yngri árum og
skrifaði ferðapistla um tíma í
Þjóðviljann. Honum voru þjóð-
málin hugleikin og aðhylltist
hann félagshyggju. Auk þess
hafði hann hafði mikinn áhuga
á íslenskum fræðum, rit-
störfum og ljósmyndun. Árið
2006 kom út bók eftir hann
„Njála lifandi komin“ þar sem
hann sameinar þennan áhuga
sinn.
Jóhannes og Bergljót
bjuggu lengst af í Seljahverfi,
en síðustu árin í Kórahverfi í
Kópavogi.
Útför Jóhannesar hefur far-
ið fram í kyrrþey.
Jóhannes Eiríksson frændi
minn er látinn, Hanni frændi
eins og við systkinin úr Þver-
holtinu kölluðum hann. Hanni
var dökkur yfirlitum, hávaxinn
og laglegur. Hanni var skap-
stór en glaðlyndur, næmur,
listhneigður og flinkur ljós-
myndari. Á milli okkar í árum
var nokkuð og áttum við því
minni samleið en ella. Björn
bróðir minn og Hanni voru á
svipuðu reki og voru meira
saman. Sem unglingur leit ég
upp til hans, róttækni og nú-
tímahugsun höfðu aðdráttarafl.
Hann var uppáhaldsfrændi.
Skemmtilegar minningar eru
frá boðum á heimilum þeirra
Björns bróður míns og Guð-
rúnar og Hanna og Berglindar
en þeir frændurnir stóðu fyrir
slíkum veislum ungir menn.
Þetta var nýlunda og gaman að
geta spjallað saman og spilað
fram á rauða nótt. Nánasti ætt-
leggur mömmu var fámennur
en náin tengsl voru milli þeirra
systra, Sesselju móður Hanna
og móður minnar. Hanni var
eina barn Sesselju og hafði
stundum á orði að hann öfund-
aði okkur systkinin að vera svo
mörg. Þegar veislur hafa verið
hjá okkur systkinum hefur
Hanni jafnan verið með.
Hanni lærði prentiðn og
starfaði lengst af á Þjóðvilj-
anum þar sem leiðir okkar lágu
saman á þeim árum sem ég var
þar oft gestur. Hanni var rót-
tækur en þó aldrei virkur í
pólitísku flokksstarfi. Hann var
bókamaður, næmur og við-
kvæmur og áhugamaður um
listir og átti vini úr hópi lista-
manna og bóhema sem mér
unglingnum þótti spennandi.
Ég var krakki þegar hann var
að sýna mér myndir af hinum
kröftugu nútímaverkum Pi-
casso. Hanni skrifaði fallegan
texta og liggja eftir hann
greinaskrif í blöð, ljóð og bóka-
skrif, m.a. einstök útgáfa af
Njáls sögu. Fram til loka var
hann að safna fróðleik og skrá-
setti sagnir og staðhætti. Hanni
var mikill náttúruunnandi,
„grænn“ áður en flokkar og al-
menningur fóru að aðhyllast
slíkan lífsstíl. Hann var útivist-
armaður og skrifaði pistla um
gönguleiðir. Við andlát móður
minnar og síðar föður skrifaði
hann falleg minningarorð sem
mér og systkinum mínum þótti
vænt um. Ég er þakklátur fyrir
að við systkini og makar ásamt
Hanna og Bellu hittumst í vet-
ur eftir nokkurt hlé. Hanni var
þá farinn að kenna sjúkdómsins
sem dró hann til dauða. Ekkert
okkar grunaði þó að sjúkdóm-
urinn gengi svona hratt fram
og var ætlunin að hittast aftur í
sumar en af því verður ekki.
Enn á ég bókina sem Hanni og
Bella, eins og við kölluðum
Berglindi, færðu mér í ferming-
argjöf, Ferð án fyrirheits, með
ljóðum Steins Steinars. Enga
bók hef ég lesið oftar og fylgdi
hún mér í áratugi á öllum ferð-
um. Lífið er ferðalag án fyr-
irheita og reynist misvel. Best
þó þeim sem geta ferðast með
hugsjónir og jafnrétti í farangri
sínum, það gerði Jóhannes Ei-
ríksson sem ég kveð nú að leið-
arlokum. Berglindi, börnum
hans, barnabörnum og vinum
sendum við Agnes samúðar-
kveðju.
Drýpur sól
dagur að baki
langt var ferðast
stikuð fjöll
hverahlíðar
hraun og sandar
gengnar auðnir
grænar heiðar
glaðst með öðrum
fest á filmu
fólk og byggðir
liti jarðar
skráðar sögur
skemmt við lestur
lista notið
hugsjón lyft
heims um jöfnuð
kveð að lokum
kynni þakka
kæri frændi.
Sigurður Magnússon.
Jóhannes
Eiríksson