Morgunblaðið - 13.07.2018, Page 34

Morgunblaðið - 13.07.2018, Page 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2018 María Jóna Magnúsdóttir er fertug í dag. Hún er nýráðin fram-kvæmdastjóri Bílgreinasambandsins og tók við störfum í loksíðasta mánaðar. Hún hefur annars verið í bílabransanum í vel á annan áratug. Byrjaði hjá Toyota árið 2000, var þar til 2010, fer þaðan í banka og síðan til Heklu í tvö ár, þaðan í BGS. Þá útskrifaðist hún úr CBS árið 2012 með meistaragráðu í fjármálum og stefnumótun. Bílgreinasambandið er viðamikil skipulagseining. Aðildarfélögin eru 155 og starfsmenn í greininni hérlendis um 4.000. Að taka við ábyrgð- arstöðu segir María að sé krefjandi á skemmtilegan hátt. „Ég ber sem sagt ábyrgð á Bílgreinasambandinu ásamt stjórn. Það eru mjög spenn- andi tímar framundan og um leið margar áskoranir. Stór verkefni. Ég er ekki stressuð fyrir þessu heldur full bjartsýni.“ Afmælinu fagnar María með ferðalagi vestur um haf. Þar ætlar hún að hitta systur sína, sem er búsett þar. „Ég er hérna í Miami í systra- ferð. Eyði afmælisdeginum í sól og sælu. Það er fínt að eiga svona systrahelgi.“ María er fjölskyldukona. „Ég er ekki fyrir stór afmæli, stór partí eða svoleiðis. Mér finnst best að njóta bara dagsins í faðmi fjölskyldunnar.“ Að öðru leyti er María mikil íþróttakona. Rennir sér á skíðum þegar færi gefst og stundar aðra allsherjarhreyfingu eins og fjallgöngur og líkamsrækt. Kærasti Maríu er Emil Þór Vigfússon, fæddur 1974. snorrim@mbl.is Bjartsýn „Það eru mjög spennandi tímar framundan.“ Í bílabransanum öll sín fullorðinsár María Jóna Magnúsdóttir er fertug í dag Á svaldur Andrésson fædd- ist á Seyðisfirði 13. júlí 1928 og ólst þar upp. Ásvaldur kláraði nám í barna- og unglinga- skólanum 12 ára gamall og fór þá að vinna sem sendill á símstöðinni á Seyðisfirði. Síðar fór hann á vertíðir, veturinn 1944, þá 15 ára gamall, á Djúpavog og veturinn eftir á Horna- fjörð. Hann vann sem beitninga- maður eða það sem var kallað land- maður á þeim tíma. Á æskuárunum á Seyðisfirði var mikið um að vera að sögn Ásvaldar en þar voru hernámslið og Seyðis- fjarðarhöfn var skilgreind sem her- skipahöfn með olíubirgðaskipið El Grillo. Fyrir hádegi þann 16. febrúar 1944 var sprengjum varpað á skipið af þýskum sprengjuflugvélum. Ás- valdur, sem var staddur við glugga heima hjá sér þegar sprengjurnar féllu í sjóinn við framstefni skipsins, var fljótur að hugsa og náði í gamla Kodak-myndavél og hljóp út á tún og náði mynd af skipinu þegar það var að sökkva, fyrst þegar stefnið fór í sjóinn og síðan þegar miðskipið hvarf. Skipið var síðan með skutinn upp úr sjó til kvölds en var síðan sökkt af hernámsliðinu og hvarf sjón- um bæjarbúa. Myndin hefur verið birt víða, meðal annars í bókum þeirra Þórs Whitehead, Friðþórs Ey- dal og Hjálmars Vilhjálmsonar um seinni heimsstyrjöldina og nú síðast í bókinni Stríðsárin 1938 til 1945, eftir Pál Baldvin Baldvinsson. Haustið 1945 flytur Ásvaldur með móður sinni og systur til Keflavíkur en þá um veturinn hafði faðir hans látist eftir skammvinn veikindi og Ás- valdur tók að sér að vera fyrirvinna heimilisins, þá 17 ára gamall. Á Keflavíkurárunum vann Ásvald- ur við ýmis störf, meðal annars í fisk- vinnslu og hjá Keflavíkurbæ á ýms- um tækjum. Einnig við fjölbreytt störf á á Keflavíkurflugvelli hjá hern- um og hjá fyrirtækinu Hamilton, Smith og Beck. Ásvaldur flutti til Reykjavíkur árið 1955 og hóf síðan nám í bifreiðasmíði við Iðnskólann og hjá Agli Vilhjálms- syni hf., hann lauk sveinsprófi 1962 og öðlaðist meistararéttindi 1965. Ás- valdur starfaði á yfirbygginga- og réttingaverkstæði Egils Vilhjálms- sonar hf. í tuttugu og sjö ár en þar af var hann verkstjóri í þrettán ár. Hann fór síðan yfir til trygginga- félaganna og starfaði við tjónaskoðun frá árinu 1983, fyrst hjá Brunabót og eftir sameiningu tryggingafélaganna hjá Sjóvá-Almennum. Ásvaldur lauk starfsævinni hjá Securitas og vann þar allt til ársins 2001 er hann hætti störfum. Ásvaldur hefur verið mjög virkur í félagsmálum alla sína tíð. Hann gekk í Félag bifreiðasmiða að námi loknu, sat í samninganefndum á vegum fé- lagsins, var gjaldkeri þess um skeið og formaður þess í fimmtán ár. Jafn- framt sat hann í stjórn Málm- og skipasmíðasambands Íslands. Þá sat hann í sveinsprófsnefnd fyrir Félag bifreiðasmiða og síðan Bíliðnafélagið á árunum 1972-88. Ásvaldur er í Lionsfélagi Kópa- vogs og hefur verið þar frá árinu 1981. Hann hefur sinnt þar öllum stjórnunarstörfum, verið ritari, for- maður, gjaldkeri og siðameistari. Ásvaldur var stofnfélagi í Seyð- firðafélaginu sem var stofnað í Reykjavík 1981 meðal annars með það að markmiði að kaupa hús til or- lofsdvalar á Seyðisfirði. Hann varð Ásvaldur Andrésson bifreiðasmiður – 90 ára Stórfjölskyldan Samankomin á 85 ára afmælisdegi Ásvaldar fyrir fimm árum. Sá El Grillo sökkva Reykjavík Sigrún Lilja fæddist 6. febrúar 2018. Hún vó 4.720 g og var 54 cm að lengd. Foreldrar hennar eru Baldur Baldvinsson og Nanna Þ. Möller. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.