Morgunblaðið - 26.07.2018, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn
stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra.
Með þér í liði
Alfreð Finnbogason
Landsliðsmaðu attspyrnu
„Tækifærið er núna.“
r í kn
Registered trademark
licensed by Bioiberica
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Parikh er lögmaður að mennt, hún
starfar sem ráðgjafi, markþjálfi,
rithöfundur og fyrirlesari svo eitt-
hvað sé nefnt. Ef þú innritar þig á
skólabekk ástarinnar (school-
oflovenyc.com) muntu læra und-
irstöðuatriði þess að vera hæfur í
ástarsamband. Parikh ritar reglu-
lega greinar á MindBodyGreen. Á
Smartlandi hafa birst greinar þýdd-
ar eftir Parikh, það er því heiður að
ná tali af henni og spyrja hana
beint um málefni ástarinnar.
Sambönd eru erfið!
Hvað getur þú sagt okkur um
skóla ástarinnar?
„Eftir að hafa lent í sársauka-
fullum skilnaði sjálf árið 2008 byrj-
aði ég að rannsaka sambönd, sál-
fræðina á bak við þau og andleg
málefni sem tengjast samböndum.
Mig langaði að svara spurningum á
borð við: Af hverju er okkur svona
mörgum að mistakast? Hvernig
getum við myndað betri sambönd?
Hvernig getum við orðið fyrir-
myndir þegar kemur að ástinni fyr-
ir börnin okkar?
Sambönd eru erfið!
Hefðbundin menntun í skóla
kennir okkur ekki hæfnina til að
vera góð í samböndum. Í skóla
ástarinnar notum við námsskrá sem
fókuserar á þessa þörf okkar, ég
prófaði aðferðirnar sem ég kenni í
skólanum á alþjóðlegu úrtaki.
Niðurstöður rannsóknanna hafa
verið magnaðar. Viðskiptavinir
mínir lýsa minni kvíða og þung-
lyndi, betri svefni og andlegum
styrkleika. Margir hafa meira að
segja orðið ástfangnir í fyrsta
skipti!“
Reyna að vekja maka sinn
Hvað með sambönd almennt, er-
um við að sjá fleiri og fleiri sam-
bönd liðast í sundur?
„Við erum á tímamótum í sögu
okkar, í lykilstöðu gagnvart sam-
böndum. Það er að slitna upp úr
mörgum samböndum, þar sem ann-
ar aðilinn eða báðir eru að færast á
æðra andlegt stig. Þeir fá þessa
andlegu vakningu og reyna að
vekja maka sinn, eða finna annan
maka á þessari hærri tíðni. Það er
verið að kalla okkur til að þjóna
heiminum. Allar þær hugsanir og
hegðun sem skilja okkur að eru úr-
eltar, ný hugsun er að við erum
eitt, eigum mun meira sameiginlegt
en það sem skilur okkur að. Hugs-
anir sem sameina mannkynið. Þessi
andlega vakning felur í sér að við
nærum og græðum gömul sár,
eignumst dýpri skilning á lífinu og
tilgangi lífsins. Þegar við heilumst
getum við hjálpað öðrum að heilast,
þar sem við náum betur að tengjast
og elska aðra þegar við erum frjáls
og vakandi.“
Hvernig vinnur þú með við-
skiptavinum þínum?
„Ég vinn með viðskiptavinum á
mismunandi hátt. Ég nota mark-
þjálfun, maður á mann. Ég kenni
einnig stærri hópum m.a. í gegnum
netið. Allir tímarnir mínir eru mjög
einlægir, svo við leggjum áherslu á
trúnað, það að vera heiðarleg og
segja sannleikann. Ég tek upp
þessa tíma, svo hægt er að nálgast
þá hvar sem þú ert í heiminum. Ég
gef einnig út skriflegt efni les-
endum að kostnaðarlausu.“
Í gegnum sambönd
sjáum við okkur sjálf
Hvað eru sambönd að þínu mati?
„Ást er hæsta stig meðvitundar
að mínu mati. Það er einungis í
gegnum sambönd sem við getum
séð okkur sjálf, okkar eigin galla og
skapgerðarbresti. Þegar okkur
verður á höfum við tilhneigingu til
að vilja gefast upp og hætta við allt
saman. En nú er ekki tíminn til að
hætta, heldur til að fá aðstoð og
færa sig á hærra stig eða í átt að
heilbrigðara fólki.“
Hvað myndir þú segja við þá sem
hafa lokað hjarta sínu fyrir ástinni?
„Það er auðvelt að loka hjartanu,
sér í lagi ef við höfum upplifað
brotið hjarta! Sum hjartasár eru
svo djúp að okkur finnst það að
elska vera of mikil áhætta. Ég skil
þá sem hugsa á þennan hátt að
fullu. En ástin heilar! Finndu þér
ástríkan og auðmjúkan ráðgjafa til
að leiðbeina þér tengt ástinni. Ef
þú getur treyst góðum ráðgjafa
getur þú svo lært að tengjast og
treysta nýju fólki. Með einum degi í
einu, einu skrefi í einu, byggist
hjartað þitt aftur upp, það púslast
saman og þú hefur kjark til að fara
aftur út í veröldina að tengjast öðr-
um. Það er alltaf betra að hafa
elskað og misst en að hafa aldrei
kynnst ástinni.“
Sálufélagar og lífsförunautar
Hver er munurinn að þínu mati á
sálufélaga (e. soul partner) og lífs-
förunaut (e. life partner) í lífinu?
„Sálufélagi þinn getur sært þig á
óbærilegan hátt. Þetta eru vana-
lega sambönd sem enda á drama-
tískan eða óvæntan hátt. Það er í
gegnum þennan óvænta sársauka
sem við horfum inn á við og finnum
leið til að heila sárin okkar og
vakna til lífsins. Eftir slíkt ferðalag
erum við tilbúin í ást á hærra sviði,
sem er ást með lífsförunauti okkar.
Ef þú ert að sinna tilgangi þínum í
lífinu mun lífsförunautur þinn að-
stoða þig við að ná persónulegu
markmiði í lífinu. Þessi sambönd
eru einföld, þau eru hlýleg og þægi-
leg. Þegar viðskiptavinir mínir upp-
lifa erfiðan missi lít ég vanalega á
það sem vísbendingu um að sönn
ást bíði þeirra rétt við hornið.“
Hvað laðar þú til þín þegar kem-
ur að ástinni?
„Ég trúi ekki á að eltast við ást-
ina, heldur að laða ástina til okkar!
Markmiðið okkar er alltaf að vera
einstök útfærsla af ást fyrir okkur
sjálf. Það eru svo margir aðilar í líf-
inu okkar sem við getum æft ást á,
sem dæmi vinir, vinnufélagar, dýrin
okkar, náttúran, vinnan, sambönd
og fjölskyldan. Þeim mun meiri ást
sem við eigum í lífinu, þeim mun
betur líður okkur öllum.“
Heila barnið innra með okkur
Hvernig heilum við barnið innra
með okkur?
„Í fyrstu verður þú að skoða fjöl-
skyldusöguna þína. Hvaða hegðun
sýndu foreldrar þínir þér sem er
dásamleg? Hvað vantaði upp á?
Jafnvel okkar bestu foreldrar geta
skaðað börnin sín á einhvern hátt.
Þegar þú ferð í þetta ferðalag þar
sem þú reynir að skilja, heila og
fyrirgefa, þá heilarðu þig sjálfa og
ferð í áttina að hærri tíðni og meiri
meðvitund.“
Hvað hefur þú heyrt um íslensk-
ar konur?
„Ég hef heyrt að ykkar á meðal
séu sumar af fallegustu konum
heimsins. Þið séuð konurnar sem
haldið á hvað mestum völdum í
heiminum og séuð mjög orkumikl-
ar. Sterkar konur geta án þess að
vera meðvitaðar um það hækkað
pólun í samböndum, sem er yin og
yang sambanda. Ég kenni kraft-
miklum konum að stíga inn í him-
neska meðvitund. Þær verða þann-
ig andlegir leiðtogar sem kalla
maka sína til aukinnar meðvit-
undar.“
Hefur alltaf dreymt
að koma til Íslands
Værir þú til í að heimsækja okk-
ur á Íslandi?
„Algjörlega! Mig hefur alltaf
dreymt um að koma.“
Eitthvað að lokum?
„Að læra að elska er ákveðin
hæfni. Það tekur tíma, skilning og
æfingu að ná tökum á því. Mjög fá-
ir ná því við fyrstu atrennu. Svo
losaðu þig við egóið þitt og æfðu
þig! Fáðu leiðsögn frá ráðgjöfum
og æfðu þig í að finna hluti sem þú
átt sameiginlegt með maka þínum
eða þeim sem þú elskar. Þú færð
ótrúlega mikið til baka úr þessari
vinnu.“
Ást er hæsta stig meðvitundar
Smartland náði tali af
einum vinsælasta
stefnumótamarkþjálfa
New York-borgar. Hún
heitir Monica Parikh og
rekur skóla ástarinnar
þar í borg. Hún segir
ástina heila okkur, að
sálufélagar séu komnir
til að vekja þig og lífs-
félagi til að fylgja þér í
gegnum lífsins ólgusjó.
Vinsæl Monica Parikh er stefnumótamarkþjálfi í New York. Hún er með ráðgjafaskóla sem nefnist School of Love.