Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Björn Bjarnason fjallar um upp-gang Svíþjóðardemókratana í
pistli á heimasíðu sinni og kallar þá
uppnámsflokk: „Í fjölmiðlum og
stjórnmálum hér á landi er gjarnan
vísað til þeirra stjórnmálahreyfinga
sem ná til fleiri kjósenda nú en áður
víða um Evrópu sem popúlista (lýð-
skrumara), öfgaflokka eða kynþátta-
hatara (rasista). Til að lýsa þeim og
eðli þeirra má nota orðið uppnáms-
flokkar. Það orð er
hlutlausara en hin en
lýsir vel eðli flokk-
anna, stefna þeirra
veldur uppnámi, hún
brýtur upp gam-
algróin kerfi.“
Svíar kjósa 9. september og bendirBjörn á að Svíþjóðardemókrat-
arnir mælist með 25% fylgi: „Rekja
má uppruna SD til samtaka rasista,
meðal þeirra sem stóðu að baki stofn-
un flokksins árið 1988 voru félagar í
samtökunum Waffen-SS. SD hefur
reynt að þvo af sér þennan stimpil og
árið 2012 mótaði flokkurinn stefnu
þar sem öllu sem hallast að rasisma
er hafnað. Hefðbundnir sænskir
flokkar eru í öngstræti í umræðunum
um útlendingamál. Þöggunin um
vandann vegna mikils fjölda innflytj-
enda í Svíþjóð skapar jarðveg fyrir
SD. Að þingmönnum annarra flokka
þótti ekki við hæfi að eiga samskipti
við þingmenn SD eftir kosningarnar
2010 skapaði þeim sérstöðu í huga al-
mennings og sænskra kjósenda, þeir
væru ekki hluti af stjórnmálaelítunni
sem neitaði að horfast í augu við þjóð-
félagsvandann sem rekja mætti til út-
lendingastefnunnar.
SD er dæmigerður uppnáms-flokkur. Fylgi sitt má hann
þakka vanmætti annarra sænskra
flokka til að ræða og kynna það sem
hvílir þungt á mörgum kjósendum,
ekki af því að þeir eru rasistar heldur
hinu að þeir telja sig hafa verið
blekkta af fjölmiðlum og stjórn-
málamönnum með fagurgala um
ágæti þess að opna landið fyrir inn-
flytjendum.“
Björn Bjarnason
Uppnámsflokkur
sækir á í Svíþjóð
STAKSTEINAR
Sveinn Yngvi
Egilsson, pró-
fessor í íslensk-
um bókmenntum
við Háskóla
Íslands, flytur á
laugardag fyrir-
lesturinn Vina-
gleði, félagsleg
þýðing bók-
mennta í þjóðern-
islegu samhengi.
Verður erindið flutt klukkan 15 að
Kvoslæk í Fljótshlíð, en að honum
loknum eru kaffiveitingar.
„Ættjarðarljóð eru ekki aðeins ort
til að vera lesin í einrúmi heldur líka
flutt eða sungin á mannamótum.
Þeim er ætlað að sameina þjóðina og
mynda hópkennd eða samstöðu. Í
ættjarðarljóðum er iðulega vísað í
sögu og samtíð en eitt helsta ein-
kenni þeirra er þó landlýsing af ein-
hverju tagi,“ er haft eftir Sveini
Yngva í tilkynningu.
„Meðal verka sem koma við sögu
eru Vinagleði Magnúsar Steph-
ensens, Borðsálmur og Vísur Íslend-
inga eftir Jónas Hallgrímsson og
fleiri kvæði af því tagi eftir íslensk
skáld og erlend,“ segir hann.
Fjallar um
þjóðernis-
leg verk
Fyrirlesturinn
fluttur í Fljótshlíð
Sveinn Yngvi
Egilsson
Skipulagsstofnun telur að bygging
kláfs fyrir ferðafólk í Skálafelli geti
haft í för með sér umtalsverð um-
hverfisáhrif. Þess vegna skuli fyrir-
huguð framkvæmd undirgangast
mat á umhverfisáhrifum.
Skálafell Panorama ehf. hyggst
setja upp kláf frá núverandi bíla-
stæði við rætur Skálafells og upp á
tind fjallsins og koma upp þjónustu-
stöðvum á báðum endum. Leiðin
þarna á milli er um tveir kílómetrar
og hækkun um 400 metrar. Hug-
myndir eru uppi um að koma upp
veitingahúsi á toppnum. Þarf að
leggja veg upp á fjallið og rafmagns-
heimtaug og stækka bílastæðin.
Skipulagsstofnun bendir á í áliti
sínu að gestum muni fjölga mikið á
svæðinu, verði af framkvæmdinni,
miðað við núverandi notkun. Áætlað
er að 150 þúsund gestir fari með
kláfnum á hverju ári, stór hluti á
sumrin. Undanfarna vetur hafi 3-16
þúsund skíðagestir komið þangað á
ári.
Umfangsmikil framkvæmd
Þá séu fyrirhuguð mannvirki um-
fangsmikil og kalli á nánari grein-
ingu og mat, meðal annars á áhrifum
aukinnar umferðar á vegakerfið.
Eðlisbreyting á þjónustu svæðisins
og óvissa um umfang framkvæmda
og slysahættu kalli á umhverfismat.
helgi@mbl.is
Kláfur í Skálafelli í umhverfismat
Skipulagsstofnun telur að eðlisbreyting verði á þjónustu á svæðinu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Salibuna Þessi kláfferja er í Kína.
Veður víða um heim 25.7., kl. 18.00
Reykjavík 12 súld
Bolungarvík 10 alskýjað
Akureyri 13 skýjað
Nuuk 9 léttskýjað
Þórshöfn 13 heiðskírt
Ósló 23 heiðskírt
Kaupmannahöfn 30 heiðskírt
Stokkhólmur 30 heiðskírt
Helsinki 28 heiðskírt
Lúxemborg 33 heiðskírt
Brussel 31 léttskýjað
Dublin 22 skýjað
Glasgow 23 heiðskírt
London 29 skýjað
París 32 heiðskírt
Amsterdam 28 heiðskírt
Hamborg 27 skúrir
Berlín 31 heiðskírt
Vín 26 léttskýjað
Moskva 19 skýjað
Algarve 24 heiðskírt
Madríd 34 heiðskírt
Barcelona 30 heiðskírt
Mallorca 30 heiðskírt
Róm 30 léttskýjað
Aþena 27 rigning
Winnipeg 14 rigning
Montreal 24 skúrir
New York 24 rigning
Chicago 26 heiðskírt
Orlando 30 þrumuveður
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:17 22:53
ÍSAFJÖRÐUR 3:55 23:25
SIGLUFJÖRÐUR 3:37 23:09
DJÚPIVOGUR 3:40 22:29