Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Útsala
Str. 36-56
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Verðhrun
á útsölunni
Enn er hægt að gera góð kaup
Laugavegi 178 • 105 Reykjavík • Sími 555 1516 (póstsendum)
Opið virka daga kl. 11-18 og laugardaga kl. 11-15.
Mikið af myndum á facebook
Verð 12.900 kr.
• Stærð 34-52
• 3 síddir: 76 + 83 + 89 cm
• 3 litir: svart, blátt, beinhvítt
• 2 litir: mosabrúnt, ljósgrátt
= 83 cm
• Stretch
• Háar í mittið
„Betri“
galla-
buxurnar
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
STÓRÚTSALA
50-70% afsláttur
af fatnaði og skóm
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Nýjar vörur streyma inn
Peysukjóll
kr. 9.990
Treggings
kr. 4.980
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Str.
38-58
af æfingafatnaði frá ZHENZI
Ný sending
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Hljómsveitin Guns N’ Roses naut
mikillar hylli meðal þeirra 25 þús-
und gesta sem sóttu stórtónleika
sveitarinnar á þriðjudag. Sýningin
var íburðarmikil að sögn Björns
Teitssonar, upplýsingafulltrúa Sol-
stice Productions. Eldvörpum hafði
verið komið fyrir á hinu risavaxna
sviði auk þess sem flugeldi var
skotið á loft. „Ég hef einungis heyrt
jákvæða hluti um tónleikana og fólk
skemmti sér vel,“ segir Björn.
Þétt og stórt mannhaf myndaðist
á vellinum og voru gestir á öllum
aldri. Tónleikarnir eru þeir fjöl-
mennustu sem hafa verið haldnir á
Íslandi frá upphafi. Björn segir að
þeir gætu opnað dyr fyrir öðrum
heimsþekktum listamönnum. „Þetta
sýnir að Ísland getur tekið við þess-
um allra stærstu listamönnum sem
hafa mögulega verið taldir ófáan-
legir til Íslands áður. Ég held að
fólk í þessum bransa, t.d. tónleika-
haldarar, sé að opna augun fyrir
fleiri risatónleikum í framtíðinni.“
Tónleikarnir gengu prýðilega að
sögn lögreglu. Margir nýttu sér al-
menningssamgöngur til og frá
Laugardalsvelli eða fóru fótgang-
andi. Umferðin gekk því vel að tón-
leikunum loknum. Tiltekt hófst um
leið og sýningunni lauk. Risagólfið
á vellinum var fjarlægt strax að-
faranótt miðvikudags og í gær hélt
tiltektin áfram. Björn segir að í
dag eigi að taka sviðið í sundur og
skila svæðinu eins og tekið var við
því. Umfang sýningarinnar var
mikið að sögn Björns: „Verkefnið
er frábrugðið öðru sem við höfum
gert og gríðarlega krefjandi.
Margt þurfti að smella saman og
það gekk mjög vel. Mikil ánægja
var meðal gesta og við fengum já-
kvæð viðbrögð, sem er mjög dýr-
mætt.“
Aðspurður hvað sjálfum með-
limum Guns N’ Roses hafi fundist
um tónleikana segir hann þá hafa
verið mjög glaða að klára túrinn.
„Ég sá það nú bara á brosinu uppi
á sviði. Þeir hafa staðið sig vel í
vinnunni og geta loksins tekið sér
frí og andað léttar.“
Morgunblaðið/Valli
Stjarna Söngvarinn Axl Rose kunni vel við sig á stóra sviðinu. Viðstaddir klöppuðu, mynduðu og skemmtu sér vel.
Tónleikar Guns N’
Roses fóru vel fram
Ríflega 25 þúsund manns mættu á
Laugardalsvöll Sýningin gekk vel
Viðburðir