Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 42
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Það hefur þó seint stöðvað mig
og eins og lesendur Matarvefsins
hafa ekki farið varhluta af þykir
mér fátt skemmtilegra en að baka
og í mínum huga er brúðarterta
hinn heilagi kaleikur baksturslist-
arinnar. Brúðurin var bless-
unarlega afar raunsæ og hafði litl-
ar sem engar væntingar til
kökunnar sem var kannski ágætt
því fátt er verra en að sanda ekki
undir þeim, hvað þá í brúðkaupi.
Nokkrum mánuðum fyrr hafði
mér tekist að fá pláss á námskeiði
sem Berglind Hreiðarsdóttir, mat-
arbloggari á Gotteri.is í hjáverk-
um, hélt í kökugerð. Berglind er
lesendum Matarvefsins að góðu
kunn enda er hún afburðaflink í
bakstri og almennu heimilishaldi.
Námskeiðið hafði verið í svoköll-
uðum „drip-kökum“ en það eru
háar kökur þar sem súkku-
laðikrem lekur niður hliðarnar.
Námskeiðið var afskaplega lær-
dómsríkt og hef ég bakað eins og
vindurinn með nokkuð góðum ár-
angri síðan. Brúðarterta er hins
vegar allt annars eðlis og ég var
meðvituð um að þrátt fyrir að
brúðurin hefði engar væntingar til
tertunnar þá væru allar líkur á því
að einhverjir gestir hefðu eitthvað
út á gjörninginn að setja. Ég
ákvað því að leita á náðir Berg-
lindar sem góðfúslega féllst á að
hjálpa mér.
Eftir miklar vangaveltur var
ákveðið að hafa kökuna ekki of
stóra heldur gera margar minni.
Auðveldara er að flytja minni kök-
ur á milli staða auk þess sem þær
eru í alla staði meðfærilegri sem
minnkar líkurnar á mistökum tölu-
vert.
Við höfðum því neðri kökuna 20
sentímetra í þvermál og þá efri 15
sentímetra. Ég viðurkenni að ég
var full efasemda en Berglind var
handviss.
Móðir brúðarinnar sá um að
baka sjálfar kökurnar. Þar sem ég
er ekki flink í að baka frá grunni
og reyndar töluvert mótfallin því,
nota ég alltaf tilbúin kökumix og
sjálf notar Berglind alltaf Betty
Crocker sem hún bragðbætir með
súkkulaði Royal-búðingi.
Baksturinn var upp á tíu og það
voru ákaflega fallegar og þéttar
kökur sem mættu í hús uppi í höf-
uðstöðvar Morgunblaðsins daginn
fyrir brúðkaupið.
Fyrsta skrefið var að búa til
smjörkremið og þar studdist ég
við mína eigin uppskrift sem inni-
heldur töluvert minna af sykri og
slatta af rjómaosti. Töfrainni-
haldið er svo kakómalt
sem mér finnst gera
gæfumuninn.
Berglind var fljót að
benda á að smjörkremið
mitt væri helst til of lint til
að kakan héldi sér og því var
búið til mun sykurmeira og
stífara krem. Var því spraut-
að meðfram jaðrinum – í
fallegan hring og síðan
fylltum við upp í með
súkkulaðikreminu.
Með þessum hætti
heldur kakan sér mun
betur.
Þegar búið var
að setja krem
á alla botn-
ana og
raða kök-
unum saman var komið að því að
hjúpa þær.
Notað var hvítt smjörkrem frá
Betty. Hér skiptir miklu máli að
vera með góða spaða og smyrja
kreminu jafnt á en passa að hafa
lagið ekki of þykkt þar sem við
viljum að kakan sjáist í gegn.
Síðan var kremið haft aðeins
þykkara að ofan og passað upp á
að hafa yfirborðið slétt og fallegt.
Berglind sá um það enda afburð-
arflink í kremásetningu.
Skreytingarnar voru afar ein-
faldar en ég notaði sömu blóm og
voru í brúðarvendinum. Mér
fannst það kallast fallega á. Svo
var ég með misháa kökudiska og
í heildina verð ég að viðurkenna
að þetta var eiginlega bara alveg
geggjað. Ég gekk að minnsta
kosti um með myndirnar í viku á
eftir og sýndi öllum sem á vegi
mínum urðu.
Því er skemmst frá að segja að
kakan vakti stormandi lukku í
brúðkaupinu, brúðurin grét,
tengdamamma hafði sjaldan
smakkað betri köku og fyrir mér
var klappað. Meira er víst ekki
hægt að biðja um og því segi ég
bara, takk Berglind!
Súkkulaðismjörkrem
500 g smjör við stofuhita
500 g flórsykur
300 g rjómaostur
4 msk. kakó
4 msk. kakómalt (smakki til)
2 msk. kaffi
Þeytið smjörið vel þar til það
er orðið ægilega fínt og loftkennt.
Bætið þá flórsykrinum og rjóma-
ostinum saman við. Því næst
kakói, kakómalti og kaffi saman
við. Smakkið til.
Bakaðu
þína eigin
brúðartertu
Margur hefði haldið að bakstur á brúðartertu væri
fremur flókinn gjörningur og alls ekki á allra færi og
það er eiginlega hárrétt. Það stöðvaði þó ekki und-
irritaða þegar hún algjörlega óumbeðin bauðst til
þess að baka eitt stykki brúðartertu án þess að
hafa til þess nægilega þekkingu eða getu.
Forkunnarfögur Kakan var í alla staði einstaklega vel heppnuð eins og sjá má.
Morgunblaðið/ÞS
Sérfræðingurinn mætti Hér má sjá Berglindi að störfum.
Morgunblaðið/Valli
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Fullkominn
ferðafélagi