Morgunblaðið - 26.07.2018, Síða 42

Morgunblaðið - 26.07.2018, Síða 42
Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is Það hefur þó seint stöðvað mig og eins og lesendur Matarvefsins hafa ekki farið varhluta af þykir mér fátt skemmtilegra en að baka og í mínum huga er brúðarterta hinn heilagi kaleikur baksturslist- arinnar. Brúðurin var bless- unarlega afar raunsæ og hafði litl- ar sem engar væntingar til kökunnar sem var kannski ágætt því fátt er verra en að sanda ekki undir þeim, hvað þá í brúðkaupi. Nokkrum mánuðum fyrr hafði mér tekist að fá pláss á námskeiði sem Berglind Hreiðarsdóttir, mat- arbloggari á Gotteri.is í hjáverk- um, hélt í kökugerð. Berglind er lesendum Matarvefsins að góðu kunn enda er hún afburðaflink í bakstri og almennu heimilishaldi. Námskeiðið hafði verið í svoköll- uðum „drip-kökum“ en það eru háar kökur þar sem súkku- laðikrem lekur niður hliðarnar. Námskeiðið var afskaplega lær- dómsríkt og hef ég bakað eins og vindurinn með nokkuð góðum ár- angri síðan. Brúðarterta er hins vegar allt annars eðlis og ég var meðvituð um að þrátt fyrir að brúðurin hefði engar væntingar til tertunnar þá væru allar líkur á því að einhverjir gestir hefðu eitthvað út á gjörninginn að setja. Ég ákvað því að leita á náðir Berg- lindar sem góðfúslega féllst á að hjálpa mér. Eftir miklar vangaveltur var ákveðið að hafa kökuna ekki of stóra heldur gera margar minni. Auðveldara er að flytja minni kök- ur á milli staða auk þess sem þær eru í alla staði meðfærilegri sem minnkar líkurnar á mistökum tölu- vert. Við höfðum því neðri kökuna 20 sentímetra í þvermál og þá efri 15 sentímetra. Ég viðurkenni að ég var full efasemda en Berglind var handviss. Móðir brúðarinnar sá um að baka sjálfar kökurnar. Þar sem ég er ekki flink í að baka frá grunni og reyndar töluvert mótfallin því, nota ég alltaf tilbúin kökumix og sjálf notar Berglind alltaf Betty Crocker sem hún bragðbætir með súkkulaði Royal-búðingi. Baksturinn var upp á tíu og það voru ákaflega fallegar og þéttar kökur sem mættu í hús uppi í höf- uðstöðvar Morgunblaðsins daginn fyrir brúðkaupið. Fyrsta skrefið var að búa til smjörkremið og þar studdist ég við mína eigin uppskrift sem inni- heldur töluvert minna af sykri og slatta af rjómaosti. Töfrainni- haldið er svo kakómalt sem mér finnst gera gæfumuninn. Berglind var fljót að benda á að smjörkremið mitt væri helst til of lint til að kakan héldi sér og því var búið til mun sykurmeira og stífara krem. Var því spraut- að meðfram jaðrinum – í fallegan hring og síðan fylltum við upp í með súkkulaðikreminu. Með þessum hætti heldur kakan sér mun betur. Þegar búið var að setja krem á alla botn- ana og raða kök- unum saman var komið að því að hjúpa þær. Notað var hvítt smjörkrem frá Betty. Hér skiptir miklu máli að vera með góða spaða og smyrja kreminu jafnt á en passa að hafa lagið ekki of þykkt þar sem við viljum að kakan sjáist í gegn. Síðan var kremið haft aðeins þykkara að ofan og passað upp á að hafa yfirborðið slétt og fallegt. Berglind sá um það enda afburð- arflink í kremásetningu. Skreytingarnar voru afar ein- faldar en ég notaði sömu blóm og voru í brúðarvendinum. Mér fannst það kallast fallega á. Svo var ég með misháa kökudiska og í heildina verð ég að viðurkenna að þetta var eiginlega bara alveg geggjað. Ég gekk að minnsta kosti um með myndirnar í viku á eftir og sýndi öllum sem á vegi mínum urðu. Því er skemmst frá að segja að kakan vakti stormandi lukku í brúðkaupinu, brúðurin grét, tengdamamma hafði sjaldan smakkað betri köku og fyrir mér var klappað. Meira er víst ekki hægt að biðja um og því segi ég bara, takk Berglind! Súkkulaðismjörkrem 500 g smjör við stofuhita 500 g flórsykur 300 g rjómaostur 4 msk. kakó 4 msk. kakómalt (smakki til) 2 msk. kaffi Þeytið smjörið vel þar til það er orðið ægilega fínt og loftkennt. Bætið þá flórsykrinum og rjóma- ostinum saman við. Því næst kakói, kakómalti og kaffi saman við. Smakkið til. Bakaðu þína eigin brúðartertu Margur hefði haldið að bakstur á brúðartertu væri fremur flókinn gjörningur og alls ekki á allra færi og það er eiginlega hárrétt. Það stöðvaði þó ekki und- irritaða þegar hún algjörlega óumbeðin bauðst til þess að baka eitt stykki brúðartertu án þess að hafa til þess nægilega þekkingu eða getu. Forkunnarfögur Kakan var í alla staði einstaklega vel heppnuð eins og sjá má. Morgunblaðið/ÞS Sérfræðingurinn mætti Hér má sjá Berglindi að störfum. Morgunblaðið/Valli MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018 Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Fullkominn ferðafélagi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.