Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 24
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Keahótelin hafa tekið nýtt hótel, Exeter Hótel, í notkun í
Tryggvagötu í Reykjavík. Þar eru 106 herbergi.
Hótelið verður formlega opnað í dag en tekið var á móti fyrstu
gestum 30. júlí.
Hótelið er í nokkrum nýbyggingum á reit sem afmarkast af
Vesturgötu, Norðurstíg og Tryggvagötu. Milli
þeirra er opinn bakgarður.
Hótelið er nefnt eftir samnefndri verslun
sem var á Tryggvagötu 12. Hefur versl-
unarhúsið verið endurbyggt í upprunalegri
mynd. Exeter-húsið var hækkað um eina hæð
og er veitingarekstur á jarðhæð. Verslunin
var nefnd eftir hafnarborginni Exeter í Bret-
landi. Hún var ein helsta verslun Reykjavíkur.
Í Tryggvagötu 10 stóð nýklassískt, steinsteypt
hús, Fiskhöllin, sem var líka endurbyggt.
Bæði hús voru byggð í byrjun 20. aldar. Fisk-
höllin var um árabil ein vinsælasta fiskbúð
borgarinnar. Við endurbygginguna var turninn á vesturhluta
hússins endurvakinn. Með því fær Norðurstígur nýjan svip.
Skírskotað til sögunnar
Á sínum tíma voru tíðar siglingar milli breskra og íslenskra
hafna. Fiskhöllin og Exeter-húsið voru áberandi byggingar við
höfnina, sem hefur verið færð til norðurs með landfyllingum. Ex-
eter-hótelið er því reist á reit með mikla sögu. Notkun á Fiskhall-
arhúsinu hefur ekki verið ákveðin.
Kostnaður við uppbygginguna er á þriðja milljarð.
Verktakafyrirtækið Mannverk byggði hótelið fyrir fasteigna-
þróunarfélagið Festi sem leigir Keahótelum bygginguna. Exeter-
hótelið er ellefta hótelið í rekstri Keahótela.
Exeter-hótelið er fjögurra stjörnu hótel, svonefnt „konsept“-
hótel. Mikið er lagt upp úr hönnun og upplifun gesta. Á hótelinu
eru stór sameiginleg rými fyrir fólk til að hittast. Opið rými er frá
inngangi við Tryggvagötu og inn að bakgarði. Segir á vef hótels-
ins að með því flæði veitingastaður, bar, setustofa og gestamót-
taka í eitt.
Arkitektarnir Richard Blurton og Sigurður Halldórsson teikn-
uðu hótelið. Þeir sóttu innblástur í höfnina og iðnaðinn í kringum
Slippinn. Herbergin eru teiknuð í nútímalegum iðnaðarstíl. Birt-
ist það meðal annars í ómáluðum veggjum og notkun dökkra lita
og járns. Þessar áherslur eru áberandi á stigagöngum. Með hót-
elinu er leitast við að blása nýju lífi í þetta miðbæjarsvæði og færa
það til fyrri vegs og virðingar.
Veggi þess prýða ljósmyndir og teikningar eftir Hrafnkel Sig-
urðsson listamann. Þau listaverk sækja líka innblástur í sjóinn og
Slippinn. Húsgögn koma frá Epal, Pennanum og Lumex. Meðal
annars voru rúmgaflar sérhannaðir af Glámu Kím.
Á jarðhæð hótelsins, Tryggvagötumegin, er boðið upp á veit-
ingar. Þar er veitingahúsið Le Kock sem býður breytilegan mat-
seðil með skyndibita og götumat. Þar er líka bakaríið Deig sem
býður meðal annars súrdeigsbrauð, beyglur og kleinuhringi. Það
skírskotar til sögunnar. Á reitnum var lengi Cafe Tjörnin, vestan
við Exeter-húsið. Nýr bar, Tail, er við hlið veitingastaðarins. Þar
eru meðal annars fyrstu bjórdælur landsins sem dæla bjórnum
upp í móti. Slíkar dælur eru nú að ryðja sér til rúms á bjórmark-
aðnum.
Tónleikar munu fara fram á útisvæðinu
Gylfi Freyr Guðmundsson er hótelstjóri á Exeter-hótelinu.
Hann segir mikið lagt upp úr upplifun gesta. Móttakan sé inn-
arlega á jarðhæð á bak við veitingarýmin. Þannig muni öðrum
gestum en hótelgestum ekki líða eins og þeir séu á dæmigerðu
hóteli. Gylfi segir að boðið verði upp á lifandi tónlist í veitinga-
rýminu. Þá verði útisvæðið milli hótelbygginganna nýtt fyrir við-
burði og tónleikahald. „Við leggjum mikið upp úr því að skapa
skemmtilegt andrúmsloft. Markhóparnir eru af yngri kynslóðinni.
Þetta er fólk sem notar mikið samskiptamiðla til að afla sér upp-
lýsinga og eins til að deila reynslu sinni,“ segir Gylfi. Hótelið verði
markaðssett á öllum mörkuðum.
Á hótelinu er spa með gufubaði og líkamsræktarsalur. Þessi
þjónusta er hluti af háu þjónustustigi.
„Við leggjum mikla áherslu á persónulega þjónustu. Viðmót
starfsfólks og hversu mikið við náum að aðstoða gestinn á okkar
hátt gera hótelið að því sem það er. Viðmótið er órjúfanlegar hluti
af þjónustu okkar gagnvart gestum. Við sóttum innblástur til ann-
arra hótela í Evrópu sem hafa verið mjög vinsæl. Þá meðal annars
í Þýskalandi. Við skoðuðum hvaða markhópar myndu sækja í
svona hótel og hvernig best væri að ná til þeirra. Hér á andrúms-
loftið að vera léttara og afslappaðra en á mörgum hefðbundnari
gæðahótelum, en jafnframt fagmannlegt og góð þjónusta við gest-
inn í fyrirrúmi,“ segir Gylfi.
Nýbygging Á hótelinu er m.a. boðið upp á líkamsrækt og spa. Við höfnina Horft til sjávar af svölum einnar svítunnar. Le Kock Nýtt veitingahús hefur verið opnað á jarðhæðinni.
Nýtt glæsihótel við höfnina
Keahótel opna Exeter-hótel formlega á morgun Hótel með 106 herbergjum og veitingarýmum
Hótelstjórinn segir mikið lagt upp úr góðri þjónustu Boðið verður upp á tónleika á hótelinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Svíta Setustofa fylgir þessari svítu á efstu hæð hótelsins, Tryggvagötumegin. Inngarður Milli húsanna.
Nýjung Bjórnum er dælt upp
í glös sem eru með segul.
Hönnun Lágmarks-
lýsing er á göngum.
Gylfi Freyr
Guðmundsson
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
Ert þú í söluhugleiðingum?
Við erum til þjónustu reiðubúin
-örugg fasteignaviðskipti
Heiðrún Björk Gísladóttir
Löggiltur fasteignasali og HDL.
Björn Þorri Viktorsson
Löggiltur fasteignasali og HRL.
Elín Viðarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Jóhann Örn B. Benediktsson
Skrifstofu- og fjármálastjóri MBA
Miðborg fasteignasala | Sundagarðar 2 | 104 Reykjavík | Sími 533 4800 | www.midborg.is