Jökull


Jökull - 01.07.2003, Page 66

Jökull - 01.07.2003, Page 66
Oddur Sigurðsson 2. mynd. Leirufjarðarjökull í lok framhlaups, 8. september 2001. Niðri í dalnum sjást garðar eftir fyrri fram- hlaup. – Leirufjarðarjökull, a surge-type glacier at the end of surge September 8 , 2001. A set of terminal moraines from previous surges in the valley in front of the glacier. Ljósm./Photo. Oddur Sigurðsson. ekki eins nákvæmar og skyldi. Hann segir að jökull- inn sé „krímóttur að framan og mynda gömlu ösku- og áfokslögin hin listilegustu mynstur. Hopið er óná- kvæmt því að mælilínan lendir í allbreiðu lóni sem er með mestöllum jaðrinum. Melar fram undan Hjarta- fellinu eru þurrir því að vatn frá fellinu rennur til vest- urs með jökuljaðrinum í lónið. Jökullinn virðist manni lægri með hverju ári. Trúlega hefur hlaupið úr lóninu ofan við Ólafsfell, því að jakar voru með kvíslinni allt niður undir Miklukvísl.“ Múlajökull vestur – Hér er ástandið eins og við Naut- hagajökul að vatnið seytlar með jaðrinum til austurs í lón sem nær langt austur með. Mælistaðurinn er því þurr að kalla og sporðurinn hallalítill og stendur því ef til vill mun framar en mælist og þá neðanjarðar. Vatnasviðið hefur því breyst verulega þar sem vatnið rennur ekki lengur hornrétt frá jöklinum eins og áð- ur. Mælingar á hinum tveim stöðunum við Múlajökul voru felldar niður vegna óvissu. Sátujökull á Lambahrauni – Bragi Skúlason segir svæðið næst jökulröndinni þurrt og kvísl vestan mæl- istaðar mjög vatnslitla. Jökullinn næst jaðri og upp eftir sléttur og ósprunginn. Malar- og grjótdreif ofan mælistaðar. Sátujökull sunnan Eyfirðingahóla – Hlaðin var ný varða (nr. 4) 300 m frá vörðu nr. 3. Jökuljaðar sléttur og sprungulaus. Allt svæðið framan við jaðarinn að þorna upp. EYJAFJALLAJÖKULL Gígjökull – Theodór mældi 20 punkta við jaðarinn með horna- og fjarlægðarmæli frá jarðföstum steini sem kallaður er GIGJ. Jökullinn hopar enn og eru dauðísstykki austan og vestan jökultungunnar. Þá sést í sker í miðjum jökli uppi í hlíðinni. MÝRDALSJÖKULL Sólheimajökull – Feðgarnir Einar Gunnlaugsson og Gunnlaugur Einarsson mæla nú á 6 línum breytingar á jökulsporðinum. Er það rækilega gert enda er Sól- heimajökull nokkurs konar kjölfesta í sporðamæling- um hér á landi. Mælingar þar hafa staðið hnökralít- ið síðan 1930 og hafa sýnt mjög skýrt samhengi við 64 JÖKULL No. 52, 2003

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.