Jökull - 01.07.2003, Blaðsíða 77
Jarðfræðafélag Íslands
Fulltrúi félasins í EFG (European Federation of
Geologists) er Helgi Torfason, en samkvæmt ósk EFG
eru fulltrúar skipaðir til a.m.k. 5 ára svo samfella geti
orðið í starfi þess. Helgi varð fulltrúi jarðfræðafélags-
ins árið 2002 er það gekk í EFG.
Stjórn Sigurðarsjóðs var eftirfarandi: Helga Torfa-
syni (formaður er sjálfskipaður), Guðrún Þ. Larsen og
Tómas Jóhannesson. Enginn kom á vegum sjóðsins
til fyrirlestrahalds á starfsárinu.
FÉLAGSGJÖLD
Fjárhagur félagsins er góður og ekki ástæða til að
hækka árgjald mikið þetta árið, en það hefur verið
óbreytt frá 1999, 1500 kr. Hækkun í 1.800 kr. var
samþykkt á aðalfundi.
NÝIR FÉLAGAR
Eftirfarandi voru samþykktir einróma á aðalfundi sem
nýir félagar í Jarðfræðafélagi Íslands: Börge Wigum,
Sigurður Jakobsson, Esther Ruth Guðmundsdóttir,
Magnus Johansson, Haraldur Karlsson, Stefán Geir
Árnason, Erik Sturkell, Victoria Taylor, Jóhann Örn
Friðsteinsson og Kristín Jónsdóttir.
Helgi Torfason
JÖKULL No. 52, 2003 75