Jökull - 01.07.2003, Blaðsíða 82
Steinunn S. Jakobsdóttir
Í október hófst svo smíði Esjufjallaskála og fer sú
smíði fram í portinu hjá trésmiðjunni Brim í Hafnar-
firði. Var skálinn gerður fokheldur, hann glerjaður og
þiljaður að innan fyrir árshátíð. Var hann síðan hafð-
ur til sýnis þann eftirmiðdag. Smíði innréttinga er nú
í gangi og á skálinn að vera tilbúinn um páskaleit-
ið, en til stendur að koma honum á sinn stað helgina
5.–6. apríl. Húsið er mjög svipað gamla skálanum,
nema hvað forstofan er nokkuð stærri og mun því nýt-
ast betur. Kostnaður við byggingu nýja Esjufjallaskál-
ans greiðist af tryggingarfénu, sem fékkst fyrir gamla
skálann.
BÍLAMÁL
Bíll félagsins hefur verið notaður til þungaflutninga í
ferðum félagsins og í borleiðangri á Langjökul. Nokk-
ur viðhaldsvinna hefur verið við bílinn, en á árinu
fékkst loks ákjósanlegt húsnæði til leigu, þar sem bíll-
inn er geymdur og aðstaða er til að gera við hann.
ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíð félagsins var haldin í Fáksheimilinu þann 17.
nóvember og heppnaðist vel. Hljómsveitin Tvennir
tímar hélt uppi fjöri fram eftir nóttu. Mæting var þó
frekar dræm eða um 50 manns.
LOKAORÐ
Þetta fyrsta ár á nýrri öld leið stórátakalaust við hefð-
bundin störf hjá Jöklafélaginu. Árið einkenndist þó
kannski einna helst af auknum rannsóknum á stóru
jöklunum utan Vatnajökuls og er þá vísað til mælinga-
leiðangurs á Mýrdalsjökul og borana í Hofsjökul og
Langjökul. Eins er það kannski táknrænt nú á tím-
um hörfandi jökla á Íslandi, að Suðurheimskautsdeild
félagsins stækkar ár frá ári, en þegar þetta er skrifað
eru bæði formaður félagsins og formaður skálanefnd-
ar staddir á Suðurheimskautssvæðinu. En þó jöklar
fari minnkandi berast stjórninni reglulega nýjar um-
sóknir um aðild að félaginu og er það ekki minnst að
þakka nýju heimasíðunni, sem auðveldar fólki aðgang
að upplýsingum og aðgengi að félaginu.
Steinunn S. Jakobsdóttir, ssj@vedur.is
80 JÖKULL No. 52, 2003