Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 01.07.2003, Qupperneq 74

Jökull - 01.07.2003, Qupperneq 74
Guðmundur E. Sigvaldason á jarðhæð í Atvinnudeildarhúsi. Helsta áhugamál hans í þá daga var að byggja hús undir rannsóknir í þágu atvinnuveg- anna. Fyrir hans tilstilli komst á nýskipan í rannsóknum með lögum frá 1965 og smám saman rættust vonirnar þeg- ar byggingar risu á Keldnaholti og hver deildin af annarri flutti í nýtt húsnæði og breytti um nafn. Byggingarefna- deild varð Rannsóknastofnun Byggingariðnaðarins, Búnað- ardeild varð Rannsóknastofnun Landbúnaðarins og Iðnað- ardeild varð Rannsóknastofnun Iðnaðarins. Þegar kom að því að breyta deildinni, sem við Þorleifur störfuðum við í Rannsóknastofnun Iðnaðarins gerðum við uppsteit. Við vorum í föstum stöðum og höfðum markað okkur verksvið innan deildar, sem aldrei hafði verið skýrt skilgreind og nú áttum við að flytjast til Keldnaholts og vinna að vel skil- greindu hlutverki Rannsóknastofnunar Iðnaðarins. Við neit- uðum að fara. Eftir japl og jaml og fuður var samþykkt að breyta skipulaginu og stöðugildin voru færð til Raunvísinda- stofnunar Háskólans. En við létum ekki þar við sitja og kröfðumst þess að fá eina stöðu aðstoðarmanns og skiptingu eigna Iðnaðardeildar, þannig að öll tæki og tól til rannsókna í jarðfræði og bergfræði yrðu eftir í Atvinnudeildarhúsi. Það eru engar heimildir um að við hefðum krafist að fá Atvinnu- deildarhúsið í kaupbæti, en einhvern veginn æxlaðist það svo að þegar allir voru fluttir burt skröltum við Þorleifur ein- ir í húsinu og höfðum mjög gott pláss. Það stóð ekki lengi. Árið 1968 var ákveðið að hefja kennslu í náttúrufræðum við Háskóla Íslands og prófessorsstaða í jarðfræði og landa- fræði var formlega stofnuð. Sigurður Þórarinsson flutti í At- vinnudeildarhúsið og settist í skrifstofuna, sem Steingrím- ur Hermannsson hafði notað áður. Atvinnudeild háskólans varð að Jarðfræðahúsi háskólans. Það var geysilega gaman að fá stúdenta í húsið. Plássið var raunar svo mikið að öll efsta hæðin í Jarðfræðahúsi var notuð til að spila borðtennis milli kennslustunda, en kenn- ararnir lögðu sig alla fram við kennsluna. Surtseyjargosið var nýafstaðið og ungum stúdentum í jarðfræði var mikið í mun að verða vitni að eldgosi. Til marks um andrúmsloftið í Jarðfræðahúsi á þessum fyrstu árum féllst bergfræðikenn- arinn á að taka þátt í kröfugöngu 1. maí 1970. Það var geng- ið frá Þingvöllum yfir í Botnsdal í Hvalfirði undir gunnfán- um og kröfuspjöldum þar sem á stóð „Við viljum eldgos.“ Það var eins og við manninn mælt. Hekla byrjaði að gjósa eftir fjóra daga, þann 5. maí 1970. Kröfuganga fyrstu jarð- fræðistúdentanna við Háskóla Íslands hafði greinilega vakið landið til virkni, því heita má að síðan hafi lítið lát orðið á eldgosum. Upphaf kennslu við Háskóla Íslands er stærsti við- burður í sögu jarðfræðarannsókna á Íslandi á síðustu öld. Enda þótt aðrar stofnanir hafi átt drjúgan þátt í framþróun fræðanna á umliðnum 35 árum þá er og verður akademísk rannsókna- og kennslustofnun hinn varanlegi kjarni fræð- anna. Aðrar stofnanir hafa ekki álíka möguleika á fram- haldslífi og geta átt von á hvers konar stefnubreytingum allt eftir því hvaða vindar blása á æðri stöðum. En hver er staða jarðvísinda á Íslandi í dag? Ég ætla ekki að fara út í smáat- riði, nefni aðeins dálitla athugasemd, sem mér barst til eyrna og var höfð eftir manni að nafni Claude Allégre, vinnufé- laga eins af gestum okkar hér í kvöld, fyrrverandi forstjóra Institut de Physique du Globe í París og fyrrverandi mennta- málaráðherra Frakkands. Claude á að hafa sagt við félaga sína í París sem stóðu ráðþrota frammi fyrir einhverju jarð- fræðilegu vandamáli: „Farið þið og spyrjið Íslendingana, þeir vita allt um þetta þó að þeir birti aldrei neitt.“ Stað- hæfingin er ekki hárnákvæm en segir þó meira um stöðu jarðvísinda á Íslandi en langar útlistanir. Og staða fræðanna í dag er ekki bara okkar verk, sem nú erum ofar moldu því mikið tókum við að erfðum frá þeim sem nú eru horfnir af sviðinu. Margt af því sem forverar okkar á borð við Sigurð Þórarinsson og Guðmund Kjartansson gerðu er nú hluti af hugmyndaheimi okkar kynslóðar engu síður en framlag fjöl- margra erlendra manna á borð við George Walker og höf- unda nýrrar heimsmyndar jarðvísindanna. En Ísland er jarð- fræðileg opinberun og styrkur okkar verður aldrei mældur í góðum tækjakosti eða fylgispekt við tískusveiflur í fræð- unum. Styrkurinn felst í landinu sem er sífelld uppspretta nýrra hugmynda. En viðtekinn hugmyndaheimur, á hvaða sviði fræðanna sem er, má samt aldrei standa í vegi fyrir því að menn efist um réttmæti ríkjandi kenninga. Ég hóf mál mitt á lítilli sögu um mann sem neitaði að trúa viðtekn- um hugmyndum og hvernig tilviljun réði að tilgáta hans var prófuð. Boðskapur þeirrar sögu er líklega kjarninn í því sem ég vildi segja við ykkur í dag þó að ég hafi lengt mál mitt með svolítilli sagnfræði, aðallega um hús. Að lokum vil ég þakka Jarðfræðafélaginu að hafa helg- að mér þessa ráðstefnu. 72 JÖKULL No. 52, 2003
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.