Jökull


Jökull - 01.07.2003, Síða 81

Jökull - 01.07.2003, Síða 81
Jöklarannsóknafélag Íslands láni frá Alfred Wegener stofnunni í Bremerhaven til að bora kjarna úr Hofsjökli. Með í ferð var Dodge bif- reið félagsins. Gekk ferðin vel þrátt fyrir misjafnt veð- ur og borinn reyndist ágætlega. Náðist 22 m borkjarni úr jöklinum. Borun í Hofsjökul Í byrjun ágúst var farinn borleiðangur á Hofsjökul undir stjórn Þorsteins Þorsteinssonar og stóð leiðang- urinn í tvær vikur. Leiðangurinn tókst mjög vel og náðist um 100 m samfelldur kjarni. Í honum má sjá minnst 4 öskulög, auk fjölda ryklaga, sem skilja að ár- in þannig að unnt reyndist að greina árlögin í sundur. Telja aðstandendur verkefnisins, sem auk Þorsteins eru Oddur Sigurðsson, Tómas Jóhannesson, Guðrún Larsen og Árni Snorrason að kjarninn nái 33 ár aftur í tímann. Þetta gefur um 3 m á ári í afkomu, en til sam- anburðar má nefna að afkomumælingar Orkustofnun- ar síðastliðin 14 ár gefa meðalúrkomu upp á 3.3 m (vatnsgildi) á ári á borstað. Jöklarannsóknafélagið var ekki beinn aðili að þessum leiðangri, en að sjálfsögðu eru aðstandur verkefnisins flestir félagsmenn. Eftirlit með Mýrdalsjökli Áfram hefur verið fylgst með Mýrdalsjökli og er það samvinnuverkefni Veðurstofunnar, Orkustofnun- ar, Raunvísindastofnunar Háskólans og Norrænu Eld- fjallastöðvarinnar. Við jökulinn eru nú 5 jarðskjálfta- stöðvar, 3 síritandi GPS stöðvar og síritandi mælar í helstu jökulánum. Flogið hefur verið reglulega yfir jökulinn til að mæla hæð hans í nokkrum sniðum yfir helstu katlana og gervitunglamyndir eru notaðar til að kanna hreyfingar umhverfis jökulinn. FUNDIR Fyrsti fundur félagsins árið 2001 var annar í afmæli, sem haldinn var í Norræna húsinu 17. janúar. Var sá fundur helgaður íssjármælingum, sem er mikilvægur hluti íslenskra jöklarannsókna og mættu um 90 manns á fundinn, en fyrirlesari var Helgi Björnsson. Aðal- fundur var haldinn 27. febrúar. Eftir venjuleg aðal- fundarstörf sagði Ástvaldur Guðmundsson í máli og myndum frá ökuferðinni yfir Grænlandsjökul. Vor- fundurinn var haldinn 24. apríl Þar flutti Jórunn Harð- ardóttir fyrirlestur um myndun Dimmugljúfra og Þor- steinn Þorsteinsson kynnti væntanlega kjarnaborun í Hofsjökul. Eftir kaffi sýndi Sverrir Hilmarsson mynd- ir úr borleiðangri Alfred Wegener stofnunarinnar á Suðurskautslandið. Á haustfundinum, sem haldinn var 23. október flutti Þorsteinn Þorsteinsson erindi um djúpborunina á Grænlandsjökli, NGRIP. Eftir hlé sögðu þeir Þorsteinn og Oddur Sigurðsson frá borleið- angrinum á Hofsjökul. Allir fundirnir voru haldnir í Norræna húsinu. ÚTGÁFA JÖKULS Einn Jökull kom út á árinu, afmælisheftið sem er núm- er 50. Var það sérstakt hátíðarhefti, þar sem auk vís- indagreina var lögð áhersla á að fá eldri félaga til að segja frá fyrri jöklaferðum. Hefti númer 49, sem kom út í lok árs 2000 var sent félagsmönnum í upphafi árs 2001. FRÉTTABRÉF Sverrir Elefsen tók við umsjón fréttabréfsins af Oddi Sigurðssyni eftir aðalfundinn. Oddur hafði séð um fréttabréfið í fjölda ára og eru honum færðar þakkir fyrir sitt góða framlag. Sex fréttabréf komu út á árinu. FJÖLSKYLDUFERÐIR Svo bar við þetta árið að báðar fjölskylduferðirn- ar, þ.e. sumarferðin og 13. september ferðin í Jökul- heima, féllu niður vegna lítillar þátttöku. Alllangt er síðan farið hefur verið í haustferð í Jökulheima og þarf að gera átak svo sú ferð heyri ekki brátt sögunni til. SKÁLAMÁL Miklar framkvæmdir hafa verið hjá skálanefnd árið 2001. Í lok mars fóru 13 manns í helgarferð á Gríms- fjall þar sem gamli skálinn var einangraður, þiljað- ur að innan og dúklagður. Í aðalskála var forstofan dúklögð, plexigler endurnýjað og sett ný gluggajárn í glugga. Þá var sett nýtt vaskborð í eldhúsið. Dagana 14.–16. september var gerður leiðangur í Jökulheima og staðurinn rafvæddur, svo nú er þar 12 V raflýsing í stað gasljósa. Skipt var um gaseldavél í nýja skálan- um, því gamla eldavélin var án öryggisloka. JÖKULL No. 52, 2003 79
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.