Jökull


Jökull - 01.12.2007, Page 104

Jökull - 01.12.2007, Page 104
Ekki man eg lengur gerla hvernig við kynntumst, en það kom nokkuð fljótt, eins og eðlilegt var þar sem við kenndum við sama skóla og borðuðum á sama stað, á gamla Hótel Goðafossi þar sem þú bjóst líka, í suðausturhorninu uppi á lofti. Eg kom til Akureyrar öllum ókunnugur og einhvern veginn komst eg fyrst í kynni við þig og Vernharð Þorsteinsson, enda vorum við allir þrír í fæði á Hótel Goðafossi. Það leið ekki langur tími þangað til eg var farinn að koma upp á her- bergi með þér eftir kvöldmatinn og sitja góða stund og spjalla, ellegar við fórum í kvöldgöngu saman. Þessar göngur voru stundum langar, suður um fjöru, ellegar norður að Glerá, stundum líka vestur á bóginn, upp að Lundi og yfir Glerá á brúnni þar. Stundum sát- um við allir þrír á herberginu hjá þér og spjölluðum saman eftir kvöldmatinn. Eg hafði líka gaman af að heimsækja Vernharð í litlu piparsveinaíbúðina hans á Eyrarlandsvegi. Mér þótti furðulegt að hitta svo fjöl- menntaðan og lífsreyndan mann á þessum stað, mann sem hafði verið blaðamaður erlendis, búið í Höfn, Par- ís og Osló, og fékk enn send norsk blöð. Já, Vernharð- ur var notalegur maður og gaman að rabba við hann. Svo bjó hann til þetta góða kaffi. Stundum sat eg hjá honum og leiðrétti fyrir hann danska stíla, hann var fyrir löngu búinn að fá nóg af stílaleiðréttingum, en eg hafði bara gaman af að grípa í þetta. Eg hafði aldrei stigið á skíði þegar eg kom til Ak- ureyrar 1936, og hef reyndar lítið gert að því eftir að eg fluttist hingað suður aftur. Þegar maður hefur lifað við þann lúxus að stíga á skíðin heima við útidyrnar hjá sér og koma á þeim alla leið heim aftur og geta farið beint í bað að því loknu, á maður erfitt með að sætta sig við að þurfa að binda bílferð við þetta, þurfa að fara í bíl upp í skíðalandið og setjast svo í hann að göngu lokinni, heitur og sveittur, og skrölta áleiðis heim. Eg hef sjálfsagt ekki verið burðugur fyrst í stað, og reyndar aldrei mikill skíðamaður, en tileinkaði mér fljótt þá göngu og rennslistækni sem þurfti til að geta fylgt ykkur í gönguferðum um fjöll og dali í nágrenni Akureyrar. Þær ferðir urðu margar, eg hef aldrei á æv- inni verið jafnmikið í fjallaferðum og þessa vetur. Þar vorum við oftast þrír: þú, eg og Stefán Gunnbjörn þús- undþjalasmiður, sem var ráðsmaður skólans þessi ár. Við vorum nærri óaðskiljanlegir, það kom sjald- an fyrir að einn okkar færi í lengri ferðir án þess að hinir væru með. Þó man eg eitt tilvik af því tagi. Þú fórst með Ferðafélagi Akureyrar yfir Vindheimajökul en við þóttumst ekki mega vera að því. Þó gátum við ekki stillt okkur um að ganga upp í Útgarð, Mennta- skólaskálann inni á Glerárdal og renna okkur þar dá- lítið. Svo sáum við til mannaferða uppi í hlíðunum, það var ferðafélagshópurinn og var litlu síðar kominn í hlað. Þér var eitthvað brugðið og þú hreyfðir þig stirðlega en varst heldur sagnafár um orsökina. Við fengum hana að nokkru leyti frá ferðafélögum þínum og síðar frá þér, þegar þú þurftir að sitja heima næstu daga, sakir meiðsla. Þú hafðir ekki stillt þig um að bæta einni nípunni við, skilið við hópinn og gengið á hana einn, en skrikað fótur á niðurleið og runnið all langa leið á hörðu hjarni innan um stórgrýti, og mikil mildi að þú skildir ekki stórslasast. Eitthvað vorum við að stríða þér á því að þú mættir ekki leggja upp í svona ferðir barnfóstrulaus og þá fæddist vísan góða: Trausti hrapar, húmar að hinsta skapadegi. Kuldinn napur andar að angurgapa vegi. Fæðing vísunnar gekk hægt, eg er ekki mikill hagyrðingur, og mig minnir að Vernharður hjálpaði til við botninn. Við fórum margar skemmtilegar ferðir saman. Fyrir okkur Gunnbjörn var útivistin og hreyfingin allt sem máli skipti, en þú hafðir jafnan einhvern jarð- fræðilegan bakþanka, ætlaðir að skoða einhver jarðlög í leiðinni og þannig varð svolítið vísindalegt bragð að mörgum þessum ferðum. Eg man það glöggt þegar við gengum á Vind- heimajökul síðdegis. Við þurftum hvorugur að kenna eftir hádegið (þá var kennt 8–12 og 13:15–15) og Gunnbjörn hefur getað tekið sér frí líka. Nema hvað, við lögðum af stað gangandi frá Akureyri eftir hádegi, léttir á brún, vorum aðeins með einn bakpoka með myndavél og einhverjum tækjum öðrum. Við héld- um eins og leið liggur, leiðin frá Akureyri er fyrst nærri lárétt, lítið eitt aflíðandi, síðan eykst hæðin jafnt og þétt. Við fórum upp Hlíðarskál í mörgum sveigj- um og gekk ferðin vel. Síðan vorum við langa stund uppi á Vindheimajökli, gengum ýmsar bungur, m.a. þá 102 JÖKULL No. 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.