Jökull


Jökull - 01.12.2007, Síða 105

Jökull - 01.12.2007, Síða 105
Bréf Guðmundar Arnlaugssonar til Trausta Einarssonar hæstu. Svo kom niðurferðin sem átti að vera auðveld og skemmtileg. Það var skemmtilegt að skásneiða brekkurnar á niðurleið, en þegar við vorum komnir langleiðina kom svolítið babb í bátinn: það var farið að skyggja og því illa ratljóst í landslagi sem maður ekki þekkti. Sá okkar fór síðastur sem bakpokann bar. Nú var Gunnbjörn fremstur en eg síðastur með pok- ann. Þá segir Gunnbjörn: „Hér er mikill hliðarhalli, það er betra að fara ofar“ – og um leið hverfur hann niður á við til hægri. Trausti segir: „Það er víst betra að gæta sín“ – og hverfur sömu leið og Gunnbjörn. Þetta skipti engum togum, fyrr en varði var eg kominn sömu leið. Fyrst voru skíðin á undan, en eg réð ekki við mig, höfuð, herðar og bakpoki voru á svipstundu komin niður fyrir skíðin sem mættu meiri mótstöðu í snjónum. Sem betur fer var þetta ekki langur spölur og allt var óskemmt, en Gunnbjörn hafði rétt fyrir sér: þarna var skyndilega kominn mikill hliðarhalli! Við fórum varlega það sem eftir var og komum óskaddaðir til Akureyrar, en eftir á að hyggja finnst mér við hljóta að hafa gengið rösklega að fara alla þessa leið á jafnskömmum tíma. Dálítið sérstök var ferðin þegar við gengum á Torfufell. Það var í byrjun jólaleyfis. Í útvarpinu höfðu birst fregnir um það að menn í Mývatnssveit hefðu séð eldglæringar í suðri nokkrum sinnum, eitt- hvað sem benti til þess að um eldsumbrot væri að ræða, kannski í norðanverðum Vatnajökli, kannski norðar. Stefnan frá Mývatni var ljós, en ekki ljóst hvar á línunni þetta væri. Þessar fréttir vöktu áhuga þinn og þér datt í hug að með því að sigta á eldinn úr annarri átt væri hægt að ákvarða væntanlegan gosstað nákvæmlega. Best væri að vera staddur á einhverj- um góðum útsýnisstað við Eyjafjörð í birtingu. Þá væru mestar líkur á að sjá eldinn – ef um jarðeld væri að ræða – og hægt að miða hann all nákvæmlega við önnur kennileiti. Þá væri staðurinn sæmilega ákveð- inn sem skurðpunktur sigtilínanna úr Eyjafirði og Mý- vatnssveit. Og þú valdir Torfufell sem er hæsta fjall við innanverðan Eyjafjörð og þaðan er afar víðsýnt. Við lögðum af stað fyrsta dag jólaleyfisins. Við vorum þrír, auk okkar tveggja Ólafur í Gróðrarstöð- inni, Ólafur Jónsson mikill áhugamaður um náttúru- fræði hverskonar, mikill ferðagarpur og annálaður göngumaður. Við höfðum ekki með okkur skíði í þetta sinn, en tjaldmynd höfðum við, mat og hitunartæki og ýmsan búnað annan, heldur frumstæðan þó, á nútíma- mælikvarða. Við fengum leigubíl til að aka okkur suð- ur allan Eyjafjörð, inn á móts við Torfufell. Þetta var hægt því að snjór var lítill sem enginn á láglendi. Við sömdum við bílstjórann um að sækja okkur síðdeg- is næsta dag. Svo var lagt í fjallgönguna. Ætlun þín hafði verið að tjalda uppi á fjallinu eða sem næst því, en raunin varð sú að við gáfumst upp í miðjum hlíðum eða rúmlega það sökum hvassvirðis. Það var talsvert hvasst, bakpokinn var fyrirferðarmikill, og eg man að það tók svo í hann að maður átti á köflum erfitt með að stjórna sér. Og þegar við fundum dæld í fellinu þar sem skjólið var meira en annarsstaðar, var ákveðið að setjast þar að um sinn og bíða þess hvort ekki lægði. Við hófumst handa um að koma okkur fyrir. Þarna var talsverður snjór og Ólafur tók við að skera gryfju fyrir tjaldið, við tókum kögglana jafnharðan og hlóð- um úr þeim garð á gryfjubarminum. Síðan var tjaldað og við fluttum inn. Þetta var lítilfjörlegt sumartjald og enginn botn í því, en einhver brekán höfðum við til að sitja á í snjónum. Svo var kveikt á prímusnum og farið að bræða snjó. Þú áttir fornlega súpupakka eða teninga sem þýskir jarðfræðingar sem höfðu ver- ið á ferð hér um sumarið höfðu arfleitt þig að. Þessar súpur vorum við að borða í tjaldinu alla nóttina. Prím- usinn var í gangi alla nóttina og hann var nokkuð lengi að bræða hverja pottfylli af snjó og koma vatninu upp í suðu, svo að við vorum oftast búnir að fá lyst á ein- um súpubolla til viðbótar þegar nýr skammtur var til- búinn. Þarna var um að ræða þó nokkrar tegundir af þýskum súpum. Fyrst prófuðum við hverja um sig, síðan voru reyndar ýmsar blöndur. Ekkert var hægt að sofa þarna um nóttina. Við borðuðum súpur, töluðum saman, gerðum að gammi okkar – og spiluðum á spil. Við hljótum að hafa haft með okkur ljósker, þótt eg muni það ekki, kannski kerti. Ólafur hældi sér af því að hafa haft með sér þau tvö tæki sem best reynd- ust í ferðinni: hnífinn mikla sem hann skar snjóskafl- inn með, svo að hægt væri að búa til skýli umhverfis tjaldið, og spilin sem styttu okkur stundir meðan við biðum birtingar. Við lögðum snemma af stað frá tjaldinu um morg- uninn, líklega um fimmleytið, því að löng leið var eft- ir upp fellið. Veðrið hafði lægt og færið var sæmilegt. JÖKULL No. 57 103
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.