Jökull - 01.12.2007, Qupperneq 119
Vorferð Jöklarannsóknafélags íslands 2007
Eins og venjulega voru mælingar gerðar á fast-
punktum í Jökulheimum, á Grímsfjalli og Hamrinum.
Vegna þrálátrar austanáttar og hvassviðris tóks ekki að
setja upp tækin á Hamrinum fyrr en undir lok ferðar.
Það kom þó ekki að sök þar sem nokkur hópur var
lengur á jöklinum og gat sótt búnaðinn eftir helgina
(sjá nánar hér á eftir).
Grímsvatnaskálinn hefur staðið af sér öll veður í 50 ár.
Fyrstu dagar vorferðar voru æði vetrarlegir. Myndin
var tekin að morgni 4. júní. – Wintry conditions at
Grímsfjall on June 4th.
5. Kortlagning Grímsvatnasvæðisins með kinematísk-
um GPS mælingum fór fram að venju, ekið var um
vötnin á vélsleðum eftir mælilínuneti og sérstaklega
umhverfis gosstöðvarnar frá 2004. Samskonar mæl-
ingar voru gerðar í Gjálp og við Skaftárkatla. Með
þessum mælingum eru kannaðar breytingar vegna
jarðhita og ísflæðis.
6.Haldið var áfram rannsóknum á lagskiptingu gjósk-
unnar úr gosinu 2004. Að þeim vann Tanya Jude-
Eton, breskur doktorsnemi við Edinborgarháskóla en
verkefni hennar er að skoða sem nákvæmast hegðun
gossins og skiptingu þess í einstaka gosfasa.
7. Hópurinn fór í Kverkfjöll eins og oft hefur verið
gert undanfarin ár. Ferðin er liður í því að fylgjast með
þróun jarðhita og jökullóna í Kverkfjöllum. Vatns-
borð bæði Gengissigs og lóns í Efri Hveradal voru
mæld og hverir ljósmyndaðir. Lónið í Hveradal hefur
nú myndast á ný. Það hvarf 1998 og eftir stóð leirbotn
í suðurhluta dalsins. Sumarið 2006 bárust fregnir um
að vatn væri farið að safnast aftur fyrir. Nú hafði vatn-
borð náð svipaðri hæð og oft var fyrir 1998. Ástæður
þessara breytinga eru ókunnar.
8. Gerðar voru þyngdarmælingar á Grímsfjalli. Vís-
bendingar eru um að breytingar verið á hlutfalli gufu
og jarðhitavatns í jarðhitasvæðinu samfara eldgosum
en það hefur áhrif á þyngdarsviðið. Mælingarnar nú
eru liður í því að kanna þessar breytingar og er það
gert með því að bera saman mismun á styrk þyngdar-
sviðsins á Grímsfjalli, í Jökulheimum og á Haldi við
Tungnaá.
9. Sett var upp sjálfvirk veðurstöð á Bárðarbungu eins
og undanfarin ár. Þessar veðurmælingar eru liður í
rannsóknum á tengslum veðurfars og afkomu jökuls-
ins.
10. Viðhald gufurafstöðva á Grímsfjalli fór fram í lok
vorferðar.
Árni Kjartansson kannar gosstöðvarnar frá 2004. – At
the 2004 eruption site.
Í tilefni af 50 ára afmæli Grímsvatnaskála var
ákveðið að efna til stuttrar afmælisferðar í lok vorferð-
ar. Í ferðinni tóku þátt nokkrir þeirra sem byggðu hús-
ið og voru í forystu í ferðum félagsins á sjötta ára-
tugnum og lengi síðan. Þetta voru Árni Kjartansson,
Hulda Filippusdóttir, Haukur Hafliðason, Ingibjörg
Árnadóttir, Halldór Ólafsson, Ólafur Nielsen, Stefán
Bjarnason og Auður Ólafsdóttir. Þeim til fylgdar
voru Anna Líndal, Eiríkur Lárusson, Jón Kjartans-
son, Jósef Hólmjárn, Magnús Tumi Guðmundsson,
Magnús Hallgrímsson og Tanya Jude-Eton. Boðsgest-
irnir komu í Jökulheima á föstudeginum 8. júní en
morguninn eftir fórum við á þremur bílum um Gríms-
vötn á Grímsfjall í frábæru veðri með viðkomu á gos-
stöðvunum frá 2004. Daginn eftir var veður síðra en
eftir hádegið gaf þó til ferðar á Hamarinn og þangað
sótt GPS landmælingatæki. Ámánudegi 11. júní héld-
JÖKULL No. 57, 2007 117