Jökull - 01.01.2015, Blaðsíða 104
Halldór Ólafsson
fram eftir kvöldi. Áfangastaður hópsins þennan dag
var skólahúsið við Hof þar sem hann fékk gistingu.
Stytt hafði upp um nóttina en himinn alskýjaður
og enn var hægviðri. Risið var úr rekkju kl. 07:30 og
eftir morgunverð gekk allur hópurinn upp í Bæjargil
sunnan undir Hofsfjalli til að skoða það og berglögin,
sem rísa þar hvert upp af öðru. Búist var til ferðar að
nýju kl. 11 og ekið að Hofsnesi þar sem fengnar voru
leiðbeiningar til að keyra leirurnar út í Ingólfshöfða.
Það reyndist auðvelt, því leiðin um leirurnar var vel
stikuð. Út í Ingólfshöfða er fjölbreytt fuglalíf og var
það skoðað og myndað í bak og fyrir. Þótti útlending-
unum prófasturinn tilkomumikill enda var hann mest
filmaður.
Eftir drjúga dvöl í Ingólfshöfða var haldið rakleitt
til Kvískerja, austasta bæjarins í Öræfum, og var ætl-
unin að hafa tal af þeim margfróðu Kvískerjabræðr-
um. Því miður var enginn bræðranna heima en feng-
ið var leyfi hjá systrum þeirra til að skoða hið fallega
bæjargil. Eftir stutta dvöl þarna var farið rakleitt aust-
ur að Hoffelli þar sem grófdílótt gabbró í námunni við
Geitafell var skoðað. Að því loknu var ekið til Hafnar
í Hornafirði og komið þangað kl. 20. Á Hótel Höfn
beið hópsins kvöldmatur og að honum étnum var sest
stutta stund við barinn áður en gengið var til náða í
nýja gagnfræðaskóla staðarins.
Næsta dag, fimmtudaginn 20. júní, var snædd-
ur árbítur á Hótel Höfn en síðan haldið af stað um
Almannaskarð austur í Lón. Áður en lagt var á Lóns-
heiði var gerður dálítill stans við Össurá í Lóni, en þar
upp með ánni er svolítil koparkísopna sem var skoð-
uð. Komið var til Djúpavogs um hádegi og borðað
á hótelinu. Um svipað leyti og lagt var af stað frá
Djúpavogi tók að hellirigna og streymdi regn úr lofti
linnulaust allar götur upp á Hérað. Þegar komið var
á móts við Þingmúla í Skriðdal var styrkþegum gerð
grein fyrir eldstöðinni fornu sem kennd er við staðinn
en ekki var hún skoðuð ítarlega vegna vatnsveðursins.
Til Hallormsstaðar var komið um kl. 18:30 og fengin
var gisting í svefnpokaplássi Húsmæðraskólans sem
rekinn er sem hótel á sumrin. Er hópurinn hafði kom-
ið sér fyrir, fékk hann ágætis kvöldverð í mötuneyti
skólans. Það sem eftir lifði kvölds notuðu menn til að
ræða viðburði dagsins og skrifa í dagbækur sínar.
Eftir staðgóðan morgunverð var lagt upp frá Hall-
ormsstað kl. 08:30 og haldið til Egilsstaða þar sem
keyptur var kostur til ferðarinnar inn í Kverkfjöll. Hjá
Olíuverslun Íslands í Fellabæ voru tankar faratækj-
anna fylltir bensíni og einnig tveir 20 lítra brúsar til
öryggis. Frá Fellabæ var ekið sem leið liggur um Hró-
arstungu, Jökuldal og Jökuldalsheiði að Rangalóni,
eyðibýlinu við norðurenda Sænautavatns. Þar var sest
undir veggjabrot og nesti borðað í góðviðrinu, því
komið var sólskin og dúnalogn. Að máltíð lokinni lá
leiðin að afleggjaranum til Kverkfjalla sunnan Möðru-
dals á Fjöllum. Þótt merkilegt kunni að virðast, var
mun þægilegra að keyra fjallaslóðina suður öræfin en
holóttan þjóðveginn, því til að byrja með lá leiðin um
slétta og auðekna sanda. Þegar komið var yfir brúna á
Kreppu sáu þeir Níels og Páll um að taka sýni úr öllum
eftir-ísaldarhraunum sem voru á leiðinni í áfangastað.
Þessi sýnataka tafði dálítið en við því var ekkert að
segja, hún var auðvitað einn aðaltilgangur ferðarinn-
ar. Komið var þess vegna ekki fyrr en kl. 20 í Sigurð-
arskála í Kverkfjöllum. Sigurðarskáli er stórt og gott
hús og er það framtaki þeirra ferðafélagsmanna á Eg-
ilsstöðum og Húsavík að þakka. Rúmt var um hópinn
í þessum stóra skála því öðrum gestum var ekki til að
dreifa þegar sest var að. Farið var snemma í háttinn
þar sem veðurspá gerði ráð fyrir áframhaldandi góð-
viðri og morgundaginn skyldi þess vegna nýta til hins
ýtrasta. Það var að vísu erfitt fyrir mannskapinn að
koma sér niður, því sólin skein skært í heiðu norðri
um sólstöðurnar.
Laugardaginn 22. júní voru allir leiðangursmenn
komnir á ról kl. 04 eftir stuttan nætursvefn. Þeg-
ar borðaður hafði verið morgunmatur og smurt nesti
til dagsins var skift liði, Karl, Páll, Ellen, Karlsson
og Prestvik dreifðu sér um Kverkfjallarana og söfn-
uðu bergsýnum frá Virkisfelli austur að Hveragili og
allt suður að jökli, en Guðmundur, Níels, Ævar, Kri-
bek og Halldór fóru til gassöfnunar upp í Hveradal
í Kverkfjöllum. Kverkjökulsáin var óárennileg svo
gassöfnunarhópurinn krækti upp á Kverkjökulsporð-
inn og komst þannig þurrum fótum yfir á Löngufönn
en upp hana var gengið í Hveradalsmynnið. Skipst var
á að spora slóðina því færi var þungt vegna sólbráðar
og snjórinn þess vegna kramur. Það kom sér samt vel,
annars hefði verið erfitt að fóta sig án brodda, þar sem
104 JÖKULL No. 65, 2015