Jökull - 01.01.2015, Side 115
Society report
VORFERÐ JÖRFÍ
29. maí – 13. júní 2015
Magnús Tumi Guðmundsson og Finnur Pálsson
Jarðvísindastofnun Háskólans, Öskju, Sturlugötu 7, 101 Reykjavík, mtg@hi.is, fp@hi.is
Ekki er hægt að kvarta yfir að dauflegt sé yfir náttúru-
öflunum í Grímsvatnahreppi. Undanfarinn aldarfjórð-
ung hefur gengið á með margskonar stóratburðum í
Vatnajökli. Framhlaup voru í Síðujökli,Tungnaárjökli
og Dyngjujökli í byrjun tímabilsins, stórgos í Gjálp
1996 sem leiddi til stórhlaups á Skeiðarársandi,
þrisvar hefur gosið í Grímsvötnum og óvænt jökul-
hlaup féll til Hágöngulóns. Af þessum sökum hafa
á tímabilinu verið nokkrar viðamiklar vorferðir sem
staðið hafa tvær vikur eða jafnvel lengur. Með þeim
hefur Jöklarannsóknafélagið tryggt lærðum og leik-
um aðgengi til skoðunar og rannsókna á einstæðum
náttúrufyrirbærum, í takt við tilgang félagsins. Öskju-
sigið í Bárðarbungu haustið og veturinn 2014–2015
ásamt gosinu sem var því samfara í Holuhrauni er
e.t.v. stærsti einstaki atburður í eldgosasögu Íslands
síðan 1875. Því var af nógu að taka vorið 2015 þegar
kom að rannsóknum á vettvangi í og við Bárðarbungu.
Til að bregðast við, afréð stjórn JÖRFÍ að ferðin stæði
tvær vikur svo hægt væri að kanna eins og vert væri
þau ummerki og breytingar sem orðið hafa í Bárðar-
bungu og Dyngjujökli.
Snjóalög á hálendinu voru mun meiri en undan-
farin ár eftir óvenju illviðrasaman vetur. Þá var maí
óvenju kaldur og leysing því hæg. Fyrir vikið var enn
ófært um Jökulheima og Tungnaárjökul á vorferðar-
tíma. Því brugðið á það ráð að fara austur á Skálafells-
jökul, en ekki hefur þurft að grípa til þess í fimmtán ár.
Farartæki voru snjóbíll HSSR, Ford-bíll JÖRFÍ, tveir
bílar frá Jarðvísindastofnun Háskólans, bíll Magnús-
ar Þórs Karlssonar og allmargir vélsleðar. Seinni vik-
una var einnig í slagtogi með hópnum flokkur frá Veð-
urstofunni sem hélt til í Skaftárkötlum og boraði þar
holur, tók sýni og mældi hita í lónunum undir kötl-
unum. Fararstjóri fyrri vikuna var Finnur Pálsson en
þá seinni Magnús Tumi. Birgðahald fyrri viku var á
hendi Sjafnar Sigsteinsdóttur en þá seinni Herdísar
Schopka.
Vitjað um jarðskjálftamæli VÍ á ísaskilum Grímsvatna og Dyngjujökuls. Um 6 m þykkur vetrarsnjór hafði
kaffært búnaðinn, nema loftnet og vindrafstöð. Skjálftamælirinn er rekinn allt árið og streymir gögnum til
byggða. Hér er verið að grafa niður að rúmgóðri plasttunnu þar sem tæknibúnaði er komið fyrir. – Servicing the
IMO seismometer at the ice divide of Grímsvötn and Dyngjujökull. Around 6 m of winter snow had buried the
equipment, only the antenna and wind power generator were visible. Ljósmynd/Photo. Sjöfn Sigsteinsdóttir.
JÖKULL No. 64, 2014 115