Jökull - 01.01.2015, Blaðsíða 116
Útsýni úr Kverkfjöllum til Öskju, yfir Dyngjujökul og Holuhraun. – View northwest from Kverkfjöll, across
Dyngjujökull and the recent Holuhraun lava field. Ljósmynd/Photo. Magnús Tumi Guðmundsson.
Í fyrri hluta ferðarinnar voru 18 þátttakendur sem
fóru frá Reykjavík síðdegis föstudaginn 29. maí. All-
ur hópurinn gisti á Vagnstöðum í Suðursveit. Að
morgni laugardags var farið á Borgarhafnarheiði. Þar
var mikið amstur var við að koma fólki, farangri og
um 30 tunnum af eldsneyti frá bílaplani nærri vötnun-
um að jökulrönd Skálafellsjökuls nærri Sultartungna-
jökli. Við þetta bras naut hópurinn aðstoðar Bjarna
Skarphéðins frá Vagnsstöðum sem flutti eldsneytið á
stórri kerru og beitti fyrir hana öfluga dráttarvél. Eftir
fyrstu brekkurnar á jökli þyngdist færið, mjög mik-
ill nýsnjór var og þoku sló yfir. Afar erfitt var að
hemja þunga vélsleðana, hálfa á kafi í snjó hvolfdi
þeim trekk í trekk undan vönum sem óvönum í hlið-
arhallanum. Bílarnir sátu fastir til skiptis og jafnvel
snjótroðarinn spólaði sig fastan með sinn þunga drátt.
En þegar komið var að vendipunkti þar sem sveigt
er til vesturs í átt að Grímsvötnum birti til og færið
var eins og best er á kosið fyrir vélsleðana og hag-
fellt fyrir bílana líka. Nær allir voru komnir í hús á
Grímsfjalli nærri kvöldmatartíma. Veður var kafla-
skipt, þræsingur fyrstu dagana en mjög gott þegar leið
á vikuna. Í nærri þrjá daga var mest inniseta og vinna
við endurbætur mælinga og fjarskiptabúnaðar JH og
VÍ á Grímsfjalli, mestallur snjór og klaki var hreins-
aður af húsum og pöllum, kamar tæmdur og dyttað að
sturtubúnaði og fleiru. Á miðvikudag bættust í hópinn
3 starfsmenn Veðurstofu sem komu á vélsleðum um
Skálafellsjökul. Leiðangursmenn sinntu margvísleg-
um verkefnum í þrem til fjórum hópum og var vinnu-
lagið svipað í seinni vikunni.
Mestur hluti fyrri hópsins (12 manns) yfirgaf
Grímsfjall í ágætu veðri á laugardagsmorgni 6. júní og
flestir komnir að jökulrönd uppúr hádegi. Á meðan
fólk var að tygja sig til ferðar á Grímsfjalli laugar-
daginn 6. júní lagði seinni vaktin af stað úr Reykjavík
og ók sem leið lá austur á Borgarhafnarheiði þar sem
hóparnir mættust. Skipt var um áhöfn á farartækjum
og síðan haldið í Grímsvötn og komið þangað um
kvöldmatarleytið. Daginn eftir var ágætt veður og
var þá unnið á Bárðarbungu við afkomu- og þyngdar-
mælingar. Á mánudeginum var suðvestan stormur og
haldið kyrru fyrir í skálanum. Veður var aftur þokka-
legt á þriðjudag og fór einn hópurinn í Kverkfjöll
auk þess sem unnið var kringum Grímsvötn og við
Skaftárkatla. Þar gerðist það að sleða var ekið fram
af sprungubrún. Slasaðist ökumaðurinn nokkuð og
var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu en sem betur fer
reyndust meiðslin ekki mjög alvarleg. Miðvikudagur
og fimmtudagur gengu ágætlega og var þá enn hald-
ið áfram mælingum á Bárðarbungu og í Grímsvötn-
um. Föstudaginn 12. júní var hægviðri með muggu
á Grímsfjalli en síðan birti til. Sleðahópur vann úti
á jökli en aðrir gengu frá á fjallinu. Á laugardags-
morgni var vaknað snemma, pakkað í bíla og lokið
við að þrífa stóra húsið áður en lagt var stað austur
á Skálarfellsjökul í björtu og köldu veðri. Rennifæri
var og gekk ferðin hratt svo hópurinn náði jökulrönd
um hádegið. Þá tóku við selflutningar á búnaði og
116 JÖKULL No. 64, 2014