Jökull - 01.01.2015, Blaðsíða 118
10. Hluti íssjármælisniða í Grímsvötnum var endur-
mældur, til að fylgjast með breytingum í þykkt ís-
hellunnar, en þessar línur hafa nokkrum sinnum verið
mældar á undanförnum árum.
11. Í seinni vikunni var endurmælt net 50 þyngdar-
mælipunkta á og við Bárðarbungu.
12. Á Bárðarbungu var vetrarafkoma mæld á 4 stöð-
um auk 15 m djúprar holu þar sem hiti í hjarninu var
mældur.
13. Sett var upp veðurstöð á hefðbundinn stað á Bárð-
arbungu og 12 skriðstikur sem settar voru í Bárðar-
bungu í maí endurmældar með GPS.
14. Fundinn staður fyrir nýja fasta GPS stöð á Kistu,
en hún er í vesturhlíðum Bárðarbungu.
15. Farið var í Kverkfjöll og vatnshæð jökullóna þar
mæld.
16. Mæld voru hæðarsnið vestast í Grímsvötnum til
að meta breytingar en þar hefur jarðhiti aukist í all-
mörg ár.
Athygli vakti að brennisteinslykt var í suðurhlíð-
um Bárðarbungu og virtist gasið koma gegnum jökul-
inn sem er þarna 200–300 m þykkur.
Vorferðir eins og þessi eru mikið fyrirtæki. Nota
þarf sérhæfð og dýr farartæki, flytja þarf eldsneyti til
ársins á Grímsfjall auk birgða fyrir ferðina sjálfa, sem
er þurftafrek. Í þessari ferð voru fluttir 6000 lítrar
af olíu og bensíni. Kostnaður er að sama skapi mik-
ill. Félagið nýtir m.a. styrk til rannsókna og umsvifa
sem það fær frá Landsvirkjun og Vegagerðinni. Hluti
kostnaðar var í þetta sinn einnig greiddur af stofnun-
um sem tóku þátt gegnum fjárframlög úr Ríkissjóði
vegna vöktunar og rannsókna á umbrotunum í Bárð-
arbungu. Þátttaka og stuðningur sjálfboðaliða JÖRFÍ
tryggði að það fé nýttist eins og best verður á kos-
ið. Auk sjálfboðaliða JÖRFÍ og snjóbílsstjóra HSSR,
tóku þátt sérfræðingar frá Jarðvísindastofnun, Veður-
stofunni og háskólunum í Gautaborg og Dublin.
Félagið naut eins og áður styrks frá Vegagerðinni
og Landsvirkjun til að mæta hluta kostnaðar við flutn-
inga og umsvif í ferðinni. Einnig tóku Neyðarlínan,
Veðurstofan og Jarðvísindastofnun Háskólans þátt í
kostnaði við flutninga og farartæki.
Þátttakendur í fyrri ferð: Ágúst Þór Gunnlaugs-
son, Ásta Rut Hjartardóttir, Bergur Bergsson, Eirík-
ur Finnur Sigursteinsson, Erik Sturkell, Finnur Páls-
son, Hlynur Skagfjörð Pálsson, Joaquin Muñoz-Cobo
Belart, Kristjana Harðardóttir, Louise Steffensen
Schmidt, Magnús Þór Karlsson, Monika Dragosics,
Sjöfn Sigsteinsdóttir, Sólveig Kristjánsdóttir, Vil-
hjálmur Kjartansson, Þorsteinn Jónsson, Þóra Karls-
dóttir. Þrír starfsmenn Landsvirkjunar litu við hjá okk-
ur á leið í mælingaferð í Skaftárkatla.
Þátttakendur í seinni ferð: Ágúst Þór Gunnlaugs-
son, Baldur Bergsson, Bárður Ísleifsson, Benedikt
Gröndal, Benedikt Ófeigsson, Bergur Bergsson, Eva
Eibl, Hannah Reynolds, Hannes Haraldsson, Herdís
Schopka, Hlynur Skagfjörð Pálsson, Ísleifur Friðriks-
son, Magnús Tumi, Sara Barsotti, Tobias Dürig, Val-
gerður Jóhannsdóttir, William Moreland, Þorsteinn
Jónsson, Þórdís Högnadóttir. Auk þessa voru seinni
vikuna í Skaftárkötlum Þorsteinn Þorsteinsson og þrír
erlendir vísindamenn. Þrír kvikmyndagerðarmenn
bættust í hópinn um miðja seinni vikuna.
The 2015 Spring Expedition
The annual expedition to Vatnajökull in 2015 lasted
two weeks, with a change in crew at mid-way through.
The main tasks of the expedition, apart from regular,
long term monitoring tasks concerning winter accu-
mulation in and around Grímsvötn and maintenance
of seismometers and GPS monitoring stations, were
surveys of Bárðarbunga and surroundings after the
autumn-winter 2014–2015 caldera collapse and the
associated Holuhraun eruption. Due to heavy snow
cover in the highlands, the usual route of Spring expe-
ditions through Jökulheimar and Tungnaárjökull was
not possible in early June. The alternative route up
Skálafellsjökull by the southeast coast was taken, with
the first group of 18 participants leaving Reykjavík on
May 29. This group returned on June 6, when the
second crew arrived at Skálafellsjökull and headed
for Grímsvötn. Both groups stayed in the huts at
Grímsvötn for the duration of the expedition. Among
tasks specifically carried out at Bárðarbunga were de-
tailed radio-echo soundings, a gravity survey, gas flux
measurements, and mass balance observations in the
Bárðarbunga caldera. Participants included volun-
teers of the Iceland Glaciological Society and scien-
tists from the Institute of Earth Sciences, University
of Iceland, The Icelandic Meteorological Office, and
the Universities of Dublin and Gothenburg.
118 JÖKULL No. 64, 2014