Jökull - 01.01.2015, Blaðsíða 108
Halldór Ólafsson
var tjaldað á tjaldstæði hótelsins sunnan undir Salan-
um. Áður en lagst var til svefns í tjöldunum fór allur
hópurinn í þrifabað í Grjótagjá, til að skola svita og
öræfaryk af sólbrenndum kroppum.
Jónsmessudagur heilsaði hópnum með sama góð-
viðri og verið hafði undanfarið. Morgunverður var
snæddur á Hótel Reynihlíð en síðan var haldið í
Námaskarð til gassöfnunar, styrkþegar skoðuðu svæð-
ið á meðan og gengu á Námafjall. Að gassöfnun lok-
inni fór allt liðið norður í Leirbotna undir Kröflufjalli
þar sem til stendur að reisa gufuaflsvirkjun á næstunni
og er reyndar þegar byrjað að undirbúa það verk. Eft-
ir að svæðið í Leirbotnum hafði verið skoðað, skipti
Guðmundur liðinu og fóru hann, ásamt Níels og Ellen,
með Ævari á jeppa Raunvísindastofnunar til gassöfn-
unar að Þeistareykjum en Karl, Páll, Prestvik, Karls-
son, Kribekk og Halldór gengu upp að sprengigígn-
um Víti. Þegar staðið var á barmi Vítis og horft yfir
kraumandi hveri ofan þess minntust sumir í hópnum
kvæðis Jónasar um fyrirbærið:
Bar mig að brenndum auri
breiðar um funa-leiðir
blakkur að Vítis-bakka,
blæs þar og nösum hvæsir.
Hvar mun um heiminn fara
halur yfir fjöll og dali
sá, er fram kominn sjái
sól að verra bóli?
Hrollir hugur við polli
heitum í blárri veitu?
Krafla með kynja afli
klauf fjall og rauf hjalla;
grimm eru í djúpi dimmu
dauða-org, þaðan er rauðir
logar yfir landið bljúga
leiddu hraunið seydda.
Er menn höfðu skoðað sig um þarna, héldu þeir
suður að Lúdent, en þangað var farið eftir slóða sem
liggur frá veginum við Vogaflóa í Mývatni austur að
Hverfjalli og svo sunnan þess gegnum Lúdentsborgir
að sprengigígnum Lúdent. Hann mun vera myndaður
við svipaðar aðstæður og Hverfjall. Þarna var dvalið
drjúgan hluta dags og tekin mörg bergsýni á svæðinu.
Að verki loknu var haldið til Hótels Reynihlíðar og
borðaður kvöldverður en áður en gengið var til náða
leit hópurinn við á hótelbarnum.
Þriðjudaginn 25. júní var farið snemma á fætur því
ætlunin var að enda ferðina að kveldi í Reykjavík. Enn
var hægviðri, alskýjað að vísu en úrkomulaust. Eftir
morgunverð í Hótel Reynihlíð voru tjöld tekin sam-
an, gengið frá farangri í bílana og svo lagt af stað frá
tjaldstað kl. 09. Ekið var sem leið liggur sunnan Mý-
vatns og komið við á Skútustöðum þar sem fallegu
gervigígarnir, sem kenndir eru við staðinn, voru skoð-
aðir. Þaðan var haldið um Mývatnsheiði, Reykjadal
og Fljótsheiði að Goðafossi en þar hélt Guðmundur
stuttan fyrirlestur um það sem fyrir augu bar. Raun-
ar hafði hann haldið stutta tölu til fróðleiks á flestum
viðkomustöðum í ferðinni.
Við brúna yfir Fnjóská ákvað Ævar að setja bens-
ín á bíl sinn úr varabrúsa, því hann bjóst við að hafa
ekki nóg til Akureyrar sem var næsti áfangastaður. Er
upp í miðja Vaðlaheiði kom tók jeppinn að hökta og
mótor að ganga skrykkjótt. Ævar grunaði hver orsökin
mundi vera og sótti tvo lítersbrúsa af prímusspritti aft-
ur í bílinn og setti á bensíntankinn svo lítið bar á, gekk
mótorinn nú eins og saumavél allt til Akureyrar. Þar
var farið með jeppann á verkstæði og kom þá í ljós,
þegar tappað var af bensíngeyminum, að hann innihélt
aðeins blávatn. Héldu sumir því fram að það væri ekki
síðra kraftaverk að breyta vatni í bensín en að breyta
vatni í vín eins og meistarinn gerði forðum. Á með-
an bifvélavirkjar fóru höndum um vélina var snæddur
síðbúinn hádegisverður á Hótel KEA. Þegar hópurinn
hafði lokið borðhaldi var komið við í Lystigarðinum
og hann skoðaður. Áfram var svo haldið vestur um
til Skagafjarðar þar sem varið var drjúglöngum tíma
til að skoða steinrunnu trjábolina inn í Kotagili. Það
sem eftir lifði leiðar var lítið stoppað, aðeins hafður
stuttur stans til nauðþurfta í Staðarskála í Hrútafirði.
Þaðan var svo keyrt viðstöðulítið til Reykjavíkur og
árangursríkri kynningar og vinnuferð lokið kl. 22:30
um kvöldi.
108 JÖKULL No. 65, 2015