Jökull


Jökull - 01.01.2015, Page 113

Jökull - 01.01.2015, Page 113
Jöklarannsóknafélag Íslands FUNDIR Að venju hélt félagið þrjá almenna fundi í sal 132 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Á aðal- fundi 25. febrúar talaði Hálfdán Ágústsson um veður á fjöllum. Fundinn sóttu um 45 manns. Á vorfundi sem haldin var 6. maí fjallaði Helgi Björnsson um leit að flugvélum úr seinni heimstyrjöld í Grænlands- jökli. Og eftir hlé sýndi Sverrir Hilmarsson myndir frá Suðurskautslandinu, en þar hefur hann verið tíð- ur gestur undanfarin ár. Rúmlega 50 manns mættu. Á haustfundi fjallaði Kristín Jónsdóttir um umbrotin í Bárðarbungu og Guðrún Larsen fjallaði um gossögu Bárðarbungukerfisins og háttarlag eldgosa þar. Fund- urinn var vel sóttur. ÚTGÁFA JÖKULS Sextugasta og þriðja hefti Jökuls kom út í byrjun árs- ins. Í ritinu eru sjö ritrýndar vísindagreinar auk tæp- lega 40 blaðsíðna af ýmsu félagsefni, m.a. skýrsl- um um jöklabreytingar, gufusprengingar og hlaup úr Kverkfjöllum í ágústmánuði og frásögn Halldórs Ólafssonar af skíðagöngu yfir Vatnajökul fyrir tæpum 30 árum. Styrkja þarf fjárhag Jökuls en styrkir opin- berra aðila hafa nánast horfið í efnahagsþrengingum síðustu ára. Stjórnin vinnur að því að skoða valkosti í framtíðarútgáfu Jökuls, t.d. kosti þess að vísindaefnið verði alfarið opið veftímarit o.fl. Skoðað hefur verið að tengjast einhverju hinna stóru alþjóðlegu útgáfu- fyrirtækja á sviði vísinda, en kostnaður við það virðist mjög hár og erfiður að kljúfa. Ritstjórnin vinnur sem fyrr ákaflega gott starf, og ljúft og skylt er að geta þess hér að umbrotsvinna Bryndísar, aðalritstjóra, sparar félaginu verulegan kostnað á hverju ári. FRÉTTABRÉF OG VEFSÍÐA Fréttabréfið var sem fyrr í umsjá Hálfdáns. Hann sá einnig um vefsíðuna ásamt Jóhönnu Katrínu Þórhalls- dóttur. SKEMMTIFERÐIR Ekki ætlar það að ganga þrautalaust fyrir Jöklarann- sóknafélagið að komast yfir jökulinn á Okinu. Sum- arferðin á Okið, sem áætluð var fyrstu helgi júlí- mánaðar, varð minni en til stóð vegna mjög slæmr- ar veðurspár, og er það annað árið í röð sem þetta gerist. Jafnframt voru veðurútlit fyrir Vesturland það slæmt að ákveðið var að fara í Bása í Þórsmörk og gera það besta úr risjóttri veðurspá. Sjö manns mættu og heppnaðist allt vel þó fámennt væri. GJÖRFÍ Gönguhópurinn GJÖRFÍ starfaði af fullum krafti. Farnar voru allmargar styttri gönguferðir í nágrenni Reykjavíkur samkvæmt dagskrá sem birst hefur í fréttabréfinu. SKÁLAMÁL Í Jökulheimum hélt skálanefndin áfram endurbótum. Eldhúshliðin á gamla skálanum var klædd upp á nýtt auk þess sem að nýrri skálinn var málaður, en vætu- tíð hindraði málun þess gamla. Gamla rafstöðin af Grímsfjalli sett niður í vélaskemmunni og hún tengd við húsin. Jafnframt var farið unnið að viðhaldi og viðgerðum á rafkerfi Jökulheima. Á Grímsfjalli var unnið með Neyðarlínunni að því að koma nýju raf- stöðinni í gang. Ýmsir byrjunarörðugleikar komu fram við nýju vélina en Neyðarlínumenn sáu að mestu um viðgerðir. Í haust var vélin dauð í þrjár vikur og gerði skálanefndin út leiðangur þann 9. nóvember þar sem vélin var sett í gang og hefur hún verið til friðs síðan. Einnig þurfti að skipta um rafgeymi á Gríms- fjalli. Til stóð að mála og þétta alla skála á fjallinu og hófst verkið með því að vorferðin skóf veggi og gerði klárt fyrir málningu. Það fór þó svo að aldrei viðraði þokkalega til málningar þetta vætusumar. Verkið þarf því að klára næsta sumar. Sama á við um Kverkfjöll, en þar var allt unnið undir málningu en ekki tókst að mála. BÍLAMÁL Nýtingin á Fordinum var svipuð og undanfarin ár. Engar óvæntar bilanir komu upp á árinu en gera þurfti við slit af ýmsu tagi. Í haust var unnið að viðgerðum á boddífestingum og púðum. Tvær ferðir voru farn- ar þar sem greiðslur fengust fyrir afnot af bílnum og er það vel. Geymsla bílsins í bænum er ekki viðun- andi og þarf að hann því að standa úti yfir veturinn. Í gangi eru þreifingar um öflugri jöklakerru sem ráði við umfang vorferðar, en ekkert hefur verið ákveðið. SAMSTARF VIÐ LANDSVIRKJUN Eins og fram kom í síðustu árskýrslu varð nokkur breyting á formi samstarfs félagsins við Landsvirkjun JÖKULL No. 65, 2015 113
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.