Breiðfirðingur - 01.04.2009, Page 62
60
BREIÐFIRÐINGUR
S.E. Sæmundsen í Ólafsvík. Bókað er í fundargerð. „Fundurinn
komst að þeirri niðurstöðu að enn einu sinni væri óumflýanlegt
að reyna að koma í veg fyrir blautfisksinnlátningu á næstkomandi
vetri, en reyna heldur að fá lán í kaupstöðum upp á verkaðan
fisk í sumarkauptíð“. Fundurinn skoraði svo á þá Lárus Skúlason
hreppstjóra og Brand Bjarnason hreppsnefndaroddvita „að
gjöra fyrirspurn til viðkomandi sýslumanns hvort að S.E.
Sæmundsen í Ólafsvík eður aðrir hafi nokkra lagaheimild til
þess að kaupa hér blautan fisk eða selja hér nokkra vöru (eins
og að undanfömu hefur átt sér stað) nema þeir hafi þar til leyst
leyfisbréf." Tuttugu og níu fundarmen skrifa nafn sitt undir
fundargerðina. Viku síðar er dagsett bréf þeirra Lámsar og
Brands til sýslumanns þar sem ítrekuð var samþykkt fundarins
og sent afrit af fundargerðinni.
Að koma í veg fyrir blautfiskkaupin var mikið hagsmunamál
fyrir Sandarana á þessum tíma. Það skipti miklu máli fyrir
hvern og einn að fá sem mest fyrir hvem fisk sem að landi
náðist. Með því að verka fiskinn, salta og þurka varð mikil
verðmætisaukning. Lárus ræddi um það á fundum að sjómenn
þyrftu að koma sér upp aðstöðu til samsöltunar. Þannig að hver
og einn þyrfti ekki að fást við söltunina. En hann var á sama
tíma að berjast á öðrum vígstöum og sigur þar átti eftir að
gjörbreyta stöðunni í þessu máli. Á Alþingi sumarið 1901 lagði
alþingismaður Snæfellinga Láms H. Bjarnason fram fmmvarp
um löggildingu verslunarstaðar á Hellissandi.
Þingmaðurinn flutti snjalla ræðu til skýringar og stuðnings
frumvarpinu við fyrstu umræðu þess í neðri deild. Þar var
frumvarpið samþykkt til efri deildar með 14 atkvæðum. Þegar
fmmvarpið kom til umræðu og afgreiðslu í efri deild þá flutti
þingmaður Barðstrendinga, Sigurður Jensson, ræðu. Sú ræða
var svona: „Af því að mér hefir verið send bænarskrá um, að á
Hellissandi verði löggiltur verslunarstaður, vildi ég mælast til
að menn kynntu sér þá bænarskrá, sem lögð hefir verið fram á
lestrarsalinn, áður en þeir greiði atkvæði gegn þessu frumvarpi.