Breiðfirðingur - 01.04.2009, Page 74
72
BREIÐFIRÐINGUR
Laugum til suðurs. Kristín B.Tómasdóttir kennari á Laugum til
fjölda ára sagði í samtali 9. nóv. 2004 „að hún hefði aldrei talið
að um annað bæjarstæði gæti verið að ræða en þar sem gamli
bærinn stóð“. Aðspurð taldi hún að ekki kæmi neinn annar
staður til greina en fyrr greindur staður.
Frásögu Laxdœla sögu má skilja á þann veg að laugin hafi
verið langt frá bænum. Þar sem Guðrún tekur fram að menn
„ríði til vor“ sem útleggst heim til hennar. Hvers vegna „ríða til
vor“ en ekki einfaldlega komi, gangi eða noti annað áþekkt
orðalag. Hér virðist að komið sé misræmi í staðfræði Laxdæla
sögu sem lítur þó út fyrir hafa verið skrifuð af staðkunnugum
manni. Eftir þennan vitnisburð manna sem þekkja vel aðstæður
á Laugum virðist ekki vera um mörg góð bæjarstæði að velja.
Eftir að hafa verið með gönguleiðsögn nokkur sumur um
heimahaga Guðrúnar Osvífursdóttur og leiðbeint um göngu-
leiðir á svæðinu er ekki hægt að sjá hvar annað bæjarstæði gæti
verið. Þetta misræmi í Laxdæla sögu leiðir hugann að hvort það
hafi verið laugar á staðnum, en ekki bara laug.
Ein eða tvær laugar?
I Laxdœla sögu er sagt frá baðferðum þeirra fóstbræðra
Kjartans og Bolla: „Kjartan fór oft til Sælingsdalslaugar. Jafnan
bar svo til að Guðrún var að laugu“. Mörgum hafa verið þessar
baðferðir fóstbræðranna Kjartans og Bolla hugleiknar og einn
af þeim er Einar Kristjánsson skólastjóri og fræðimaður. Hann
segir svo í grein sinni „Sundlaugin á Laugum“ 50 ára:
„Kjartan fór opt til Sælingsdalslaugar, jafnan bar svá til, at
Guðrún var at laugu, ... “ Mun þessi frásögn vera elsta
heimild um hina fornu laug á söguöld. Mun sundlaug þessi
hafa verið notuð á tímum Sturlunga, svo og baðlaug sú, er
stóð við hlíðarfót og víðar er vitnað til, ... Samkvæmt
framansögðu hafa upphaflega verið gerð tvö jarðhita-
mannvirki á Laugum, annars vegar torflaug undir bökkum