Breiðfirðingur - 01.04.2009, Blaðsíða 81
BREIÐFIRÐINGUR
79
sagt mér. Þegar ég var ungr, man ég eftir, að fréttist eitt haust
eftir að miklar rigningar höfðu gengið, að aurskriða væri
hlaupin þar niðr og hefði skemt mikið og fyllt laugina. Nú sést
þar ekkert nema ómerkileg hola, og með því ekkert hefir verið
við hana gert síðan, er óvíst, að menn viti, hvar sú upprunalega
laug hafi verið (Sigurður Vigfússon, 1882, bls. 73).
Það fer ekki á milli mála að Sigurður sá „ómerkilega holu“ en
hvað hann var að meina með að óvíst „sé hvar sú upprunalega
laug hafi verið" er ekki ljóst. Telur hann þá að þessi óljósa hola
sé ekki þar sem laugin átti að hafa verið, eða sá hann bara
einhverja holu í skriðurótunum fyrir ofan bæinn? Sigurður er
ekki beint nákvæmur í staðsetningu á lauginni, segir hana „þar
í brattlendinu fyrir ofan túnið“. Ef til vill telur Sigurður þetta
vera nægilega nákvæma staðsetningu þar sem ekki getur verið
um stórt svæði að ræða sem laugin leyndist undir.
W.C. Collingwood kemur á ferð sinni um Island 1897 að
Laugum og honum eins og Morris er Guðrún afar hugstæð.
Hann telur að: „Aður fyrr hafi þessir hverir verið vandlega
yfirbyggðir og leiddir í stokka, en síðan hafi skriður fallið og
eyðilagt þessi gömlu mannvirki. Enn vatnið kraumar en sem
áður fyrr og gufar upp í loftið. Engum kemur til hugar að pípur
frá þessum uppsprettum. Heldur verða veslings konumar að
burðast með þvottin þangað, skola hann undir himni, en ískalt
eða sjóðandi vatnið rennur ofan hlíðina. Heldur óburðug
þvottamennska!“. Þannig hefur hann haft spurnir af þessari
laug og gert sér hugmyndir um hvernig hún hafi verið. Hvað
skyldi hann vera að eiga við þegar hann segir að hverirnir hafi
verðið vandlega yfirbyggðir? Vitað er að Rómverjar byggðu
vönduð baðhús yfir volgar uppsprettur á Englandi, skyldi hann
hafa hugsað sér áþekkar byggingar á Laugum?
Nú eru engir hverir á Laugum, aðeins þessar tvær uppsprettur
tæplega 60 gráðu heitar. Sú sem hér er um rætt er aðeins kaldari
heldur en uppsprettan í Hveragilinu. Collingwood hefur áhyggjur