Breiðfirðingur - 01.04.2009, Side 87
BREIÐFIRÐINGUR
85
Þegar laugin á Laugum finnst og verður grafin upp, gæti
hún hugsanlega orðið gott dæmi um sannfræði Islend-
ingasagnanna. Fólk gæti séð hvernig laugar litu út fyrir nokkur
hundruð árum, því ekki hefur veri hróflað við þessari laug svo
vitað sé í tvær aldir. Miðað við það sinnuleysi sem henni var
sýnt á síðustu dögum hennar ofanjarðar, þegar ekki þótti taka
því að moka úr henni skriðunni, er ekki líklegt að hún hafi verið
hlaðin upp nokkru áður. En hafi hún verið hlaðin upp, þá má
ætla að fomleifafræðingar geti séð það og leitt líkum að hvernig
hún hafi verið í upphafi.
Þá geta Dalamenn boðið upp á menningarminjar í ferða-
þjónustu og sýnt sögulega laug sem ritheimildir segja frá, en
þurfa ekki lengur að bjóða upp á tilgátu og eftirlíkingu af
sögualdarminjum.
Heimildir
Collingwood, W. C. 1991. Fegurð íslands. Reykjavík: Bókaútgáfan
Öm og Örlygur HF.
Dalasýsla. 2003. Sýslu og sóknarlýsingar Hins íslenska bókmenntafélags
1839-55. Einar G. Pétursson sá um útgáfuna. Reykjavík: Sögufélag,
Örnefnastofnun Islands.
Eggert Ólafsson og Bjami Pálsson. 1981. Ferðabók Eggerts Ólafssonar og
Bjama Pálssonar 1752-1757. Reykjavík.
Einar Kristjánsson. 1983. „Sundlaugin á Laugum 50 ára“. Breiðfirðingur, 41.
árgangur, bls. 35-47
Gísli Gestsson. Laugar í Sælingsdal. Ódagsett, ljósrituð skýrsla um
Rannsókn á Laugum 1956 með tveim teikningum, dagsettum 13. júní 1956.
Guðmundur Ólafsson. 1999. Leitin að týndu lauginni Sælingsdalslaug.
Rannsóknarskýrsla. Reykjavík: Þjóðminjasafn Islands.
Jón Guðnason. 1961. Dalamenn II, Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur.
Kálund, Kristian. 1985. Islenskir sögustaðir II. Reykjavík:
Bókaútgáfan Örn og Örlygur HF.
Laxdæla saga. 1934. Einar Ól. Sveinsson gaf út. Islensk fomrit.
Reykjavík: Hið íslenska fomritafélag.
Morris, W. 1975. Dagbækur úr íslandsferðum 1871-1873. Reykjavík: Mál og
menning.