Breiðfirðingur - 01.04.2009, Page 107

Breiðfirðingur - 01.04.2009, Page 107
BREIÐFIRÐINGUR 105 með allgóða almenna menntun og mikla reynslu af félagsmálum og opinberum störfum, en þeim hafði hann gegnt lengi fyrir sveit sína og sýslu. Ég var ekki lengi að mynda mér álit á þessum manni. Hann var trausts verður. Maður sá það á honum við fyrstu sýn. Auðvitað kom það til kasta skólanefndarinnar að ráða þennan mann til starfa. Álit hennar var einróma. Geir var ráðinn kennari við Djúpárskóla. Geir kom, eins og fyrr sagði, að áliðnu sumri. Þannig hittist á, er hann bar að garði, að mikið rok var og hey tekið að fjúka víða á túnum. Minnir, að þetta hafi verið há. Urðu nokkrir heyskaðar í sveitinni eða þorpinu, sem nefnt hefur verið elsta sveitaþorp á íslandi. Við Geir ræddumst við í skrifstofu minni í Gerði. Síðan hélt hann á fund formanns skólanefndar, sem var séra Sveinn Ögmundsson, í næsta húsi við mig, og heitir Kirkjuhvoll. Honum leist vel á Geir. Maðurinn var ekkert unglamb lengur, orðinn 64 ára. Alla ævi bindindismaður á tóbak og áfengi. Þeir voru það flestir, gömlu ungmennafélagamir. Bindindisheits var krafist af þeim, sem gengu í þau samtök framan af. En svo var farið að slaka á og allt fór úr böndunum, hvað þetta snerti. Geir var trúr sinni hugsjón. Kennslan hófst, eins og gert var ráð fyrir, í byrjun október. Þegar að því kom, var ég nýkominn úr Reykjavík. Hafði lokið við síðustu prófin við Menntaskólann í Reykjavík, öðru nafni stúdentspróf. Mér brá ekkert við það. Hóf mín venjulegu störf, tók meira að segja til við að hefta bækur og búa þær undir band, Svo réðist, að Geir yrði til húsa hjá okkur í Gerði. Hann fékk annað litla herbergið, milli hjónaherbergis og skrifstofu. Þar kom hann sér vel fyrir. Ég tók fljótt efir því, að þessi maður var hirðusamur í besta lagi. Allt, sem hann hafði meðferðis, var í röð og reglu: Það lxkaði mér vel, sem aldrei þoli að sjá neina óreiðu á hlutunum. Geir var einnig í fæði hjá okkur. Það gerði félagsskap
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.