Fréttablaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 2
K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D
Kjóll
5590 kr. Peysa
4790 kr.
Veður
Norðaustanátt 13-24 m/s og hvass-
ast á SA-landi fyrri part dags, en á
Vestfjörðum seinnipartinn. Rigning
A-til og talsverð úrkoma á SA-landi
en dregur úr úrkomu í kvöld. Úr-
komulítið V til. sjá síðu 50
Nýr kafli hjá Fréttablaðinu
Ritstjórn Fréttablaðsins og skrifstofur Torgs, útgefanda blaðsins, eru fluttar á Hafnartorg í miðborg Reykjavíkur. Fréttablaðið er með fyrstu fyrir-
tækjum sem flytja inn í þetta nýja hverfi í hjarta miðborgar Reykjavíkur og hefur komið sér fyrir á 4. hæð hússins. Nýtt heimilisfang Fréttablaðsins er
Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík. Nýtt símanúmer Fréttablaðsins er 550-5000. Netfang ritstjórnar er ritstjorn@frettabladid.is. Fréttablaðið/anton brink
Reykjavík „Þetta var bara til mín,
þannig var það skilgreint, að þetta
var persónulega ætlað mér,“ segir
Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri,
um gjöf sem hann fékk frá götulista-
manninum heimsþekkta Banksy,
þegar hann var borgarstjóri.
Myndin prýddi borgarstjóraskrif-
stofu Jóns, að kröfu listamanns-
ins, frá því að hann fékk hana og
þar til hann lét af embætti. Nýverið
birti Jón Gnarr mynd af sér á Twitter
þar sem sjá mátti að myndin, sem
telja má einstaka, prýðir nú vegg á
heimili hans.
Í viðtali við Jón frá árinu 2012 við
vefinn The Rumpus berst verkið á
skrifstofu hans í tal. Þar upplýsir
Jón að hann hafi sent Banksy skila-
boð og óskað eftir mynd. Hann hafi
fengið jákvætt svar frá talskonu
listamannsins, gegn því skilyrði að
hún myndi hanga á vegg borgar-
stjóraskrifstofunnar. Banksy virðist
því hafa verið upplýstur um að
þarna hafi borgarstjóri Reykjavíkur
verið að óska eftir mynd, en strangar
reglur gilda um gjafir sem kjörnir
fulltrúar mega þiggja. Kveðið er á
um það í siðareglum kjörinna full-
trúa Reykjavíkurborgar. Aðspurður
kveðst Jón hins vegar ekki hafa
óskað eftir myndinni í krafti borgar-
stjóraembættisins.
„Nei, það var ekkert. Ég hafði
samband við hann og óskaði eftir að
fá verk frá honum og eftirlét honum
með hvaða hætti eða hvernig verk
það væri. Þannig að hann vildi bara
gefa mér þetta verk. Hann gerir það
voða sjaldan. Hann gefur yfirleitt
ekki verk,“ segir Jón.
Hann segir að þegar upp var
staðið, hafi enginn vafi leikið á því
að verkið tilheyrði honum en ekki
embættinu.
„Það var enginn í neinum vafa um
að þetta var eitthvað sem tilheyrði
mér og hafði ekkert með það að
gera að ég væri borgarstjóri. Það er
voða mikið prótókol á því hvað þú
mátt þiggja af gjöfum, en sem ein-
staklingur máttu alveg fá gjafiir. Það
var aldrei skilningur neins að þetta
væri einhverjum vafa undirorpið.
Hefði ég haldið að það væri einhver
minnsti vafi á því hefði ég aldrei
þegið það.“
Miðað við stærð verksins og sér-
stöðu má áætla að það sé hæglega
milljónavirði sé miðað við sölu- og
uppboðsverð á eftirprentunum víða
á netinu. Jón kveðst þó aldrei hafa
látið meta það. mikael@frettabladid.is
Banksy persónuleg gjöf
og endaði heima í stofu
Breski listamaðurinn Banksy færði Jóni Gnarr, þáverandi borgarstjóra, mynd að
gjöf með því skilyrði að hún yrði á skrifstofu borgarstjóra. Strangar reglur gilda
um gjafir til kjörinna fulltrúa. Persónuleg gjöf segir Jón. Myndin milljónavirði.
banksy vakti ávallt athygli gesta á skrifstofu Jóns Gnarr. Fréttablaðið/GVa
banksy í stofunni. twitter/Jón Gnarr
Dómsmál Konan sem handtekin
var vegna bruna á Selfossi sagði lög-
reglu að húsráðandinn hefði kveikt
í gardínum á neðri hæð hússins.
Tvennt lést í eldsvoðanum. Lög-
reglustjórinn á Suðurlandi taldi
að úrskurða ætti konuna áfram í
gæsluvarðhald en Landsréttur felldi
úrskurð Héraðsdóms Suðurlands
úr gildi. Í úrskurði Landsréttar er
vitnað í yfirheyrslu konunnar þar
sem hún segir húsráðandann hafa
kveikt í pítsukössum á stofugólfi
neðri hæðar hússins. Kvaðst hún
hafa skammað manninn og hellt
bjór yfir kassana til að slökkva
eldinn.
Annað þeirra sem síðar lést hafi
komið niður og átt í orðaskiptum
en síðan snúið aftur á efri hæðina.
Þá hafi maðurinn kveikt í gardínum
aftan við sófa í stofunni með kveikj-
ara. Þá kvaðst konan hafa farið í
svokallað „blackout“ og ekki muna
eftir neinu fyrr en hún var komin út
úr húsinu með manninum.
Samkvæmt því sem fram kemur í
úrskurðinum er rannsókn málsins
á frumstigi. Við yfirheyrslu sagðist
maðurinn muna óljóst eftir því að
hafa kveikt eld í pappakassa í stof-
unni. Atvik muni hann óljóst en
skyndilega hafi eldur verið kominn
út um allt. – bsp
Maðurinn hafi
kveikt í gardínu
Við Héraðsdóm Suðurlands.
bjöRgunaRmál Sementsflutninga-
skipið Fjordvik kom til Keflavíkur
um klukkan níu í gærkvöld eftir
að björgunarmenn náðu því á flot
af strandstað við hafnargarðinn í
Helguvík.
Á þriðja tug manna vann að því
að losa skipið. Tveir dráttarbátar
ásamt varðskipinu Tý sigldu með
skipið til Keflavíkur. „Ég er að horfa
á það út um gluggann og sé ekki
betur en að þetta hafi gengið eins
og í sögu,“ sagði Kjartan Már Kjart-
ansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar,
við Fréttablaðið í gærkvöld. Setja á
Fjordvik í þurrkví í Hafnarfirði. – bsp
Fjordvik á flot
Fer í þurrkví í Hafnarfirði. Mynd/lHG
1 0 . n ó v e m b e R 2 0 1 8 l a u g a R D a g u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
5
A
-5
F
D
8
2
1
5
A
-5
E
9
C
2
1
5
A
-5
D
6
0
2
1
5
A
-5
C
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K