Fréttablaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 96
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð
vegna andláts elsku móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Halldóru Guðmundsdóttur
frá Raufarhöfn,
Lyngholti 6, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Reynihlíð
fyrir góða umönnun.
Guðmundur Bárðarson Steingerður Steinarsdóttir
Jóhanna Bárðardóttir Guðni Þóroddsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Guðrún Frances Ágústsdóttir
verður jarðsungin frá Garðakirkju
nk. þriðjudag 13. nóvember kl. 13.00.
Katrín Þ. Magnúsdóttir Magnús Kristinsson
Guðjón H. Magnússon
Ágústa S. Magnúsdóttir Hafsteinn K. Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg þjónusta
athofn@athofn.is - www.athofn.is
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919
Inger Steinsson
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Emilía Jónsdóttir,
félagsráðgjafi
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ég er mjög glöð og tilbúin að takast á við þetta starf,“ segir Ása Richardsdóttir, stödd í München í Þýskalandi, á stórum fundi sviðslista-samtakanna IETM þar sem
tilkynnt var um ráðningu hennar sem
framkvæmdastjóra þeirra frá 1. febrúar
næstkomandi. Hún segir að rúmlega 50
manns hafa sótt um embættið. „Fyrst
voru valdir átta og svo fjórir, þannig að ég
er búin að fara í tvö viðtöl og veit að rætt
var við margt fólk sem hefur haft af mér
kynni. Þetta hefur verið tveggja mánaða
ferli,“ segir hún.
Samtökin IETM eru með aðsetur í
Brussel svo þar kemur Ása til með að
búa næstu árin, eftir að hún tekur við
stöðunni. Þau eru ein þau stærstu sinnar
tegundar í heiminum. Voru stofnuð árið
1981 og eru með yfir 500 leik- og dans-
hús, hátíðir, hópa, stofnanir og samtök
innanborðs, auk listráða og menningar-
ráðuneyta margra landa.
Ása er fædd og uppalin í Kópavogi.
Þar hefur hún líka búið og blandað sér í
bæjarpólitíkina á seinni árum en fyrstu
afskipti hennar af sviðslistum var stofn-
un Kaffileikhússins árið 1994 sem hafði
aðsetur í Hlaðvarpanum, neðst við
Vesturgötuna í Reykjavík. Síðar var hún
framkvæmdastjóri Íslenska dansflokks-
ins í átta ár og forseti Leiklistarsambands
Íslands í fjögur. Nú er hún formaður
stjórnar Tjarnarbíós og síðustu átta
ár hefur hún unnið sjálfstætt í ýmsum
norrænum, evrópskum og alþjóðlegum
verkefnum. „Ég hef verið félagi í IETM
fyrir hönd mismunandi stofnana, hópa
og leikhúsa í sextán ár. Samtökin hafa
verið mín faglega fjölskylda,“ segir hún.
Ása segir Ísland hafa gengið í IETM
með því að skipuleggja stóran fund
á vegum samtakanna í október árið
2002. „Sjálfstæðu leikhúsin stóðu að
fundinum, þá voru átta slík á höfuð-
borgarsvæðinu. Við brydduðum upp
á ýmsum nýjungum, buðum til dæmis
upp á ferðalag daginn áður en fundurinn
hófst. Fólk fékk meðal annars að fara í
sund í Hveragerði, hlýða á sólótónleika
Tatu Kantoma harmónikuleikara við
200 kertaljós inni í helli og gista í kojum
í skíðaskála undir dansandi norður-
ljósum. Þannig stimpluðum við Íslend-
ingar okkur inn og forferðir hafa verið
fastur liður fyrir stóra fundi samtakanna
síðan.“
Mín faglega fjölskylda
Ása Richardsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri alþjóðlegu sviðslistasamtakanna
IETM sem yfir 500 leik- og danshús, hópar og hátíðir í fimm heimsálfum eiga aðild að.
Hlutverk IETM
Samtökin IETM standa fyrir tveimur
stórum listþingum á hverju ári
í einhverri af borgum Evrópu, auk
fjölda annarra viðburða víðs vegar
um heim. Einnig reka þau útgáfu
um málefni sviðslista, stöðu þeirra,
þróun og nýbreytni. Þau eru einn
helsti tengiliður Evrópusambandsins
þegar kemur að sviðslistum og gegna
hlutverki í stefnumótun fyrir slíkar
listir á alþjóðavísu.
https://www.ietm.org
Ása kveðst tilbúin að flytja út þó henni þyki ákaflega vænt um Ísland. Fréttablaðið/GVa
Pólskir Reykjanesbæingar fá tæki-færi til að rækta og kynna sína menningu í dag. Þá fagna þeir 100
ára sjálfstæði Póllands með hátíð í ráð-
húsi Reykjanesbæjar milli klukkan 13
og 16
„Ég á alveg von á fjölda fólks. Hvar
sem ég kem og ræði hátíðina mætir mér
gleði og eftirvænting, hvort sem viðmæl-
endur mínir eru af pólskum, íslenskum
eða öðrum uppruna,“ segir Hilma Hólm-
fríður Sigurðardóttir, verkefnisstjóri fjöl-
menningarmála í Reykjanesbæ. Hún
segir hafa verið leitað til fyrirtækja og
stéttarfélaga á svæðinu eftir samstarfi.
„Það er skemmst frá því að segja að þau
voru öll tilbúin til að styrkja hátíðina
og þau hafa gert þennan viðburð mögu-
legan,“ segir hún.
Þetta er í fyrsta skipti sem pólsk
menningarhátíð er haldin í Reykja-
nesbæ. Erlendir ríkisborgarar eru um
fjórðungur íbúa bæjarins og um 60%
þeirra eru með pólskt ríkisfang. Þjóð-
hátíðardagur Póllands er 11. nóvem-
ber og nú eru liðin 100 ár frá því ríkið
öðlaðist sjálfstæði að nýju. – gun
Hundrað ára sjálfstæði Póllands fagnað
Julia Dubrowska og Marcelina Owarska verða kynnar og alexander Grybos mun koma
fram fyrir hönd tónlistarskóla reykjanesbæjar ásamt öðrum nemendum þaðan.
Ása segir næsta stóra fund IETM
verða í Hull í lok mars, helgina sem
Bretar ganga úr Evrópusambandinu.
„Við ætlum að vera Bretunum, vinum
okkar, til halds og trausts,“ segir Ása.
Þeir hafa á síðustu vikum orðið fjöl-
mennasta þjóðin innan samtakanna.
Það er ákveðin sögn í því að ganga í sam-
tökin og efla sitt evrópska og alþjóðlega
samstarf.“
Áður en Ása tekur við nýja embætt-
inu ætlar hún að stýra norræna dans-
tvíæringnum Ísheit Reykjavík sem fer
fram víða á höfuðborgarsvæðinu 12. til
16. desember. Svo eru flutningar handan
við hornið. „Ég er algerlega tilbúin að
flytja út, þó mér þyki ákaflega vænt um
Ísland,“ segir hún og upplýsir að eigin-
maðurinn, Hjálmar H. Ragnarsson, muni
örugglega verða með annan fótinn á
Íslandi og hinn í Brussel. „Krakkarnir
okkar eru uppkomnir, þeir koma og fara
eftir því sem þeim sýnist.“
gun@frettabladid.is
1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r44 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
5
A
-A
4
F
8
2
1
5
A
-A
3
B
C
2
1
5
A
-A
2
8
0
2
1
5
A
-A
1
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K