Fréttablaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 106
Útgefandi: HS Veitur hf., kennitala 431208-0590,
Brekkustíg 36, 260 Reykjanesbæ
HS Veitur hf. hefur birt lýsingu, dagsetta
9. nóvember 2018. Lýsingin samanstendur af
tveimur aðskildum skjölum, útgefandalýsingu
og verðbréfalýsingu, og er birt í tengslum
við umsókn útgefanda um að skuldabréf í
flokknum HSVE 310138 verði tekin til viðskipta
á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingin hefur
verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu.
Lýsingin er gefin út rafrænt á íslensku. Hún er
birt á vef HS Veitna hf. á slóðinni http://www.
hsveitur.is/HSCompanyInfo/HSCompanyBonds.
aspx og verður aðgengileg þar í tólf mánuði
frá staðfestingu hennar. Útprentuð eintök
má panta án kostnaðar í gegnum netfangið
gunnlaugur@hsveitur.is.
Taka til viðskipta á Aðalmarkaði
Nasdaq Iceland hf.
Sótt verður um að Nasdaq Iceland hf. taki
skuldabréfin til viðskipta á Aðalmarkaði og mun
verða tilkynnt um slíkt með að lágmarki eins
viðskiptadags fyrirvara.
Nafnverð útgáfu
Gefin hafa verið út skuldabréf að nafnvirði kr.
5.500.000.000 sem er jafnhátt heildarheimild
flokksins. Öll útgefin skuldabréf í flokknum hafa
verið seld. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt hjá
Nasdaq verðbréfamiðstöð hf. í kr. 20.000.000
einingum. Auðkenni skuldabréfaflokksins
í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland hf. verður
HSVE 310138. ISIN númer bréfanna er
IS0000029650.
Reykjanesbær, 10. nóvember 2018
Stjórn HS Veitna hf.
Skuldabréfaflokkurinn
HSVE 310138
Birting lýsingar
Því miður er ný ljóðabók eftir Dag Hjartarson. Í gegnum alla bókina er að finna síendurtekið stef: Því miður eru allir þ j ó n u s t u f u l l t r ú a r
okkar …
„Hugmyndin að bókinni kom
til mín þegar ég hringdi í fyrirtæki
Kannski samtíma Völuspá
„Áskorunin var að halda í það óræða,“ segir Dagur. Fréttablaðið/Eyþór
Í nýrri ljóða-
bók yrkir Dagur
Hjartarson um
þjónustufulltrúa
sem mikið mæðir á.
Segist verða var við
mikinn ljóðaáhuga
þjóðarinnar.
Bókin fjallar um
átök innan fyrir-
tækiSinS, kvÍða, þögult
ofBelDi, elD og Hvað það
þýðir að vera upptekinn.
til að panta mér mat og fékk þá
meldingu að því miður væru allir
þjónustufulltrúar uppteknir. Þetta
varð kveikjan að bókinni og svo að
segja öll ljóðin byrja á orðunum:
Því miður eru allir þjónustufull
trúar okkar … og framhaldið er alla
vega, til dæmis: … með lágt sjálfs
álit/ … með athyglisbrest,“ segir
Dagur. „Í þessari bók sé ég fyrir
mér þessa þjónustufulltrúa og rödd
fyrirtækisins talar til lesendanna.
Í gegnum bókina verður til óræð
mynd af þessu fyrirtæki, sem kann
að vera tákn fyrir eitthvað stærra,
og mynd af þjónustufulltrúum, sem
eru auðvitað ekki bara þjónustufull
trúar. Bókin fjallar um átök innan
fyrirtækisins, kvíða, þögult ofbeldi,
eld og hvað það þýðir að vera upp
tekinn.“
Spurður hvort þarna séu á ferð
ádeiluljóð segir Dagur: „Við fyrstu
sýn virðist þetta vera ádeilubók en
í raun og veru er þetta bara hlutlæg
úttekt, eins konar hjartalínurit. En
slík rit kunna auðvitað að fela í sér
ákveðna heimsendaspá. Kannski er
þetta bara samtíma Völuspá.“
Þetta er þriðja ljóðabók Dags
og sjötta bók hans. Í fyrra kom út
ljóðabókin Heilaskurðaðgerðin
þar sem var að finna annan tón en í
Því miður. „Heilaskurðaðgerðin var
miklu persónulegri og þar var meiri
naumhyggja en í þessari bók, sem er
miklu samfélagsmiðaðri og pólitísk
ari. Það er ákaflega erfitt að yrkja
pólitísk ljóð því það er hætta á að
pólitíkin stroki út ljóðlistina. Áskor
unin var að halda í hið óræða.“
Dagur er spurður hvernig eigi
við hann að vera þátttakandi í jóla
bókaflóðinu. „Ég stend bara keikur,“
segir hann. „Ég setti bókina í forsölu
á netinu og auglýsti hana á Twitter
og viðtökur hafa verið einstaklega
góðar. Ég verð svo sannarlega var
við ljóðaáhuga þjóðarinnar.“
kolbrun@frettabladid.is
Hin alþjóðlega glæpasagnahátíð
Iceland Noir hefst í Iðnó föstu
daginn 16. nóvember og stendur til
sunnudagsins 18. nóvember. Fjöldi
innlendra og erlendra glæpasagna
höfunda mæta til leiks, lesa upp úr
verkum sínum og ræða í pallborði
um þessa vinsælu bókmenntagrein.
Á laugardagskvöldið verður glæpa
diskó sem hefst klukkan 20.00.
Heiðursgestir hátíðarinnar eru
nokkrir, rithöfundarnir Sjón, Shari
Lapena og Mark Billingham, for
sætisráðherra og glæpasagnasér
fræðingurinn Katrín Jakobsdóttir,
Elísa Reid forsetafrú og leikarinn
Hugh Fraser, sem fór með hlutverk
Hastings höfuðsmanns í hinum vin
sælu sjónvarpsþáttum um Poirot
þar sem David Suchet fór með aðal
hlutverkið. – kb
Hastings mætir á
glæpasagnahátíð
Hugh Fraser.
1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r54 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
5
A
-5
F
D
8
2
1
5
A
-5
E
9
C
2
1
5
A
-5
D
6
0
2
1
5
A
-5
C
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K