Fréttablaðið - 10.11.2018, Qupperneq 10
UMHVERFISMÁL „Ástæðan fyrir því
að við erum að fara af stað með
þetta verkefni er sú að það er talið
að um 150 tonn af raftækjum og
spilliefnum hafi verið urðuð í Álfs-
nesi í fyrra. Það er það magn sem
kemur frá heimilum í Reykjavík
í gegnum gráu tunnurnar,“ segir
Eygerður Margrétardóttir, deildar-
stjóri umhverfis- og úrgangsstjórn-
unar hjá Reykjavíkurborg, um til-
raunaverkefnið Spillivagninn.
Verkefnið hófst formlega í gær
þegar Spillivagninn heimsótti íbúa
Laugardals og nágrennis. Hann mun
fram til 6. desember heimsækja
öll tíu hverfi borgarinnar og geta
borgar búar þá komið með spilliefni
og smærri raftæki.
„Það eru mörg fordæmi fyrir
svona þjónustu erlendis og við
horfum meðal annars til reynslu
frá Bretlandi, Þýskalandi og Banda-
ríkjunum. Þetta er samstarfsverk-
efni borgarinnar, Sorpu og Efna-
móttökunnar en við vonumst til að
fleiri sveitarfélög taki þátt. Þau hafa
áhuga en það náðist ekki núna,“
segir Eygerður.
Spillivagninn verður svo aftur á
ferðinni í apríl og maí og mun fram-
haldið ráðast af árangrinum. „Við
vonumst til að umræða um þessi
mál verði bæði til þess að fólk noti
Spillivagninn en líka að magnið sem
er skilað á endurvinnslustöðvarnar
aukist. Þannig næði markmið verk-
efnisins fram að ganga sem er að
spilliefnum og raftækjum sé skilað á
réttan hátt. En auðvitað þurfum við
bara að reyna að nota sem minnst af
þessum efnum.“
Eygerður bendir á að um 15 tonn-
um af spilliefnum hafi verið hent í
gráu tunnurnar í Reykjavík í fyrra.
„Spilliefni eru þau efni sem geta
valdið skaða á umhverfi og heilsu
Vilja stuðla að bættum skilum
á spilliefnum og raftækjum
Tilraunaverkefnið Spillivagninn hófst formlega í Reykjavík í gær. Vagninn mun ferðast á milli hverfa borgar-
innar og taka á móti spilliefnum og raftækjum frá heimilum. Deildarstjóri hjá borginni segir að markmiðið
sé að þessum efnum sé skilað á réttan hátt en í fyrra voru um 150 tonn frá reykvískum heimilum urðuð.
Hægt er að sjá áætlun Spillivagnsins á heimasíðu Reykjavíkurborgar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
M E N N T U N Á V I N N U M A R K A Ð I
Sérfræðingur
í fullorðinsfræðslu
- SPENNANDI STARF –
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. óskar eftir að ráða sérfræðing í starf á sviði þróunar í fullorðins-
fræðslu. Um tímabundið starf er að ræða í 18 mánuði með möguleika á framlengdri ráðningu.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Fræðslumiðstöðvarinnar www.frae.is
Umsóknir sendist á frae@frae.is fyrir 19. nóv. nk.
Fullum trúnaði heitið við meðferð umsókna og öllum umsóknum verður svarað.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. er í eigu Alþýðusambands Íslands, Samtaka
atvinnulífsins, BSRB, Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytisins.
Hlutverk FA er að vera samstarfsvettvangur og sérfræðisetur aðila vinnumark-
aðarins um fullorðins- og starfsmenntun á íslenskum vinnumarkaði í samstarfi við
aðrar fræðslustofnanir.
Hjá FA vinna nú 17 starfsmenn, flestir sérfræðingar á sviði fullorðinsfræðslu.
Markmið FA er að veita starfsmönnum á vinnumarkaði, sem ekki hafa lokið prófi
frá framhaldsskóla, tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á
vinnumarkaði og auka þar með samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
• Menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
• Reynslu af fræðslumálum og almennu
atvinnulífi.
• Reynslu af verkefnastjórnun.
• Reynslu af að vinna undir álagi og í hópi.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Ritfærni í íslensku, ensku og einu norðurlanda-
máli.
Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur:
H
au
ku
r 1
1.
18
150
tonn af spilliefnum og raf-
tækjum frá reykvískum
heimilum voru urðuð í fyrra.
manna. Þau leynast víða á heim-
ilum og kannski meira en margur
heldur,“ segir Eygerður.
Dæmi um spilliefni eru þvotta- og
hreinsiefni, klór og stíflueyðir, raf-
hlöður, sótthreinsar, lím, ljósaperur,
hitamælar, þynnar, lökk, sýrur,
terpentína, tilbúinn áburður, ill-
gresis- og skordýraeitur, rafgeymar,
hreinsiefni, bensín og olíumálning.
„Svo eru raftæki auðvitað allt í
kringum okkur. Samkvæmt tölum
frá Belgíu eru 79 raf- og rafeindatæki
að meðaltali á hverju heimili og ég
held að þetta sé ekki mjög ólíkt á
Íslandi. Þegar kemur að Spillivagn-
inum erum við að horfa á minni raf-
tækin sem enda því miður oft í gráu
tunnunni,“ segir Eygerður.
Hún bendir á að raftæki sem
annaðhvort eru ónýt eða hafa
þjónað sínum tilgangi sé að hluta
til hægt að endurnýta. „Í raftækjum
leynast sjaldgæf hráefni eins og ál,
kopar, gull og kóbalt sem hægt er
nýta. Rannsóknir sýna að í hefð-
bundnum snjallsímum eru 40 mis-
munandi nýtanleg hráefni. Í öllum
snjallsímum heims er 25 til 30 sinn-
um meira magn af gulli heldur en í
stærstu gullnámu heims.“
sighvatur@frettabladid.is
Spillivagninn mun koma
í öll hverfi borgarinnar á
næstu vikum og aftur í vor.
SAMFÉLAG Mikil aukning hefur verið
á skráningum heimagistingar það
sem af er ári. Heimagistingarvaktin
sem er starfrækt af Sýslumanninum
á höfuðborgarsvæðinu hefur sam-
þykkt 1.860 skráningar á yfirstand-
andi ári en skráningarnar voru 1.059
á öllu síðasta ári.
Heimagistingarvaktin hefur að
undanförnu staðið fyrir vettvangs-
heimsóknum á höfuðborgarsvæð-
inu, Suðurlandi og Suðurnesjum. Frá
miðjum september hefur verið farið
í 136 slíkar heimsóknir.
Lögreglan hefur á þessu tímabili
stöðvað starfsemi þriggja rekstrar-
leyfisskyldra gististaða á höfuð-
borgarsvæðinu og óskað hefur verið
eftir rannsókn eða lokun átta gisti-
staða utan höfuðborgarsvæðisins.
Átján málum hefur lokið formlega
með álagningu stjórnvaldssekta og
tugir slíkra mála eru til meðferðar.
Í tilkynningu segist Þórdís Kol-
brún R. Gylfadóttir, ráðherra ferða-
mála, ánægð með árangurinn. „Það
er allra hagur að farið sé að lögum
við útleigu heimagistingar og það er
gleðilegt að átaksverkefni í heima-
gistingarvakt hefur nú þegar skilað
tilætluðum árangri.“ – sar
Mun fleiri skrá
heimagistingu
Átak í skráningu heimagistingar hef
ur skilað sér. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FÉ L AGSMÁL Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar og SFR stéttar-
félag verða sameinuð en félags-
menn beggja félaga samþykktu það
í atkvæðagreiðslu sem lauk í gær.
Hjá SFR voru rúm 57 prósent fylgj-
andi sameiningunni, um 37 prósent
andvíg og tæp 6 prósent tóku ekki
afstöðu.
Stuðningurinn við sameiningu
var meiri hjá Starfsmannafélagi
Reykjavíkur þar sem rúm 77 pró-
sent voru fylgjandi, tæp 18 prósent
andvíg og rúm 5 prósent tóku ekki
afstöðu.
Tæpt 41 prósent félagsmanna SFR
tók þátt í atkvæðagreiðslunni en hjá
Starfsmannafélagi Reykjavíkur var
þátttakan rúm 27 prósent.
Í tilkynningu segist forysta félag-
anna fagna þessum niðurstöðum og
líta björtum augum til framtíðar og
tækifæranna sem stærra og sterk-
ara stéttarfélag gefi. Alls verða um
11 þúsund félagsmenn í hinu nýja
félagi. – sar
Sameining hjá
stéttarfélögum
Formenn félaganna voru ánægðir
með niðurstöðuna. MYND/SFR
Það er allra hagur
að farið sé að lögum
við útleigu heimagistingar.
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir, ráð-
herra ferðamála
1 0 . n ó V E M b E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R10 F R É t t I R ∙ F R É t t A b L A ð I ð
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
5
A
-9
6
2
8
2
1
5
A
-9
4
E
C
2
1
5
A
-9
3
B
0
2
1
5
A
-9
2
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K