Fréttablaðið - 10.11.2018, Síða 26

Fréttablaðið - 10.11.2018, Síða 26
„Ég er reyndar öll orðin hvít núna. Með hvítar augnabrúnir og augnhár. Mér fannst þetta ómögulegt í fyrstu en þegar dr. Hamid sagði mér hvað hann væri glaður að sjá mig svona – það þýddi að með- ferðin væri að virka vel – þá tók ég útlitið í sátt. Þetta eru sigurörin mín,“ segir Elísabet Ronaldsdóttir sem gekkst undir svokallaða ónæmismeðferð við krabbameini. Mynd/Máni HRafnsson Það er blámorgunn í Vancouver. Elísa-bet Ronaldsdóttir fær sér morgunbollann á meðan hún ræðir góðar fregnir af heilsu sinni við blaðamann í Reykjavík. Elísabet var greind með fjórða stigs krabba- mein fyrir um það bil ári. Húð- krabbamein (melanóma) sem hafði dreift sér í bris. Hún er nú laus við meinið eftir að hafa gengist undir ónæmismeðferð hjá einum færasta sérfræðingi Bandaríkjanna í slíkri meðferð, dr. Omid Hamid. „Ég er í skýjunum, það er erfitt að finna orð yfir það hversu hamingju- söm ég er að fá þessa niðurstöðu,“ segir Elísabet. „Það eru svo margir þættir sem koma að bata mínum. Einn er að hafa réttar tryggingar, annar er að ég á vini sem fundu lækninn minn, dr. Hamid, og fengu hann til að taka við mér. Ég veiktist alvarlega í Vancouver í Kanada og var flutt þaðan til dr. Hamid á Cedars-Sinai-sjúkrahúsið í Los Angeles. Ég hef sem betur fer sjaldan farið á sjúkrahús. Helst til að eiga blessuð börnin mín en fór reyndar í litla aðgerð á Íslandi þar sem eitlar voru fjarlægðir, það var nokkrum mánuðum áður en ég veiktist fyrst. Það var einföld aðgerð og ekkert mál. En svo tók þetta sig upp og ég varð svona hræðilega veik,“ segir Elísabet. Eins og í vísindaskáldsögu Dr. Hamid er stórkostlegur sér- fræðingur og virtur um allan heim fyrir það sem hann er að gera hjá The Angeles Clinic. Hann sérhæfir sig í melanómakrabbameini en vegna þess hve vel gengur í þessum ónæmisfræðum er hann líka farinn að meðhöndla fólk með lungna-, brjóst- og heilakrabbamein, svo dæmi séu tekin,“ segir Elísabet. „Hann er sérstök týpa. Ég vissi það um leið og ég hitti hann að ég gæti treyst honum. Stundum reynir maður að hafa einhver ítök en ég hef ekki einu sinni yfirborðsþekk- ingu á þessum fræðum. Ég var því fegin og þakklát að gefa honum stjórnina,“ segir Elísabet. Hún segist aldrei hafa komið inn á viðlíka sjúkrahús og Cedars-Sinai í Los Angeles. „Þetta var eins og geimstöð. Allt svo glæsilegt. Stund- um fannst mér læknarnir vera eins og hólógrömm. Eins og ég væri í vís- indaskáldsögu. Dr. Hamid kynnti mig þar fyrir persneska hernum sínum eins og hann kallaði lækna- teymið. Á hverjum morgni hitti ég sex eða sjö lækna. Ég hitti til dæmis skurð- lækni á hverjum morgni, þó að það stæði aldrei til að skera mig. Ég var Þetta eru sigurörin mín ekki með skurðtækt mein. Samt gáfu allir læknarnir sér tíma til að fylgjast með. Ég geri mér fulla grein fyrir því hvað það voru mikil for- réttindi að hljóta þessa meðferð,“ segir hún. „Þegar dr. Hamid sagði mér að ég þyrfti að fara í jáeindaskanna, þá var ég bara í huganum farin í ferða- lag. Reynslan að heiman er kostuleg þar sem maður þarf að ferðast milli landa í slíkan skanna. En svo var ég bara komin í skannann eftir korter. Allar rannsóknir voru gerðar strax og án umstangs. Þróunin er stórkostleg Það væri mikil gæfa ef við á Íslandi tækjum þá ákvörðun að forgangs- raða pening inn í heilbrigðiskerfið og veita fjármagni í nauðsynlegar rannsóknir og aðgerðir. Það er ekki eins og okkur skorti snillingana og í krafti smæðar okkar og ríkidæmis ættum við að geta haldið gangandi heilbrigðisþjónustu á heimsmæli- kvarða fyrir alla Íslendinga. Eitt- hvað sem við öll gætum verið stolt af. Ég er samt alfarið á móti einka- væðingu í heilbrigðisgeiranum og alls ekki á leiðinni í framboð,“ segir Elísabet og skellihlær. Meðferðin sem Elísabet hlaut hefur vakið heimsathygli. „Þróunin er stórkostleg, þeir eru að fá Nób- elsverðlaunin fyrir framlag sitt til læknavísinda. En á sama tíma Elísabet Ronaldsdóttir, færasti kvikmynda- klippari landsins, var greind með fjórða stigs krabbamein fyrir rúmu ári en er nú laus við meinið. Elísabet gekkst undir ónæmismeð- ferð í Los Angeles og segist óska sér að hér heima á Íslandi sé hægt að byggja upp viðlíka þjónustu. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Ég vEiktist alvaRlEga í vancouvER í kanada og vaR flutt þaðan til dR. Hamid á cEdaRs- sinai-sjúkRaHúsið í los angElEs. Ég HEf sEm bEtuR fER sjaldan faRið á sjúkRaHús. HElst til að Eiga blEssuð böRnin mín En fóR REyndaR í litla aðgERð á íslandi þaR sEm EitlaR voRu fjaRlægðiR. ↣ 1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r26 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 5 A -A 0 0 8 2 1 5 A -9 E C C 2 1 5 A -9 D 9 0 2 1 5 A -9 C 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.