Fréttablaðið - 10.11.2018, Page 30
Það var ekki auðvelt að segja frá en mér fannst það nauðsynlegt. Þetta er svo persónulegt að ég ætla ekki einu sinni að selja bókina úti í bóka
búð,“ segir Dagný Maggýjar sem
gefur út bók um móður sína.
Móðir hennar ólst upp í hópi
13 systkina á Langanesi, lengst af í
Heiðarhöfn sem nú er komin í eyði.
Bók Dagnýjar kallast Á heimsenda,
sem er bæði vísun í æskuslóðirnar
og veikindi móðurinnar. Hún byggir
frásögnina á viðtali sem hún tók við
móður sína áður en hún lést og því
fylgdi hún eftir með viðtölum við
systkini hennar og æskuvini.
„Þetta er persónulegt verkefni
og því gef ég bókina út sjálf og fólk
verður að setja sig í samband við
mig ef það vill kaupa bókina. Ég get
líka komið í heimsókn til fólks sem
vill ræða við mig um efni hennar,“
segir hún.
Dagný rifjar upp með blaðamanni
ástæðu þess að hún settist niður til
að skrifa sögu móður sinnar.
„Fyrir átta árum. Stuttu fyrir sex
tugsafmæli sitt fór móðir mín í ein
falda lýtaaðgerð. Þegar hún vaknaði
eftir aðgerðina var hún orðin geð
veik. Aðeins fjórtán mánuðum
síðar misstum við hana í sjálfsvígi.
Þetta var ráðgáta sem ég vildi reyna
að leysa. Þetta var áskorun. Þetta
var ferðalag í leit að svörum,“ segir
Dagný.
„Ég vildi gera tilraun til þess að
setja andlit á þetta orð. Sjálfsvíg.
Það er líf og manneskja á bak við
tölfræðina. Ég er líka að takast á við
mína eigin fordóma og skömmina
sem fylgdi því að missa móður mína
úr sjálfsvígi,“ segir hún.
Fagfólk hefur stundum stigið fram
og varað við því að ræða þessi mál-
efni?
„Þetta er viðkvæmt og það þarf að
vanda sig. En það er miklu verra að
þegja. Það verður að vera hægt að
ræða þessi málefni. Þannig miðar
okkur miklu frekar áfram. Við erum
ekki að standa okkur nægilega vel.
Hvorki í meðferðarúrræðum né for
vörnum,“ segir Dagný.
Hún segist hafa upplifað að hafa
brugðist móður sinni. „Ég var mikið
með henni í þessum veikindum
sem hófust strax eftir að hún fór í
aðgerðina. Það gerðist eitthvað í
þessari aðgerð. Ég týndi mömmu.
Hún var orðin fárveik eftir aðgerð
ina. Það fór einhver spírall af stað
sem við náðum aldrei að stöðva.
Hún gerði þrjár tilraunir til sjálfsvígs
áður en hún lést,“ segir Dagný frá.
„Við fengum aldrei svör. Við
vorum öll dofin og fengum engin
svör. Hvað gerðist eiginlega?
Mamma var glaðlynd og tilfinn
ingarík kona. Dugleg, samvisku
söm og metnaðarfull. Svo bara gerist
þetta og svona ofsalega hratt,“ segir
Dagný.
Tveimur árum eftir að hún lést
fann Dagný upptöku með viðtali
sem hún hafði sjálf tekið við móður
sína. „Ég hafði gleymt því að ég tók
þetta viðtal við hana. Ég hlustaði á
viðtalið og fór að raða aftur saman
myndinni af mömmu. Ekki sjálfs
víginu, heldur henni. Hún var svo
miklu meira en það hvernig hún
fór,“ segir hún.
Dagný ræddi við systkini móður
sinnar og vini og bókin er skrifuð í
sátt og samlyndi við ástvini hennar.
„Ég þurfti að fá meiri upplýsingar
um æsku hennar og uppvöxt. Þegar
hún fékk fyrsta kvíðakastið eftir
aðgerðina þá grét hún og spurði
mig: Af hverju var mér kastað á milli
veggja? Af hverju vildi pabbi þinn
mig ekki?
Ég hugsaði með mér: Hvaðan
kemur þetta? Ég vissi ekki betur
en að hún hefði átt góða æsku. Það
er auðvitað þannig að þegar svona
mikil veikindi koma upp er eitthvað
undirliggjandi. Fólk harkar af sér.
Mamma hefur líklegast gert það. En
svo eldist fólk og varnirnar bresta.
Hún talaði um í veikindum sínum
að það lægi farg á sálinni,“ segir hún. „Þetta er viðkvæmt og það þarf að vanda sig. En það er miklu verra að þegja,“ segir Dagný Maggýjar. Fréttablaðið/anton brink
Magnea Guðný Stefánsdóttir
fór í einfalda lýtaaðgerð stuttu
fyrir sextugsafmælið sitt. Þeg-
ar hún vaknaði eftir aðgerðina
hafði eitthvað brostið innra
með henni. Fjórtán mánuðum
síðar batt hún enda á líf sitt.
Myndin
af mömmu
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Ég hafði gleymt
því að Ég tók þetta
viðtal við hana.
Ég hlustaði á
viðtalið og fór að
raða aftur saman
myndinni af mömmu.
1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r30 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
5
A
-7
8
8
8
2
1
5
A
-7
7
4
C
2
1
5
A
-7
6
1
0
2
1
5
A
-7
4
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K