Fréttablaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 48
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að metnaðarfullum og framsæknum hagfræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði
efnahagsmála. Starfið felur í sér stefnumörkun, ráðgjöf og greiningar. Um er að ræða nýtt starf á skrifstofu efnahagsmála.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Stefnumörkun og ráðgjöf í hagstjórn
• Samþætting heildarstefnu í efnahagsmálum
• Greiningar á stöðu og horfum í efnahagsmálum
• Kynningar á stöðu og þróun efnahagsmála í ræðu og riti
• Þátttaka í alþjóðastarfi og samskipti við erlendar stofnanir
og aðila á fjármálamarkaði
Menntunar- og hæfniskröfur
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Meistaranám í hagfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfinu
• Þekking á efnahagsmálum í þjóðhagslegu samhengi og opinberri hagstjórn
• Reynsla af greiningarvinnu sem nýtist í starfi
• Greinandi, gagnrýnin og lausnamiðuð hugsun
• Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti er skilyrði og góð enskukunnátta
er nauðsynleg
• Reynsla af notkun hagrannsóknaforrita á borð við Eviews kostur
• Góð samskipta- og skipulagshæfni auk hæfileika til að leiða teymisvinnu
HAGFRÆÐINGUR
Í boði er áhugavert starf á krefjandi og skemmtilegum vinnustað.
Á skrifstofu efnahagsmála starfa nú 4 starfsmenn en í ráðuneytinu
eru alls um 90 starfsmenn.
Nánari upplýsingar veita:
Aldís Stefánsdóttir í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, aldis@fjr.is
Inga S. Arnardóttir hjá Hagvangi, inga@hagvangur.is
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna
Stjórnarráðsins. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna
nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2018.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Skrifstofa efnahagsmála hefur umsjón með undirbúningi og eftirfylgni með efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, samhæfingu opinberrar
hagstjórnar og kynningu á efnahags- og hagstjórnarmálum innanlands og utan. Í því skyni annast skrifstofan mat á þróun og horfum
í efnahagsmálum og samskipti við Hagstofu Íslands um gerð þjóðhagsspár. Skrifstofan annast gerð hagfræðilegra athugana,
sviðsmynda- og frávikagreiningar, vöktun hagstærða og samskipti við erlend matsfyrirtæki og ýmsar alþjóðlegar stofnanir á sviði
efnahagsmála, þ.m.t. Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Efnahags- og framfarastofnunina (OECD). Skrifstofan starfar náið með öðrum
skrifstofum ráðuneytisins varðandi framgang stefnu ríkisstjórnarinnar í opinberum fjármálum.
www.landsvirkjun.is
Við leitum að sérfræðingi á fjármálasvið sem hefur umsjón með og
þróar áætlanakerfi fyrirtækisins, framsetningu stjórnendaupplýsinga,
frávikagreiningu og aðstoðar stjórnendur við rekstur eininga og verkefna.
Viðkomandi sér um upplýsingagjöf til stjórnenda, kynningar og hefur
umsjón með ýmsum fjárhagsgreiningum í starfsemi fyrirtækisins.
Starfið felur í sér náið samstarf við starfsmenn og stjórnendur Lands-
virkjunar. Í því felst virk þátttaka í þróun viðskiptagreindarkerfa,
skýrslna og mælaborða. Starfið krefst samstarfs við aðra sérfræðinga
Landsvirkjunar í leit að framsæknum lausnum.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. viðskiptafræði, hagfræði
eða verkfræði.
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun, áætlanagerð, frávikagreiningum,
kostnaðareftirliti og almennri gagnaúrvinnslu.
- Góðir samstarfshæfileikar og frumkvæði, góð íslensku- og ensku-
kunnátta.
Viltu greina fortíðina
og hafa áhrif á framtíðina?
Sótt er um starfið á vef Hagvangs, www.hagvangur.is. Nánari upplýsingar: Inga Steinunn
Arnardóttir (inga@hagvangur.is). Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2018.
Landsvirkjun ber gullmerkið í Jafn launa
úttekt PwC, sem stað festir að fyrirtækið
greiðir körlum og konum jöfn laun fyrir
sömu eða jafnverðmæt störf.
Landsvirkjun hvetur konur
jafnt sem karla til að sækja
um starfið.
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
5
A
-B
8
B
8
2
1
5
A
-B
7
7
C
2
1
5
A
-B
6
4
0
2
1
5
A
-B
5
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K