Ný Dögun - 01.11.1991, Side 37

Ný Dögun - 01.11.1991, Side 37
/sJý T>ögu*\ Ekki eru allir rannsakendur sammála um það, hvenær börn fari að ganga í gegnum heildstætt sorgarferli. En böm sýna missis- eða sorgarviðbrögð mjög snemma, jafnvel á síðari hluta fyrsta æviárs. Hins vegar eru deildar meiningar um það, hver langtíma- áhrif sorgar í frumbemsku séu. Þó eru flestir sammála um það, aðbörn þurfi í einhverjum mæli að fá að vera þátttakendur í sorg fjölskyldu sinnar. Ég vil gera að umræðuefni aldurinn fram til 5-6 ára aldurs. Á þeim aldri þarf sérstak- lega að hafa í huga, að börnin sjá ekki dauð- ann sem endanlegan. Þau skilja ekki hvernig einhver getur verið grafinn í jörðu og jafnframt verið uppi á himni hjá Guði. Á þessum aldri eru þau jafnframt sjálfhverf, sjá sig sem miðpunkt alheimsins og miða atburðarás hugsanlega við það, sem þau eru að hugsa eða segja. Þetta er sérstaklega mikilvægt, ef barn hefur borið kala til þess, sem er dáinn og getur í eigin huga tengt dauða viðkomandi við eigin orð og athafnir. Þetta getur leitt til þess, að börnin finni fyrir sektarkennd, sem fylgi þeim um langan aldur. Jafnframt þarf að skoða vel í h vern búning við setjum útskýringar okkar trúarlega. Myndin af afa, sem er á himnum og fylgist með þér í gegnum gat á himninum virðist vera sakleysisleg, en hvað ef barnið gerir eitthvað af sér og fer að óttast þennan afa, sem allt sér? Eða bænir, sem fela í sér návist engla, sem bamið þekkir ekki og er þar af leiðandi hrætt við. Það þarf sem sagt, að ræða vandlega um þær myndir, sem við gefum börnum okkar af lífi og dauða. Þegar börnin eldast, fara myndir af dauðanum að breytast. Á aldrinum 5-10 ára má reikna með mótaðri hugmyndum um endanleika dauðans og jafn vel um himnaríki og helvíti. Og svo má reikna með enn frekari brey t- ingum um eða upp úr 10 ára aldrinum, þegar börn fara að móta með sér huglæga mynd af dauðanum, þau fara að spyrja meira um efnislega orsök og hafa vitsmunalegan þroska til að spyrja mjög nærgöngulla spurninga. Algeng viðbrögð barna við missi eru: - Þau óttast að vera skilin eftir. - Myrkfælni. - Söknuður. - Sektarkennd. - Reiði. - Svefnörðugleikar. - Áleitnar minningar. - Námsörðugleikar. - Líkamleg einkenni. En missisviðbrögð koma fram við fleiri aðstæður en við dauða. Missir getur tengst breytingum á líkamsímynd, búferlaflutn- ingum, skólagöngu, fæðingu systkina, sem leiðir til minni athygli foreldra gagnvart barninu, sem fyrir er, brey tingum á vinahópi, skilnaði foreldra, alvarlegum veikindum einhvers í fjölskyldunni, atvinnuleysi for- eldra, vímuefnanotkun foreldra og svo mætti lengi telja. Kistulagning og útför Eiga börn erindi í kistulagningarathafnir og útfarir? Hér þarf að hafa í huga aldur barnanna og þroska, auk þess, sem það skiptir máli, að kistulagningarathöfnin er sérstök athöfn fyrir nánustu fjölskyldu, á meðan útförin er opin athöfn fyrir samfélagið allt. Að mörgu leyti hentar útfararathöfnin illa fyrir ung börn, þar sem hún er löng og ung böm með takmarkaða þolinmæði. Auk þess þarf að tryggja við útfararathöfnina, að séu börn viðstödd, þá hafi þau stuðnings- aðila sér við hlið, sem í mörgum tilfellum væri ekki foreldri, þar sem foreldrar geta verið uppteknir af eigin sorg og ekki meðvitaðir um þarfir bamanna. Hins vegar er meira svigrúm við kistulagningarat- höfnina. Hægt er að leyfa börnunum að mæta snemma og fá útskýringar á því, sem fyrir augu ber og veita þeim sérstaka athygli. Ég hvet ennfremur fjölskyldur til að hjálpa börnunum til að finna sér hlutverk. Það getur verið svo einfalt sem, að þau fái að leggja blóm í kistu þess sem dáinn er, eða mynd, sem þau hafa teiknað. 37

x

Ný Dögun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.