Ný Dögun - 01.11.1991, Síða 44
/s]ý Dögun.
við mig var sagt: „Ólöf mín þú ert s vo ung og
átt eftir að hitta annan mann", þegar ég var
við það að gefast upp. Eða að segja við
foreldra er misst hafa eitt bam af fjórum:
„þið eigið nú þrjú enn".
□ Reyndu að setja þig í spor vinar þíns.
Ef þú ert með vini þínum í margmenni og
sérð að hann er við það að bresta í grát,
segðu þá ekki: „Er allt í lagi með þig".
Reyndu frekar að styðja vin þinn með því að
hæla honum, „ þú stendur þig vel".
□ Ekki lofa nema þú sért þess fullviss
að geta staðið við loforðið.Kunningi minn
sagði við mig: „Ef það er eitthvað sem ég get
gert fyrir þig láttu mig vita". Ég sagði kvíðin
að ég hefði áhy ggjur af garðinum, það þyrfti
að slá, þá sagði hann: „Ég átti ekki við það,
þú hefur nú gott af því að hreyfa þig".
□ Gerðu þér grein fyrir því að ein-
f öl dustu verk geta reynst vini þínum ofviða.
Venjuleg heimilisverk, eru oft mjög erfið
fyrst eftir missi. Það krefst orku, sem vinur
þinn hefur ekki. Mikilvægt er að bjóðast til
að vinna heimilisverkin, versla og spyrja:
„Get ég gert eitthvað fyrir þig"?
□ Mundu umfram allt, að sá sem hefur
misst er manneskja rétt eins og allir aðrir,
með þarf ir f yrir vináttu, f élagsskap, útiveru
og uppbyggilega skemmtim. Vinur þinn
þarfnast hjálpar þinnar til að skapa nýtt líf,
hann er óöruggur í sínu eigin umhverfi, því
hann þekkir ekki sjálfan sig eða viðbrögð
sín. Því þarf hann oft á tíðum fylgd meðan
hann stígur fyrstu skrefin út í lífið á ný.
□ Ekki vera hræddur við að standa
augliti til auglitis við þann, sem hefur
nýlega misst. Ef þú hittir syrgjanda óvænt,
náðu þá augnsambandi. Það særði mig mikið
að sjá gamla kunningja forðast mig.
□ Gefðu til kynna að þú haf ir frétt and-
látið. Sumir tala um allt og ekkert, og að
lokum veit syrgjandinn að þú veist, vegna
þess að annars hefðirðu spurt frétta. Þetta
getur valdið því að syrgjandinn treysti sér
ekki heldur til að tala um þann látna, og við
það geturðu sært án þess að þú vitir af. Það
er betra að muldra: „Ég var svo miður mín
þegar ég heyrði lát..."
□ Hvenær áttu að hringja?Á laugar-
dagskvöldum og sunnudögum finnur vinur
þinn hvað sárast fyrir missinum, því þá var
fjölskyldan vön að vera saman. Hringdu á
þessum tíma.
□ Aðhlustaávinþinníneyðerbestaog
mikilvægasta hjálpin, sem þú getur veitt.
En hæfnin að hlusta af skilningi er ekki
öllum gefin í vöggugjöf. Hún krefst þjálf-
unar, en hafðu það að leiðarljósi að einsetja
þér að skilja sem best hvernig vini þínum
líður. Því betur sem þú reynir að átta þig á
líðan hans, því meiri stuðning veitir þú
viðkomandi.
□ Hikaðu ekki við að nefna nafn hins
látna. Ágætt er að æfa sig áður en þú hittir
vin þinn.
□ Ekki vanrækja vin þinn þegar frá
líður. En því miður, þá gætir þess nú í ríkara
mæli að syrgjandinn einangrist í sorg sinni.
Orsakir þessa eru margvíslegar, ein þerra er
þó tvímælalaust vanþekking á sorginni
sjálfri.
Þú sem átt um sárt að binda og lest
næstu línur, vertu minnugur þess að sorgin
hefur á sér margar hliðar. Það sem kom mér
best þarf ekki endilega að henta þér.
„Betra er að gefa en þiggja". Þegar ég var
aumust í minni sorg og átti ekkert að gefa, þá
hugsaði ég oft, að það væri auðveldara að
gefa en að þiggja. En jafnframt reyndi ég af
veikum mætti að þakka vinum mínum fyrir
vinarvottinn. Nú, fjórum árum seinna sátum
við vinimir á fögru vorkvöldi og rifjuðum
upp þennan erfiða tíma. Ég þakkaði þeim
enn á ný og fullyrti, að án þeirra vináttu
hefði ég jafnvel gefist upp.
Einn vinur minn benti mér á að ég hefði
verið þess megnug að tjá tilfinningar mínar
og þess vegna hefði verið svo auðvelt að
hjálpa mér. Þessi vinur minn fann að með
44